19.01.1983
Neðri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)

Um þingsköp

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta smámisskilning hér.

Það á ekkert skylt við gott samkomulag formanna þingflokka og forseta að hæstv. forsrh. skuli ekki vilja fallast á niðurstöðu sem allir þessir aðilar höfðu lýst sig reiðubúna að fallast á. Ég legg áherslu á, að ef afgreiðsla mála hér í þinginu á að ganga verður þetta samstarf þingflokkaformanna og forseta að halda áfram og frekar að auka það og bæta en draga úr því. Það eru ýmis mál sem við verðum að afgreiða hér á Alþingi áður en til kosninga verður gengið og afgreiðsla á þeim málum fæst ekki nema með því að þessir aðilar, sem eru fulltrúar þm. hér á Alþingi, haldi áfram að ræðast við og haldi áfram að ná samkomulagi um afgreiðslu mála.

Ég lít ekki svo á, og vil taka það fram, að þó svo hæstv. forsrh. hafi ekki viljað fallast á samkomulag, sem allir þingflokkar voru reiðubúnir að fallast á og allir forsetar, eigi það að breyta neinu um það samstarf sem verður að vera hér á Álþingi til þess að Álþingi geti sinnt sínum skyldum við að afgreiða mál. Og ég tel mig ekki eiga neitt sökótt í þessum efnum, hvorki við hæstv. forseta Nd. né forsetana yfirleitt né formenn þingflokka stjórnarliðsins. Aðeins vil ég ítreka að ég taldi eðlilegt að fallast á þessi tilmæli, sem fram voru borin, vegna þess að það skipti ekki neinu máli um framgang málsins hvenær þessi umr. færi fram, það skipti engu máli, við værum reiðubúnir að stuðla að því að framgangur þess geti orðið með sem skjótustum og eðlilegustum hætti, m.a. þannig að fjh.- og viðskn. hefji umfjöllun um þetta mál áður en búið er að vísa því til n. Við það samkomulag stend ég fyrir mitt leyti þannig að ég er reiðubúinn að mæta á fund fjh.- og viðskn. þessarar deildar þó svo 1. umr. sé ekki lokið og þó svo málinu hafi ekki formlega verið vísað til þessarar nefndar.

Þó að mönnum gremjist að ekki skuli hafa verið hægt að ná samkomulagi við hæstv. forsrh. um vinnubrögð, sem allir aðrir aðilar að þingstörfum höfðu verið reiðubúnir að fallast á að standa saman um, þá vil ég leggja áherslu á að þar er hvorki við formenn stjórnarþingflokkanna né forseta að sakast. Við verðum að halda áfram að hafa samstarf hér í þinginu þrátt fyrir að hæstv. forsrh. vilji ekki einn þm. fallast á samkomulag sem allir aðrir þm. voru reiðubúnir að fallast á og hefur engin áhrif á gang mála hér í þinginu.