18.12.1982
Sameinað þing: 33. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í B-deild Alþingistíðinda. (1121)

1. mál, fjárlög 1983

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég hefði viljað óska eftir því að fjmrh. og formaður fjvn. gæfu sér tíma til að hlýða hér á umr. þar sem enn virðist vera viðleitni til að bæta við fjárlögin. Ég óska eftir því að þeir verði kallaðir í salinn. (Forseti: Fjmrh. hefur gengið í salinn.) Og formaður fjvn. einnig hér.

Ég vil byrja á að vekja á því athygli, að flm. þeirrar brtt. sem hér er lögð fram eru m.a. Ólafur Ragnar Grímsson, hv. 11. þm. Reykv., og Jón Helgason, 3. þm. Suðurt. Það sem vekur undrun h já óbreyttum þm. er það, að sú venja hefur verið við fjárlög, að þm. hefur verið ætlað að bera ekki upp brtt. við fjárlög ef þeir væru stjórnarsinnar. Nú þykjumst við framsóknarmenn hafa gert nokkuð vel við Alþb. að afhenda þeim fjmrh. og formann fjvn. sömuleiðis. Það vekur undrun ef formaður þingflokks Alþb. telur báða þessa menn svo gagnslitla í sínum störfum að það sé ekki hægt að treysta þeim til að koma á framfæri í gegnum fjárlög því sem þar þarf að vera, heldur þurfi hann, eftir að þeir hafa unnið þar sín verk, að bæta um betur og koma á framfæri sérstökum tillögum um útgjöld, ef hlutir færu á þann veg, upp á 50 millj. Ég vil fá við því skýr svör bæði frá hæstv. fjmrh. og hv. 4. þm. Reykn., formanni fjvn., hvort líta beri svo á að hinir almennu stjórnarþm. hafi þá heimildir til að flytja hér brtt. við fjárlög eins og þeim sýnist og greiða atkv. við fjárlög eins og þeim sýnist. Það er sanngjarnt að við fáum hrein svör við þessu áður en við förum úf í atkvgr. almennt um fjárlögin.

Út af fyrir sig er það ekki á nokkurn hátt vítavert þó að menn hafi áhuga á því að vinna að uppgreftri á skipsflaki á Suðurlandi. Það sem vekur undrun er að þetta mál skuli koma inn á þingið með þessu hætti. Eðlileg málsmeðferð hefði verið að flutt hefði verið hér sérstakt mál með grg. um þessa hluti, þar sem við hefðum fengið í hendur þau undirgögn sem hljóta að vera nauðsynleg eigi menn að taka ábyrga afstöðu í svona máli. Ég fæ ekki séð að neitt hefði verið því til fyrirstöðu, að þetta mál hefði verið kynnt fyrir þinginu og það hefði verið skoðað með eðlilegum hætti þegar lánsfjárlög eru afgreidd. En það vekur undrun, svo að ekki sé meira sagt, að á elleftu stundu við afgreiðslu fjárlaga sé þessu dembt inn á borð til þm. Það vekur undrun og það gerir málið meira en lítið gruggugt.

Ég vil leyfa mér, með leyfi forseta, að lesa hér upp það bréf sem ritað var fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands árið 1960 og veitti ákveðnum aðilum heimild til að hefja þessa leit og þennan uppgröft:

„Forsætisráðuneytið, 27. sept. 1960.

Rn. hefur tekið við bréfi yðar, dags. 14. júní s.l., um leyfi ríkisstj. yður til handa til þess að leita að skipsflakinu Het Wapen, sem talið er að strandað hafi við Skeiðarársand í sept. 1667, og til þess að hagnýta yður verðmæti flaksins með tilheyrandi ef það skyldi finnast. Rn. virðist líklegt að hér sé um fornminjar að ræða og fer þá um fund skipsflaksins samkv. lögum nr. 40/1907. Að því er tekur til þeirra verðmæta sem finnast kynnu í flakinu og ekki yrðu talin fornminjar vill rn. taka það fram, þar sem þér hafið þegar aflað yður heimildar hlutaðeigandi landeigenda til leitar og hagnýtingar flaksins með tilheyrandi, að ríkisstj. vill fyrir sitt leyti veita yður umbeðið leyfi gegn því að þér greiðið í ríkissjóð 12% af söluandvirði þeirra verðmæta sem hér kunnið að hagnýta, að frádregnum flutningskostnaði til sölustaðar.

Hr. Bergur Lárusson, Brautarholti 22, Reykjavík.“

Undir bréfið rita Ólafur Thors og Birgir Thorlacius. Það er rökrétt og í samræmi við stefnu Sjálfstfl. að láta ákveðinn aðila bæði fá happið og bera áhættuna. Nú virðist aftur á móti vera komin upp sú stefna, að ríkið eigi að bera áhættuna en viðkomandi aðilar að fá happið. Þetta virðist vera ærin breyting frá þeim tíma þegar þetta bréf var skrifað.

