19.01.1983
Neðri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (1220)

Um þingsköp

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég taka það fram að ég er reiðubúinn til að ræða um hugsanlegar breytingar á ráðstöfun á gengishagnaði strax og málið kemur til 1. umr. Slíkt á ekki heima undir umr. um dagskrá eins og hv. þm. vita. Ég legg til að við vindum okkur í 1. umr. strax og tökum málið til meðferðar.