18.01.1983
Neðri deild: 25. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1375 í B-deild Alþingistíðinda. (1201)

159. mál, Olíusjóður fiskiskipa

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Um þá yfirlýsingu hæstv. sjútvrh., sem blöðin slógu upp og hv. þm. Matthías Á. Mathiesen gerði að umræðuefni hér áðan, ætla ég ekki að fara mörgum orðum. Hæstv. sjútvrh. segir svo margt í blöðunum og svo oft að það mundi æra óstöðugan að fara að tína það allt saman til. Hæstv. ráðh. minntist ekki á þetta einu orði í framsöguræðu sinni hér áðan. Þess vegna er best að láta þetta gleymt, eins og svo margar yfirlýsingar sem hæstv. ráðh. hefur gefið í blöðunum, t.d. yfirlýsingu þá að gengisbreyting kæmi að sjálfsögðu ekki til greina við lausn fiskverðsákvörðunar, sem hæstv. ráðh. gaf í flokksblaði sínu og málgagni, Tímanum, skömmu fyrir áramótin. Ég ætla því ekki að eyða frekari orðum að því. Það er mönnum til skemmtunar að lesa svona yfirlýsingar, en hvorki lesendur né sá sem yfirlýsingarnar gefur taka nokkurt mark á þeim eða ætlast til þess að það sé alvarlega tekið. Þetta er mönnum til skemmtunar þegar þeir ekki hafa annað við að vera.

Meginefni þess frv., sem hér er til umr., er að innleiða á ný í sjávarútveginn millifærslukerfi sem búið var að afnema með ærinni fyrirhöfn og fórnum eftir að allir höfðu orðið sammála um að slíkt millifærslukerfi væri með öllu óhafandi; allir flokkar þingsins og allir aðilar að fiskverðsákvörðun, bæði útvegsmenn, sjómenn og fiskkaupendur. Markmiðið er að endurreisa Olíusjóð fiskiskipa, sem búið var að afnema úr lögum, og fá til hans fé til þess að greiða niður olíu til fiskiskipa með aðgerðum sem eru ígildi þess að leysa upp hlutaskiptasamninga sjómanna og útvegsmanna og taka verulegar fjárhæðir fram hjá þeim skiptum.

M.ö.o. er olíuvandi útgerðarinnar með þessum hætti leystur á kostnað sjómanna. Ef þessi leið hefði ekki verið valin er líklegast að til þess að standa undir þessum kostnaðarvanda útgerðarinnar hefði fiskverð verið hækkað mun meira. Með því að beita þessari millifærsluaðferð, sem hæstv. sjútvrh. gerir till. um, hefur honum tekist að koma í veg fyrir að fiskverð hækkaði um það sem það ella mundi hafa hækkað. Sú lausn er á kostnað viðsemjenda útvegsmanna, á kostnað sjómanna.

Hæstv. sjútvrh. fór áðan með talnalegan samanburð á kjörum sjómanna og kjörum annarra launastétta máli sínu til nokkurs stuðnings þegar hann leggur til að sú leið sé farin að leysa olíuvanda útgerðarinnar á kostnað sjómanna og kjarasamninga þeirra. Það var ekki rétt í frásögn hæstv. ráðh. sem hann sagði þegar hann greindi frá því að þessi samanburður væri reistur á úrtökum úr skattframtölum viðkomandi launastétta. Þetta er rétt varðandi aðrar launastéttir en sjómenn. Þar var stuðst við úrtök úr skattframtölum. En varðandi samanburðinn við sjómenn, þá voru laun sjómanna áætluð miðað við fjölda sjómanna og aflamagn. Þarna var því ekki um sambærilegar stærðir að ræða.

