19.01.1983
Neðri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1425 í B-deild Alþingistíðinda. (1228)
85. mál, efnahagsaðgerðir
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Áður en ég byrja að ræða um frv. sem hér liggur fyrir er óhjákvæmilegt að minnast stuttlega á atriði þau sem hér hafa verið rædd nú hátt á aðra klst. utan dagskrár.
Hv. 10. þm. Reykv., Friðrik Sophusson, undraðist mjög að hann hefði ekki fengið svör við fsp. sem hann bar fram til ráðh. Ég vil bara benda á að þær fsp. sem hann bar fram til okkar heyra undir efnisumr. um það mál sem nú er til umr. Hitt væri náttúrlega hrein fjarstæða og sýnir að eitthvað á hv. þm. enn ólært í þingvenjum og þingsköpum, það er ákaflega óeðlilegt, ef við færum að ræða utan dagskrár um þau atriði eða svara fsp. um þau atriði sem heyra beinlínis undir það mál sem er á dagskrá og nú er komið til dagskrár, en sem þessir hv. þm. hafa verið að tefja með málþófi. Þessi ádella hv. þm. er því ekki á rökum reist.
Hv. 6. þm. Reykv., Birgir Ísl. Gunnarsson, hélt því fram að ég hefði spillt friði og samkomulagi milli manna í þessu máli eftir að stjórnarandstæðingar hefðu sýnt mikinn samningsvilja með því að fallast á að afgreiða þessi brbl. frá Ed. við umr. í gær. Hér talar hv. þm. af ákaflega litlum kunnugleika, að því er virðist, á því sem gerst hefur.
Þetta frv. var vikum saman til meðferðar í hv. Ed. og unnið þar vandlega af fjárhagsnefndum beggja deilda. Það var afgreitt frá n. í Ed., sem skilaði áliti í þrem nál., og það stóð til og var um það sammæli að afgreiða þetta mál út úr Ed. fyrir jól og átti ekkert að vera því til fyrirstöðu. Þá skeður það, að óskir koma fram um að afgreiða málið ekki þá. Þær óskir voru ekki síst frá frsm. Sjálfstfl. í fjhn. hv. Ed., Lárusi Jónssyni, — af eðlilegum ástæðum vegna þess að hann var mjög önnum kafinn við framsögu í fjárlagaumr. í Sþ. Við stjórnarsinnar virtum þennan vilja og þessar óskir og urðum við því að fresta 2. og 3. umr., sem átti að Ljúka fyrir jól í Ed., fram yfir áramót eða þangað til þing kæmi saman að nýju. Að sjálfsögðu var þá gengið út frá því og enginn ágreiningur um það, að málið yrði afgreitt strax á fyrsta eða öðrum degi út úr hv. Ed. þegar þing kæmi saman að nýju. Sú var líka ætlun hæstv. forseta Sþ. á fyrsta degi þingsins nú, mánudaginn 17. janúar, þá yrði málið afgreitt út úr þeirri deild við 2. og 3. umr. Þetta var hans vilji, sem hann hafði tjáð þm. Eftir beiðni stjórnarandstöðunnar veru felldir niður deildafundir á mánudag til þess að unnt væri að halda þingflokksfundi, sem menn töldu að þyrfti allan þennan tíma til.
Það er því enginn sérstakur samkomulagsvilji sem stjórnarandstaðan hefur sýnt með því að afgreiða málið svo í gær í Ed. Þetta var eftir að við höfðum gengið inn á þær óskir að fresta málinu fram yfir áramót og eftir að aftur hafði verið gengið inn á að fresta málinu á mánudaginn. Þá var þetta svo sjálfsagt mál að ekki þarf um það að tala. Og það eru ómakleg ummæli hjá þessum hv. þm. að saka mig um að hafa spillt einhverjum friði í þessu og ósatt.