Ég vil vekja á því athygli, að hér er um verklega framkvæmd að ræða þar sem menn munu að sjálfsögðu leggja fram sínar vinnuvélar og sín tæki og skrifa tíma út á þessar vélar. Það liggur því alveg ljóst fyrir að þeir sem nú ætla að fara að vinna verkið munu stórgræða á framkvæmdum á Skeiðarársandi, hvort sem skipið finnst eða ekki, eins og á að standa að málum eftir því sem flm. leggja til. Hvenær varð slík kúvending í stefnu Sjálfstfl. að það ætti ekki að tengja saman arðinn og áhættuna? Arðurinn skyldi einstaklingsins en áhættan öll þjóðfélagsins. Hvenær varð sú stefnubreyting? Það væri ráð að hugsjónamenn flokksins gerðu grein fyrir því hér í stólnum hvaða ár slík stefnubreyting varð.

Ég tel nauðsynlegt, vegna þess að hér hafa komið fram ýmsar upplýsingar um hvað hafi verið í þessu skipi, að gefa þingheimi kost á því að hlusta á frekari upplýsingar um þetta mál og lesa þau gögn sem hér liggja fyrir.

Mér hefur borist í ræðustól bréf: „Tillagan verður dregin til baka. JH.“ Fleiri hafa ekki skrifað undir. Ég fæ ekki séð að sá sem skrifar seinastur undir brtt. hafi eiginlega rétt til að draga hana til baka. En ef svo skyldi vera að búið sé að ákveða að draga till. til baka og aðilar málsins skrifi undir, svo að það liggi alveg ljóst fyrir, þá er ég reiðubúinn að hætta hér ræðu minni.

Indíafarið Het Wapen van Amsterdam strandaði á Skeiðarársandi, nánar tiltekið á Skaftafellsfjöru 19. sept. 1667. Skipið var á heimleið ásamt átta öðrum skipum Austur-Indíafélagsins hollenska og var siglt vestan Bretlandseyja í átt til Færeyja. (SvH: Ég hef lesið þetta, ég má fara.) Ég vil koma því hér á framfæri, að ég veit að hv. 4. þm. Austurl. er vel að sér í bókmenntum almennt og skaðar því ekkert þó að hann víki á braut.

Miðja vegu milli Íslands og Færeyja brast á óveður mikið. Het Wapen varð viðskila við skipalestina og leitaði undan veðrinu í átt til Íslands, þar sem það strandaði eftir tveggja daga hrakning.

Het Wapen mun hafa verið vopnað kaupfar, mjög stórt á síns tíma mælikvarða, af þeirri gerð sem nefnt var retorskip. Amsterdam-deild Austur-Indíafélagsins lét smíða skipið á árunum 1653–1654. Talið er að búnaður og stærð skipsins hafi verið sem hér segir: Lengd 147 fet, breidd 35 fet, rista 12 fet, vopnabúnaður 35–40 fallbyssur. Óvíst hvort hefði þurft að fara í byssukaup Landhelgisgæslunnar hefðu menn vitað um þetta svolítið fyrr.

Áhöfn og farþegar 200–250 manns. Farmurinn: Nákvæm farmskrá er enn til yfir þær vörur sem fóru um borð í skipin níu í Batavíu. Farmskrá Het Wapen er hins vegar ekki fyrir hendi. Farmskráin af þessu skipi er ekki fyrir hendi, það skyldu menn hugleiða. Áætla má hins vegar á grundvelli heildarfarmskrár hver farmur Het Wapen var þegar skipið strandaði. Meðaltalsútreikningar virðast hafa verið notaðir til að finna þetta út. Sé gengið út frá að farminum hafi verið jafnt skipt á skipin níu má ætla að farmskrá Het Wapen hafi verið eftirfarandi:

Pipar 550 tonn. Oft var nú þörf. Saltpétur 65 tonn, Sappanviður 40 tonn, kopar 35 tonn, negull 20, kanill 17, hnetur 10, sykur 10, stafir 5, indígó-litur 5, kalantórusviður 5, makkatin 5, baðmullarþráður 5, japönsk kamfóra 3, persneskt silki 3 tonn. Það eina sem heimildir íslenskra munnmæla benda til er að silkið hafi verið með skipinu, því að það höfum við sannfrétt, að bændur Suðurlands á þessu svæði hafi notað silkið í gjarðir á þó nokkru tímabili eftir að þetta skipsstrand átti sér stað.

Auk ofangreinds er ýmislegt smálegt, þar með taldir demantar og perlur, sem lyftir tonnatölu farms eitthvað yfir 800 tonn, ef því er deilt á skipin. Þá eru ekki taldar vistir eða persónulegir munir skipshafnar og farþega.

Ég held að það sé ekki nauðsyn að ég lesi þessar skýrslur allar, en ef þess yrði óskað hef ég aðstöðu til að biðja aftur um orðið. En hitt þykir mér rétt að menn hugleiði í fyrsta lagi: Er ekki hugsanlegt að áhugamenn um þetta mál vilji gefa þingheimi tíma til að hugleiða málið og leggja það fram með eðlilegum hætti eftir áramót ásamt nánari upplýsingum? Og jafnframt geri menn sér grein fyrir því, að það eru mörg skip sem hafa sokkið í kringum landið og trúlegt að ýmsir vildu leita eftir því að fá lán með því að láta veð í þessum skipum. Þess vegna vaknar sú spurning, hvort það sé eðlileg fjármálastefna að taka það upp að gera slík skip veðhæf. Þetta hefði kommissar hjá Byggðasjóði gjarnan mátt heyra.

Ég ætla ekki að þreyta menn miklu lengur með umr. um þetta. En ég óska eftir því að fjmrh. og formaður fjvn. svari þeim spurningum sem til þeirra var beint.