Við getum að sjálfsögðu endalaust deilt um hver er staða einnar stéttar gagnvart annarri í kaupgjaldsþróun á umliðnum árum og misserum. Ég held að það fari þó ekkert fram hjá mönnum, sem fylgjast með atvinnuháttum úti á landsbyggðinni, að þróunin hefur á undanförnum árum verið í þá átt, að kjör sjómanna hafa verið að dragast smátt og smátt aftur úr kjörum annarra stétta í landinu. Þetta hefur m.a. komið fram í því, að jafnvel á aflasælustu skipum er nú ekki sú eftirspurn eftir plássum sem áður var. Fyrir örfáum árum var það þannig t.d. á togurum í því kjördæmi sem við hæstv. sjútvrh. þekkjum best til, að þar var vandaverk að komast að og langir biðlistar. Slíkt er ekki ástandið lengur. Nú hefur þróunin orðið sú á umliðnum misserum í kjörum þessara manna, að þó svo að sumir þeirra fái ennþá tiltölulega góð laun hefur samanburðurinn við tekjur fólksins í landi verið sjómannastéttinni óhagstæður með þeim afleiðingum að jafnvel aflaskip og aflaskipstjórar á þessum skipum geta nú átt í tímabundnum erfiðleikum með að fá besta mannskap um borð í skipin.

Þessar staðreyndir segja sína sögu þó að menn geti deilt um hvernig eigi að mæla þessa þróun með tölulegum samanburði við aðrar stéttir. Það er ekki neinn vafi á því, að um leið og þessi öfugþróun verður fyrir sjómannastéttina kemur hún fram í því að það verður erfiðara og erfiðara að manna fiskiskipaflotann. Þegar svo er orðið að á stundum er orðið erfitt að fá mannskap á aflasælustu skipin, þá segir það hverjum sjáandi manni að ástæðan er sú, að duglegir menn telja að þeim henti betur að leita starfa á landi en á sjó. Jafnvel þótt sjósóknin geti skilað talsverðum tekjum telja þeir að réttara sé fyrir sig að leita sér vinnu í landi sem er ekki jafnerfið og áhættusöm og starf þeirra sem sjómennsku stunda.

Þetta kemur einnig fram í samantekt áætlunardeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins um þróun vinnumarkaðarins á árinu 1981, sem var dreift til alþm. einmitt í dag. Þar koma fram niðurstöður Þjóðhagsstofnunar um tekjuþróun í einstökum starfsgreinum. Frá árinu 1981 eru nýjustu upplýsingar og fyllstu sem fyrir liggja. Það kemur í ljós m.a. í þessari skýrslu að á árinu 1981 drógust sjómenn mjög aftur úr öðrum launastéttum hvað tekjuþróun varðar. Á því ári hækkuðu tekjur í fiskveiðum um 49.8% á meðan tekjur í fiskvinnslu jukust um 55%, á meðan tekjur almennt í öllum landshlutum jukust um 56%, á meðan tekjur í iðnaðarstörfum jukust um 54.3%, á meðan tekjur í byggingarstarfsemi jukust um 61.3%, á meðan tekjur í samgöngum jukust um 58.9% o.s.frv. M.ö.o. segir þessi úttekt okkar að á árinu 1981 drógust sjómenn aftur úr öllum öðrum launastéttum, að bændum undanskildum, í sambandi við tekjuþróun. Þess vegna kemur það nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar sú leið er valin í árslok 1982 að mæta rekstrarvanda útgerðar með hætti sem ígildir því að hann sé leystur svo til einvörðungu á kostnað sjómannastéttarinnar með því að fara að vísu krókaleiðir, en leið þó í þá veru að brjóta upp gerða kjarasamninga sjómanna og grípa til aðgerða sem eru ígildi þess að hluti fiskverðshækkunar sé tekinn fram hjá skiptum.

