18.12.1982
Sameinað þing: 33. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (1117)

1. mál, fjárlög 1983

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. sem við flytjum nokkrir þm. á þskj. 244. Ásamt mér eru flm. þeir hv. 11. þm. Reykv., Ólafur Ragnar Grímsson, 1. landsk. þm., Pétur Sigurðsson, 4. þm. Austurl., Sverrir Hermannsson, og 3. þm. Suðurl., Jón Helgason.

Till. er þess efnis, að við 6. gr. fjárlagafrv. bætist nýr liður svohljóðandi: „Að fjmrh. sé heimilt að ábyrgjast lán, sem tekið yrði vegna björgunar Het Wapen frá Amsterdam, allt að 50 millj. kr., eða endurlána lán, sem tekið yrði í sama tilgangi, gegn samningum um tryggingu í verðmæti hins bjargaða, enda liggi fyrir samþykki fjvn.“

Hér er um nokkuð óvenjulega till. að ræða, enda málið mjög óvenjulegt og á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1667, þegar Indíafarið Het Wapen frá Amsterdam strandaði á Skeiðarársandi, á Skaftafellsfjöru, nánar tiltekið þann 19. sept. 1667. Það hefur lengi verið áhugi á því að ná þessu skipi upp. Með bréfi 27. sept. 1960 veitti forsrn. Bergi Lárussyni leyfi til að leita að skipinu og hagnýta verðmæti þess og farm þess gegn greiðslu „12% af söluandvirði þeirra verðmæta, sem þér kunnið að hagnýta, að frádregnum flutningskostnaði til sölustaðar,“ eins og stóð í bréfi því sem þáv. forsrh., Ólafur Thors, sendi. Samhliða voru gerðir samningar við landeigendur. Skyldu þeir fá 10% hugsanlegs hagnaðar. S.l. 22 ár hefur verið unnið að leit skipsins. Til þess hefur verið varið miklum verðmætum og mikilli vinnu, en s.l., sumar, þann 28. júlí s.l., fannst þetta skip loksins.

Það hafa verið gerðar áætlanir um að bjarga skipinu og þeim verðmætum sem í því kunna að vera, en allmiklar heimildir eru til um það hvaða farmur var í þessu skipi, og reyndar níu skipum sem lögðu upp í þessa för. Hins vegar hefur ekki verið nákvæmlega vitað hvaða farmur eða hvaða hluti þessa mikla farms sé í því skipi sem hér um ræðir.

Það er erfitt að gera sér grein fyrir þeim verðmætum sem þarna er um að ræða, en það er mat manna að verðmæti skipsins verði varla undir þeim kostnaði sem í því felst að bjarga því, eða um 50 millj. kr. Bæði er hér hugsanlega um að ræða mjög verðmætan farm og ekki síður er vitað að hollenska ríkið er mjög áhugasamt um að þetta skip fari til Hollands. Hér er um að ræða mjög verðmætar og mikilvægar fornminjar fyrir Hollendinga. Hollendingar eiga ekkert skip af þessari gerð frá þessu gullaldartímabil hollenska ríkisins og því mikill áhugi hjá þeim reyndar nú þegar að taka að sér þetta verk og grafa sjálfir upp skipið og fá það heim til Hollands.

Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, og ég hygg að það búi að baki þeirri till. sem hér liggur fyrir hjá okkur flm., að við Íslendingar eigum að standa fyrir þessu verki. Einkaaðilar hafa hingað til haft forgöngu um þetta mál og hafa það vonandi áfram. Hér er hins vegar um mikinn kostnað að ræða og því ekki óeðlilegt að ríkið sé að bakhjarli í þessu verki. Við getum gert okkur grein fyrir því að þegar um slík verk hefur verið að ræða, þá hafa þau vakið gífurlega athygli. Nokkrum skipum hefur verið náð upp. Það má nefna t.d. Gustav Vasa sem sökk úti fyrir Stokkhólmi á sínum tíma og náðist upp eftir margar og miklar tilraunir. Um það skip hefur nú verið byggt mikið safn. Nú fyrir nokkrum vikum tókst að ná upp skipi í Ermarsundi, herskipi sem heitir Mary Rose. Það var reyndar illa á sig komið, en engu að síður vakti það gífurlega athygli þegar þetta skip náðist upp. Ég efast heldur ekkert um það, að þegar að því kemur að þetta verk verði hafið, þá mun það vekja mikla athygli erlendis og verða mikil auglýsing, vil ég segja, fyrir okkur Íslendinga, ef okkur tekst að gera þetta. Og ég legg áherslu á að við gerum þetta sjálfir þó að Hollendingar sæki í þetta verk.

Ég legg áherslu á að það er gert ráð fyrir í þessari till. að fjvn. samþykki þetta endanlega þegar áætlanir liggja fyrir og ljóst er hvernig að verki verður staðið. Ég tel í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að það sé einnig kannað í millitíðinni með hvaða kjörum og á hvern hátt Hollendingar mundu vilja kaupa þessar minjar. En samt legg ég áherslu á, eins og ég sagði, að við Íslendingar stöndum fyrir þessu. Þess vegna er þessi till. flutt.