18.01.1983
Neðri deild: 25. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (1207)

159. mál, Olíusjóður fiskiskipa

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið, en örfá atriði vil ég koma inn á.

Í fyrsta lagi hefur verið gert dálítið að umræðuefni það sem haft er eftir mér í Morgunblaðinu. Ég minnist þess ekki að ég hafi rætt við sjónvarpið um þetta mál. Ég þarf ekkert að leiðrétta það sem í Morgunblaðinu er eftir mér haft. Það er allt hárrétt sem þar var tekið fram. Ég vil í fyrsta lagi segja það hér að ég hef tamið mér að tala af fullri hreinskilni við fréttamenn. Ég mun halda því áfram og ég held að menn ættu sem flestir að gera það. Ég vil jafnframt segja það að ég fæ ekki séð hvernig ríkisstj. fær setið, ef flotinn er stöðvaður vegna þess að Alþingi getur ekki komið sér saman um lausn til að halda megi áfram veiðum. Það er einnig mín skoðun að það væri ákaflega óábyrg afstaða hjá Alþingi eða stjórnarandstöðunni að gera slíkt. Ég hef það mikið álit á kjósendum að ég held að í kosningum sé engin staða meiri óskastaða fyrir ríkisstjórn heldur en óábyrg stjórnarandstaða og ég vona að menn skilji þau orð. Ég vil hins vegar segja það við hv. þm. Vilmund Gylfason að ég óska honum til hamingju, hann er orðinn miklu ábyrgari eftir að hann fór úr Alþfl. og stofnaði sitt bandalag, og ég vona að sem flestir breytist þannig. Ég skal ekki hafa fleiri orð um það. Hér hafa menn svo talað um millifærslu. Ég get tekið undir það að millifærsla er ætíð erfið, en millifærsla er náttúrlega á ótal sviðum í okkar þjóðfélagi. Millifærsla er með sköttum, svo ég nefni bara eitt stórt mál, stóra millifærslu. Í þessu sambandi verða menn að gæta þess að fiskverð er vitanlega angi af því kerfi sem við höfum komið okkur upp með verðtryggingum í raun og veru. Við verðtryggjum laun. Launþegar þurfa ekki að semja um hækkun launa þriðja hvern mánuð, það er verðtryggt. Bændur þurfa að vísu að semja í Sexmannanefnd, en þar er hækkun á framfærsluvísitölu og verðbóta lögð til grundvallar. Ætlast menn til þess að sjómenn sætti sig við eitthvað minni tekjuhækkun en aðrir hafa fengið þannig? Ég get ekki ímyndað mér það. Þannig er hér um að ræða anga af kerfi sem ég get tekið undir með fjölmörgum mönnum að er vægast sagt ákaflega vafasamt og heldur við þeirri verðbólguskrúfu sem við erum að stríða við og þarf að breyta. En það er mál sem ég ætla ekki að fara inn á hér.

Hér hefur verið rætt töluvert um tekjur sjómanna. Það er rétt sem kom fram hjá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni og kemur fram í skýrslum Framkvæmdastofnunar að tekjur sjómanna lækkuðu á árinu 1981 miðað við ýmsar aðrar stéttir. Þetta kom einnig fram í þeim tölum sem ég nefndi áðan. Samkvæmt mati Þjóðhagsstofnunar miðað við 100 1977, voru tekjur sjómanna sem hlutfall af tekjum verkamanna 98% 1980, en 95% árið 1981. Þær lækkuðu því og þetta passar saman. En að mati Þjóðhagsstofnunar hafa tekjur sjómanna með þessari 14% fiskverðshækkun nú hækkað í 101%, það er að segja komnar fyllilega upp í það sem þær voru í hlutfalli við tekjur verkamanna 1977.

Ég vil segja það að þegar menn tala um mismunandi aðgerðir þá get ég tekið undir það sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson sagði um sem mestan frið. Það er rétt, við þurfum að fá sem mestan frið um svona aðgerðir. Ég átti að sjálfsögðu fjölmarga fundi með fulltrúum hagsmunaaðila að þessari ákvörðun og því miður gat ég ekki komið auga á leið sem stuðlaði að meiri friði heldur en sú sem hér er lagt til að farin verði og niðurstaða varð um í yfirnefnd.