Upphafið að því millifærslukerfi sem nú er verið að hrinda á flot aftur, eftir að Alþingi hafði afnumið það, má rekja til janúarmánaðar árið 1974, þegar lagt var útflutningsgjald á loðnu og loðnuafurðir til þess að afla fjár til að greiða niður olíu til fiskiskipaflotans. Þáv. sjútvrh., Lúðvík Jósepsson, fékk það millifærslukerfi lögfest á Alþingi í janúar 1974, en hafði áður fengið samþykki sjómanna og útvegsmanna til þeirrar ráðstöfunar. Þingflokkur Alþfl. var eini flokkur þingsins sem lagðist þá gegn slíkum ráðstöfunum og varaði mjög einarðlega við því út í hvaða uppbóta- og millifærslukerfi menn væru að sigla með slíkum hætti. Allir aðrir þingflokkar, þingflokkur Sjálfstfl., þingflokkur Framsfl. og þingflokkur Alþb., stóðu að því að hefja þetta millifærslukerfi með lögunum frá 1974. Alþfl. einn flokka var andvígur því og varaði við því kerfi sem væri verið að hefja smíði á.

Við Alþfl.-menn reyndumst sannspáir því strax í árslokin 1974 voru afgreidd lög um ráðstafanir í sjávarútvegi, sett af ríkisstjórn Sjálfstfl. og Framsfl., þar sem Olíusjóður fiskiskipa var búinn til með nákvæmlega sama hætti og nú stendur til að endurreisa þann sjóð. Munurinn á ráðstöfunum þeirrar ríkisstjórnar og ráðstöfun hæstv. sjútvrh. Lúðvíks Jósepssonar frá því í janúar sama ár var sá, að útflutningsgjaldið á loðnu og loðnuafurðir var samþykkt að fengnu samþykki sjómanna og útvegsmanna fyrir slíkri ráðstöfun, en lög um Olíusjóð fiskiskipa og útflutningsgjaldið, sem hann var fjármagnaður með samkv. lögum um ráðstafanir í þágu sjávarútvegsins, voru samþykkt í algerri andstöðu við sjómenn, sem litu á lagasetningu sem kaupupptöku og ígildi riftunar á kjarasamningum um skipti. Einnig var þingflokkur Alþfl. algerlega andvígur slíkum ráðstöfunum við það tækifæri og stóðum við þm. Alþfl. saman um andstöðu við þær aðgerðir ásamt þáv. þm. Alþb.

Það er fróðlegt fyrir menn að lesa þær ræður sem þá voru fluttar af hv. þm. Lúðvík Jósepssyni, Stefáni Jónssyni og Garðari Sigurðssyni gegn því millifærslukerfi sem þarna var verið að koma á fót. Hv. þm. Garðar Sigurðsson var þá frsm. minni hl. sjútvn. Nd. Ég og hv. þm. Garðar Sigurðsson stóðum saman að nál. þar sem lagt var til að greinin um olíusjóðinn, sem átti að samþykkja, yrði felld. Í umr. þá sagði frsm. minni hl., hv. þm. Garðar Sigurðsson, m.a. að ljóst væri samkv. þessum ráðstöfunum að tilgangurinn væri að leysa vanda útgerðarinnar á kostnað sjómanna með bolabrögðum og þjösnaskap. Hann mælti, með leyfi forseta, á þessa leið:

„En þarna er aðeins því bætt við að láta sjómenn standa undir stórkostlegum hluta af olíuverðinu í landinu. Það er þessi stétt, sem ein allra launastétta í landinu þarf að taka á sig þessa gífurlegu hækkun. Ég vil segja það, að með þessu er höggvið fyrst og skarpast að þeim sem hlífa skyldi.“

Þetta sagði hv. þm. þegar hann mælti fyrir nál. okkar tveggja um andstöðu gegn Olíusjóði fiskiskipa. Þá hafði sama þróun átt sér stað í kaupþróun sjómanna sem undanfari aðgerða og nú hefur átt sér stað. Þeir höfðu ekki haldið í við kaupþróun annarra stétta alveg eins og nú, en þrátt fyrir það var gripið til þeirra aðgerða að leggja vanda útgerðarinnar hvað varðar olíuverðið á herðar þeirra einnig. Það verður fróðlegt að sjá hvernig hv. þm. Garðar Sigurðsson, sem nú er ekki lengur í minni hl. í sjútvn. ásamt þm. Alþfl., eins og hann var við þetta tækifæri, heldur er nú formaður sjútvn. þessarar hv. deildar, tekur á málum þegar að því er komið að honum er ætlað það hlutverk að berjast fyrir framgangi ráðstafana hér á Alþingi sem hann barðist gegn í minni hl. í sjútvn. árið 1974.

