18.01.1983
Neðri deild: 25. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Alexander Stefánsson):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf, dags. 17. jan. 1983:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Bogi Sigurbjörnsson skattstjóri á Siglufirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Páll Pétursson,
5. þm. Norðurl. v.“
Bogi Sigurbjörnsson skattstjóri á Siglufirði er nú ekki mættur hér. Ekki þarf að rannsaka kjörbréf hans, þar sem hann hefur áður átt sæti á þessu þingi. Ég býð hann velkominn til starfa. Hann mun mæta síðar í dag.