Það var í raun og veru ekki nema um þrjár leiðir að ræða. Ein leiðin er sú að hækka fiskverð, sem mér skilst að hv. Alþfl.-menn sem hér hafa talað vilji helst fara. Hækkun fiskverðs hefði orðið að verða um 26–28%. Sú leið hefði haft mest verðbólguáhrif. Ég á einnig mjög erfitt með að hugsa mér að launþegar í landi hefðu sætt sig við þá miklu tekjuhækkun sem sjómenn hefðu þá fengið. Miðað við þær tölur sem við höfum hér verið með til samanburðar á tekjum sjómanna og tekjum annarra stétta hefðu sjómenn að öllum líkindum farið um það bil 8–10% yfir tekjur annarra stétta í landi. Á þeim tímum þegar tekjur eru skertar með aðgerðum eins og gert var 1. des. sýnist mér ákaflega ólíklegt að um slíka tekjuhækkun sjómanna hefði orðið friður. Hér var sagt áðan að komið hefði til greina, það sagði hv. þm. Matthías Á. Mathiesen, að hafa fiskverðshækkun minni og fara aðra leið til að bæta tekjur sjómanna og tekjumissi sjómanna vegna aflabrests. Ég vildi mjög gjarnan heyra slíkar till. Ég á erfitt með að mæla með frekari skattaívilnunum til sjómanna og ég hef ekki komið auga á leiðir sem þá ekki kosta útgerðina eitthvað og hún yrði að fá bætt.

Önnur leið sem til greina kom var hækkun á olíugjaldi, eða kostnaðarhlutdeild ef menn vilja kalla það það. Formaður Sjómannasambands Íslands sagði á fjölmennum nefndarfundi að ef sú leið yrði farin mundu sjómenn sigla skipum í land og þau yrðu bundin þar svo fast að þurfa mundi meiri háttar átak til að losa þau. Þetta var ekki álitlegt, en mér er vel kunnugt um það að það er mikil andstaða gegn olíugjaldi víða um land.

Þriðja leiðin er sú sem hér er lögð til. Sem sagt, um enga þessara leiða náðist fullkomið samkomulag. Það er misskilningur hjá hv. þm. Karvel Pálmasyni að því hafi verið haldið fram að samkomulag væri. Þvert á móti hefur verið upplýst hvað eftir annað að fulltrúi sjómanna greiddi atkvæði á móti þessari leið. En hann tjáði mér að hann mundi einnig greiða atkvæði á móti hækkun olíugjalds eða kostnaðarhlutdeild. Hann kvaðst hins vegar mundu fylgja olíuniðurgreiðslu ef tekna yrði aflað t.d. með söluskatti. Ég tel fyrir mitt leyti ákaflega vafasamt að fara þá leið.

En hver er í raun og veru munurinn á þessum tveimur leiðum? Söluskattur leiðir að sjálfsögðu til hækkunar á vöruverði, sem leiðir til hækkunar á vísitölu, hækkunar á launum, meiri hækkunar á. fiskverði og svo gengislækkunar. Sú leið sem hér er farin leiðir til gengislækkunar alveg eins og sú fyrri. Ég sé ekki ýkja mikinn mun á þessu tvennu.

Og þegar menn tala hér um tilfærslu innan útgerðarinnar þá finnst mér það vera nokkuð langt gengið. Hér er lagt gjald á útflutninginn í raun og veru, eftir að honum er skilað frá framleiðanda, og til að mæta því verði sem fæst fyrir útflutninginn erlendis er gengi lækkað, þannig að ég held að það sé ekki rökstutt eins og þyrfti að vera, miðað við ýmsar fullyrðingar, að hér sé út af fyrir sig verið að taka frá bátunum og færa til sjómanna. Frá hverjum er verið að taka þegar olía hækkar í verði á erlendum markaði, eins og gerst hefur upp á síðkastið? Er þá ekki verið að taka frá togurum? Við gætum lengi haldið áfram slíkum röksemdafærslum.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjalla meira um þetta. Ég fagna því að hér hefur komið fram hjá hv. stjórnarandstæðingum að þeir muni ekki tefja fyrir framgangi málsins. Ég vona að hv. sjútvn. geti unnið ötullega að athugun þessa máls og það fái afgreiðslu sem allra fyrst. Í raun og veru er það mikilvægast, þannig að ekki ríki óvissa um aðgerðir vegna erfiðleika útgerðarinnar.