Ég þarf ekki að orðlengja að þetta millifærslukerfi, sem komið var á fót með lögum um ráðstafanir í sjávarútvegi, stóð aðeins í tvö ár. Eftir þessi tvö ár voru allir, líka þeir þingflokkar sem áttu hlut að því að koma þessu kerfi á, orðnir sammála um að menn væru komnir út í algerar ógöngur og þetta millifærslukerfi hefði orðið til mikillar óþurftar í íslenskum sjávarútvegi. Þá beitti sá sjútvrh., hv. þm. Matthías Bjarnason, sem komið hafði kerfinu á fót sér fyrir því, að millifærslukerfið var afnumið á ný gegn því að sjómenn tækju á sig verulega skerðingu á umsömdum hlutaskiptum, sem þeir gengust þá undir, því að allir, bæði stjórnmálamenn og hagsmunaaðilar, voru sammála um að það bæri ýmsu að fórna til þess að losna við þetta óheilbrigða millifærslukerfi.

Olíusjóður fiskiskipa og sú mikla millifærsla sem honum hafði verið fengin voru því afnumin með lögum árið 1976. Við það tækifæri átti núv. hæstv. sjútvrh. sæti í Ed. Alþingis. Hann var þá, að mig minnir, formaður sjútvn. þeirrar deildar sem fékk til meðferðar frv. um afnám þess millifærslukerfis sem hann nú leggur til að verði endurreist. Þegar hann mælti fyrir áliti n., sem sammála lagði til að kerfið yrði afnumið, sagði hann, með leyfi hæstv. forseta, í ræðu í Ed. Alþingis:

„Ég er þeirrar skoðunar, að þetta [þ.e. millifærslukerfið] hafi gengið nokkuð langt hjá okkur Íslendingum og að um hættulega mikla millifærslu á fjármunum sé að ræða, jafnvel svo mikla að verulega hafi á vissum sviðum dregið úr vilja einstaklinga til að spjara sig eins og þeir frekast mega, en ég hygg það ávallt vera nauðsynlega undirstöðu í íslensku atvinnulífi og að slíkt eigi að vera.“

Þetta sagði hæstv. núv. sjútvrh. þegar hann sem formaður sjútvn. Ed. Alþingis lagði til 1976 að millifærslukerfi það yrði afnumið sem hann er núna að endurreisa. Þannig er víðar en í dagblöðunum sem yfirlýsingarnar koma ekki heim og saman við aðgerðirnar.

Nú er verið að endurreisa sama kerfi og afnumið var árið 1976. Með því er bókstaflega stefnt að því enn einu sinni að fá sjómenn til þess að fallast á að greiða einhvern tíma í framtíðinni fyrir afnámi millifærslukerfisins á ný með því að fallast á að gera nýja samninga við útvegsmenn um að rýra umsaminn hlut sjómanna í aflaverðmæti. Að því er bókstaflega stefnt. Með þessum aðgerðum er vísvitandi stefnt að því að neyða sjómannastéttina til að semja upp á nýtt og falla frá því samkomulagi um hlutaskipti sem sjómenn hafa þegar fengið.

