18.12.1982
Sameinað þing: 33. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (1122)
1. mál, fjárlög 1983
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það er nú ágætt að þingheimur skemmti sér svolítið hér í skammdeginu undir lok þingstarfa fyrir hátíðar. En hitt hefðum við kosið ýmsir, sem höfum um það mál fjallað sem felst í brtt. okkar Birgis Ísl. Gunnarssonar, Péturs Sigurðssonar, Sverris Hermannssonar, Jóns Helgasonar og mín, að menn fjölluðu kannske af aðeins meiri alvöru en hér hefur verið gert um það sem er kjarni þessa máls: að ætlunin er að gera tilraun til að ná menningarverðmætum sem eru einstæð í sögunni og ekki er hægt að ná ella eftir nokkrum öðrum leiðum. Nokkrar þjóðir, t.d. Bretar núna nýverið, hafa lagt ofurkapp á og kostað til þess miklum fjármunum að ná aftur skipum, sem legið hafa á hafsbotni eða árbotnum, og undan Noregsströndum var í fyrra unnið að hliðstæðu verkefni sem heimsathygli vakti.
Menn hafa gjarnan nefnt þetta „gullskipið“ og reynt að nota það heiti málinu til lítilsvirðingar og til þess að fleyta kerlingar á frekar ómerkilegum bröndurum hér í ræðustól og í hliðarsölum þingsins, án þess að horfa á þann kjarna máls, hvort við Íslendingar eigum að kosta nokkru til að verða þeirrar gæfu aðnjótandi að geta boðið umheiminum að sjá fornmenjar frá fyrri tíð, sem margar þjóðir mundu vilja kosta miklu til að hafa hjá sér og ég er viss um að hollenska þjóðin mundi verða reiðubúin að reisa yfir sérstakt safnhús, ef vel tækist. Við höfum dæmi frá Svíþjóð þar sem í sérstöku safni skipar virðingarsess skip frá þeirra sögu. Við höfum dæmi frá Noregi og við höfum fleiri slík dæmi þar sem skip frá fyrri öldum, sem tekist hefur að ná heilum til samtímans og fyrir framtíðina, hafa verið talin til mestu menningarverðmæta.
Það er alveg rétt að það eru einstaklingar og einkafyrirtæki sem kostað hafa til þess miklu fé og miklu af sínum tíma til að ganga úr skugga um hvort líkur séu á því að skipið finnist. Hafá þær tilraunir, það mikla starf, að ég ætla staðið í upp undir 20 ár og hafa nú loksins skilað þeim árangri að raunhæft er að ræða þessa möguleika sem menningarverðmætabjörgun, en ekki sem ævintýraleik á neinn neikvæðan hátt eins og hér hefur verið gert í umr.
Hitt er svo e.t.v. rétt, að málið hafi ekki verið nægilega rætt og kynnt þm. á fundum þingflokka eða annars staðar á vettvangi þingsins. En við sem að þessari till. stóðum töldum að málið hefði fengið nægilega rækilega umfjöllun á vettvangi þingflokkanna, það hefði verið fjallað um það bæði í þingflokki Alþb. og ég tel einnig á vettvangi þm. Sjálfstfl. En það hefur komið í ljós hér við þessar umr. að bæði innan þingflokks Framsfl. og innan þingflokks Alþfl. hefðu hliðstæðar umr. ekki farið fram.
Við fluttum þessa till. í þeirri góðu trú að málið væri kunnugt öllum þorra þm. og það þyrfti aðeins hópur manna úr sem flestum flokkum þingsins að taka sig saman og flytja slíka till. Það hefur hins vegar komið í ljós hér nú þegar og ennfremur í viðræðum við þm. í þingsal og utan hans núna síðustu mínúturnar, að þó nokkur hópur þm. óskar eftir því að fá að kynna sér þetta mál nánar og skoða þann mikla menningarleiðangur og þann mikla sögulega leiðangur sem hér er verið að taka ákvörðun um að leggja upp í og taka vissa hlutdeild í. Við sem höfum flutt þessa till. erum fúsir til að eiga slíkt samstarf við þm. og munum því draga till. til baka nú, en boðum jafnframt að við munum vinna að frv. um þetta mál sérstaklega, sem við munum leggja fram þegar þing kemur saman á nýjan leik eftir jólahlé, þar sem öll fylgigögn málsins geta legið fyrir og þar sem þm. hefur gefist góður tími til að kynna sér málið í heild sinni og hliðstæður þess í öðrum löndum. Við munum þess vegna gefa þm. tækifæri til að taka afstöðu til málsins þegar þingið kemur saman á nýjan leik eftir jólahlé og væntum þess, að þm. ræði þetta mál þá og hugleiði í fullri alvöru og á grundvelli þess hvers konar menningarverðmætabjörgun við erum hér að fjalla um.
Það er auðvitað rétt, sem hér hefur komið fram, að það hefur enginn tryggingu fyrir því hér og nú að þetta kunni að takast algerlega. Hún hefur aldrei verið fyrir hendi þegar hliðstæðum skipum frá fyrri öldum hefur verið bjargað. En líkurnar eru orðnar svo yfirgnæfandi, að við teljum rétt að íslenska þjóðin taki vissan þátt í þessu starfi. Það liggur ljóst fyrir að ef það tekst, þá muni ganga til almenns sjóðs landsmanna, ríkissjóðs, um 70% af öllum þeim tekjum og hagnaði sem inn koma af þessu heildarverkefni. Ennfremur er ljóst, eftir því sem dæmi eru til um annars staðar og reyndar eftir því sem fréttaflutningur hefur nú þegar verið erlendis um þennan væntanlega leiðangur, að þessi tilraun mun vekja heimsathygli. Mér er til efs að nokkrir atburðir í menningar- og sögustarfi, jafnvel nokkrir atburðir í þjóðlífi Íslendinga muni vekja jafnmikla athygli og þessi tilraun til að ná upp þessu skipi, þegar hafist verður handa um hana í alvöru.
Herra forseti. Við tillögumenn drögum þessa till. hér með til baka og væntum góðs samstarfs við þingheim allan um það frv. um málið sem við munum leggja fram þegar þing kemur saman að loknu jólaleyfi.