18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)

1. mál, fjárlög 1983

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það kom fram í ræðu hæstv. fjmrh. hér í dag, að hér er um lánveitingu að ræða vegna tímabundinna rekstrarerfiðleika hjá fyrirtækinu, sem fyrirtækið mun sjálft endurgreiða þegar rekstrarstaða þess hefur batnað, og með tilvísun til þess segi ég já.