Einnig er með þessu verið að fitja upp á því stórháskalega kerfi, sem tröllríður orðið allri atvinnustarfsemi á Íslandi, þ.e. að allt atvinnulíf í landinu er með einum eða öðrum hætti orðið niðurgreitt úr ríkissjóði eða með óbeinum hætti af ríkissjóði eða fé atmennings. Það er verið að búa til sams konar kerfi fyrir íslenskan sjávarútveg og Framsfl. hefur smíðað fyrir íslenskan landbúnað — kerfi niðurgreiðslna, kerfi uppbóta, kerfi styrkja, kerfi millifærslu frá þeim sem duga til hinna sem ekki duga. Það er nákvæmlega sams konar millifærsla sem hér á að taka upp, millifærsla frá þeim sem duga til þeirra sem ekki duga. Sú millifærsla er fólgin í því, að menn hætti að hafa nokkrar áhyggjur af hvernig er farið með þau verðmæti sem þeim eru fengin vegna þess að það eru sett lög um að með almannafé eða með fé frá öðrum eru dýrir rekstrarliðir eins og olía greiddir niður. Þannig skiptir ekki útgerðina lengur meginmáli að reyna að spara á dýrasta útgerðarliðnum því að það er séð svo um að þeir sem spara greiði niður kostnaðinn hjá þeim sem ekki spara.

Hæstv. sjútvrh. hefur fengið skeyti nýlega frá útgerðarmanni á Bakkafirði austur, sem við nokkrir þm. höfum fengið afrit af. Í skeytislokin segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég leyfi mér að árétta það, að smástaðir eins og Bakkafjörður og Grímsey og bátaflotinn í heild hafa ekkert bolmagn til að greiða niður olíu til togaranna. Verði uppteknum hætti fram haldið með eignarnámi á gengismun og ráðstöfunum af því tagi verða Bakkfirðingar skattlagðir á árinu 1983 sem hér segir: Í nýtt útflutningsgjald um 1 millj., í verðbætur á ufsa og karfa o.fl. um 1 millj., í gengismun um 1 millj. Samtals um 3 millj. kr. Það leyfi ég mér að fullyrða, að svona smástaðir, sem varla hafa sómasamlega hafnaraðstöðu, þola alls ekki þvílíkar átögur til styrktar togaraútgerðinni. Af þeim ástæðum leyfi ég mér hér með að koma með þessa brtt.

Virðingarfyllst.

Kristinn Pétursson,

útgerðarmaður. Bakkafirði.“

Í skeytinu telur hann upp nokkrar tillögur til breytinga á ráðstöfunum hæstv. ráðh., sem ég ætla ekki að fara frekar út í.

Þetta finnst mönnum kannske ekkert óskaplega merkilegt plagg. Einn maður í tiltekinni atvinnugrein sendir ráðh. sínum skeyti þar sem hann biðst undan því að þurfa sem smáútgerðarmaður að greiða verulega fjármuni til að standa undir rekstrarkostnaði hjá öðrum aðilum, sem þurfa ekki eftir þessa breytingu að hafa sérstakar áhyggjur af því þó að reksturinn hjá þeim sé e.t.v. ekki upp á það allra besta, þó að þeir eyði e.t.v. margfaldri olíu á við aðra, vegna þess að ríkisstjórnirnar sjá svo um eða ætla sér að sjá svo um að það verði þá bara tekið frá þeim sem betur standa sig til þess að færa til hinna sem verr gengur.

Það er alveg fráleitt að það geti verið rétt og eðlileg aðferð, þegar vandi í tiltekinni atvinnugrein er í því fólgin, að ákveðin erlend aðföng atvinnugreinarinnar hækka mjög í verði vegna erlendra verðhækkana, að svara því með kerfi af þessu tagi, þar sem verið er að greiða hin erlendu aðföng niður til þess að það skipti ekki lengur máli hvernig menn halda á þeim aðföngum, sem þeir þurfa til rekstrarins, hvort þeir noti þau af gætni eða af ógætni.

Eftir verðhækkunina á olíunni hafa ýmsir skipstjórar og útgerðarmenn gripið til þess ráðs að reyna að leita leiða til að draga úr olíunotkun. Komið hefur verið upp sérstökum olíumælum á ýmsum olíufrekum fiskiskipum til að fá skipstjórnarmenn til að spara olíu og fylgjast a.m.k. betur með hve mikilli olíu þeir eyða í hvert skipti. Gerðar hafa verið tilraunir með það í Vestmannaeyjum að stunda trollveiðar með tveimur bátum með eitt troll til þess að spara orku og þar á meðal olíu. Gegn öllu slíku er unnið með ráðstöfunum af þessu tagi. Það er unnið gegn því að menn leiti leiða til að fara spart með dýr aðföng, — svo að maður tali nú ekki einu sinni um þegar þannig er haldið á málum að menn gera bókstaflega ráð fyrir því, eins og í frv. er gert, að tekin séu erlend lán til að greiða niður erlend aðföng. Það er eins fráleitt og verið getur að menn fari í erlenda banka til að taka erlend lán til að greiða niður rekstrarvörur sem keyptar eru erlendis frá. Og hverju eru menn nær? Halda menn að það sé einhver lausn fólgin í því að taka lán í erlendum bönkum til þess að greiða niður vörur erlendis frá, sem menn verða að greiða í kannske sömu bönkum og menn taka lánið til þess að greiða vöruna í? Hverju er verið að bjarga með slíku? Þarf ekki íslenska þjóðin og útvegurinn í heild að taka þetta á sig hvort eð er, með hvaða hætti svo sem reynt er að fara slíkar krókaleiðir að settu marki?

Það væri miklu eðlilegra, heiðarlegra og réttlátara að koma beint framan að fólki. Ef þarf að grípa til aðgerða til stuðnings undirstöðuatvinnuvegunum á að gera það án þess að reynt sé að fela þær aðgerðir, án þess að reynt sé að grafa þær í sand svo að fólki verði ekki ljóst hver staða þessara atvinnuvega er og af hverju vandi þeirra stafar. En það er það sem hæstv. ríkisstj. má alls ekki af vita. Hún má alls ekki og aldrei af eigin vilja grípa til ráðstafana af neinu því tagi sem gera almenningi það fært að horfast í augu við þann vanda sem við er að fást. Það þarf alltaf að fela vandann, það þarf alltaf að fara einhverjar þær krókaleiðir að markinu sem gera hæstv. ríkisstj. fært að halda því fram í orði kveðnu að lausnir hennar komi ekki við hag nokkurs einasta manns. Og þetta er dæmigert um slíka lausn. Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð mín fleiri. Ég held að það sé alveg ljóst að við Alþfl.-menn erum jafnandvígir því óheilbrigða og ógeðfellda millifærslukerfi, sem verið er að byggja upp með þessum ráðstöfunum, ef þær ná fram að ganga, og við vorum andvígir því árið 1974 og árið 1976. Ég er alveg sannfærður um að fyrir þessa ráðstöfun eiga sjómenn eftir að gjalda þó síðar verði með því að þeir verði neyddir til að greiða fyrir afnám þessa heimskulega og óréttláta kerfis með beinni launalækkun, enda er það það sem beinlínis er að stefnt af hálfu hæstv. ríkisstj. Stefni hún þangað á hún að segja fólki það afdráttarlaust, en ekki vera með neinn blekkingaleik af því tagi sem hér er tíðkaður.

Ég vil einnig taka það fram, að þó að við Alþfl.-menn séum andvígir þeirri leið sem hér um ræðir munum við ekki tefja framgang þessa máls þannig að það geti gengið til atkv. og fengið eðlilega meðferð og umfjöllun hér í þinginu. Og okkar tilgangur er ekki sá og hefur aldrei verið sá að stuðla með einum eða öðrum hætti að því að atvinnulífið á Íslandi stöðvist af því að flotanum verði lagt, af því að atvinnuleysisvofan haldi hraðari innreið sína á okkar land en hún gerir nú. Okkar tilgangur er sá að benda mönnum á út á hvaða braut þeir eru að fara, gera mönnum grein fyrir því hvaða ábyrgð þeir taka á sig sem endurvekja nú þetta millifærslukerfi, vekja athygli á því hvert menn eru undir rós að stefna. Við munum hins vegar eins og ég sagði áðan, ekki gera neitt til að koma í veg fyrir að málið fái fljóta og eðlilega afgreiðslu og geti gengið sinn eðlilega gang hér á þinginu og gangi til atkv. eins fljótt og við verður komið.

Hins vegar teljum við nauðsynlegt, að í meðferð sjútvn. á þessu máli verði ýmis atriði skoðuð betur og upplýst betur en fram hefur komið. M.a. vek ég athygli á því, að ekki kemur fram í grg. eða aths. með þessu frv. hvað menn áætla og á hverju menn reisa síkar áætlanir, hvað 4% útflutningsgjald af sjávarafurðum muni gefa miklar tekjur. Í frv. kemur aðeins fram hver fjárþörfin er til niðurgreiðslunnar, en ekki hitt, hvað gjaldtakan skilar miklu fé né heldur hvernig menn áætla að það fé greiðist, hvernig menn áætla að hver framleiðslugrein í sjávarútvegi um sig standi að þessari tekjuöflun.

Ég vil benda mönnum á það, að eins og háttað er gjaldtökunni á þessu gjaldi er hætt við því að útflutningsgjaldið ýti undir það enn frekar en gert hefur verið að fiskiskip selji afla sinn í erlendum höfnum. Ástæðan er einfaldlega sú, að sé aflinn seldur í innlendri höfn, unninn og verkaður þarf að greiða 4% útflutningsgjald af fob-verði hinnar framleiddu vöru. Þegar aflinn er seldur erlendis þarf aðeins að greiða útflutningsgjald af verðmæti hins selda afla. Þannig greiðist ekki skattlagningin af t.d. vinnu þeirra hér heima sem breyta hráefninu í fullunna vöru. Þessi mismunur, hærri skattlagningin á fullunnu vörunni en hráefninu, gæti stuðlað að því að ýta enn frekar en nú er undir það að skip sigli með afla sinn til sölu í erlendum höfnum. Ekki væri það til þess að stemma stigu við þeim atvinnuerfiðleikum sem hafa haldið innreið sína í íslensk sjávarpláss.

Að lokum vil ég aðeins benda mönnum á það, að ekki hefur fram komið enn, að öllum er ljóst, ekki síst hæstv. sjútvrh., að þeirri aðgerð, sem í frv. þessu felst, er ekki ætlað að duga nema í tvo mánuði. Ný fiskverðsákvörðun og ný lausn á þessum málum þarf að koma til eigi síðar en í kringum 1. mars n.k. Þetta er öllum ljóst, líka hæstv. sjútvrh. Þeir sem ætla að stuðla að því að þetta mál hljóti hér afgreiðslu með jákvæðum hætti til þess að ríkisstj. geti setið áfram verða að sjálfsögðu jafnframt að vera reiðubúnir að standa með ríkisstj. að framlengingu þessara ráðstafana í kringum 1. mars. Menn verða að horfa vísvitandi á hvað þeir eru að gera. Ef menn ætla að segja á í þessu máli, þá þurfa menn að segja b líka. Menn skyldu gera sér grein fyrir því við afgreiðslu þm. á þessu eina máli, sem aðeins er ætlað að duga í tvo mánuði, út frá þeim rökum að menn vilja ekki að ríkisstj. fari alveg strax frá. Ef menn nota þau rök verða menn líka að segja b, þá verða menn líka að vera reiðubúnir að framlengja sambærilegar ráðstafanir og eru í þessu fólgnar þegar í stað í kringum þann 1. mars n.k. og halda síðan áfram að taka ábyrgð á slíkum aðgerðum uns þeir telja að ríkisstj. hafi setið nógu lengi. En því miður fyrir menn verður ríkisstj. að fara frá ekki síðar en í des. á næsta hausti og lengur geta menn ekki framlengt líf hennar.