Þessar umr. hér utan dagskrár hafa náttúrlega verið að því leyti óeðlilegar að hv, þm. hafa aðallega verið að ræða hér um efni þessa frv., sem nú er komið til umr., og ýmislegt í sambandi við það. Ætla ég að sjálfsögðu að taka megnið af þessum umr. inn í hinar eðlilegu umr. Það er eins og ég gat um áðan búið að ræða þetta mál svo rækilega undanfarna mánuði og það búið að fá svo ítarlega meðhöndlun í Ed. að ég get stytt mjög þessa framsögu. En ég vil áður en ég byrja á því þó aðeins bæta við einu.
Þegar talað er um að það sé ósanngirni í því að fallast ekki á ósk formanns þingflokks Sjálfstfl. um að fresta umr. nú frá miðvikudegi til mánudags, þá vil ég taka það fram að í morgun átti ég viðræður við þennan hv. þm. og ég spurði hann þá, ef orðið yrði við þessum óskum hans um að 1. umr. færi ekki fram fyrr en á mánudag, hvort hann væri þá tilbúinn að semja um það hvenær málinu yrði þá lokið með þeirra samþykki í hv. Nd. Hann var ekki tilbúinn að ræða um það mál. Þess vegna hlaut að mér að koma sá grunur að það væri fyrst og fremst til þess að tefja og trufla málið sem þessar óskir höfðu fram komið, enda hef ég, eins og ég hef tekið fram áður og þarf ekki að rökstyðja frekar, ekki heyrt eina einustu frambærilega ástæðu fyrir því að víkja frá því, sem í rauninni lengi hefur staðið til, að 1. umr. færi fram hér í dag eftir að lokið væri meðferðinni í hv. Ed. Þegar ákveðið var að afgreiða málið í gær í Ed. hafði ekki í þeim umr. heyrst eitt einasta orð um að nokkuð væn óeðlilegt við að taka málið til 1. umr. á miðvikudag, þ.e. í dag, hér í þessari hv. deild. (Gripið fram í.)
Þær ástæður eru færðar hér fram að ekki sé unnt að ná saman fundi í fjhn. fyrr en einhvern tíma eftir helgi. Þetta er ekki rétt, því ég hef upplýst það og það hefur ekki verið rengt að formaður fjhn., Halldór Ásgrímsson, hefur boðað fund á föstudagsmorgun og er tilbúinn að halda fund þá og þess vegna ekki sú ástæða til að fresta málinu.
Í þessu frv., sem hér liggur fyrir, er í 1. gr. um það fjallað og ákveðið að fella niður helming verðbóta á laun 1. desember miðað við þær verðbætur sem annars hefðu orðið á þeim degi. Í hv. Ed. eða í n. þeirri sem fjallaði um málið varð það að samkomulagi að breyta þar orðalagi, en það er engin efnisbreyting. Það orðalag, sem upphaflega var í frv., að fella niður helming verðbóta frá 1. des. var umorðað í samráði við sérfræðinga þá sem um þetta fjalla og töldu hið breytta orðalag tvímælalaust eftir þeirra skilningi og venjum. Til þess að fyrirbyggja misskilning, sem sýnilega kom upp þá, var þetta orðað þannig, að það skyldu vera þær verðbætur sem varða tímabilið 1. des. 1982 til 28. febr. 1983. Um þetta var alger samstaða, en engin efnisbreyting.
2. gr. frv. fjallar um sérstakar bætur sem greiða skuli til að bæta upp þennan tekjumissi.
3., 4. og 5. gr. fjalla um ýmis ákvæði varðandi gengismál og gengismun og til hvers honum skuli varið. 6. gr. frv. fjallar um verslunarálagningu. Var þar ákveðin hin svonefnda 30% regla, sem ekki þarf að skýra hér nánar.
7., 8., 9. og 10. gr. varða allar vörugjald, sumpart framlengingu á því vörugjaldi sem staðið hefur hér síðan 1975 og var sett það sumar með brbl., en síðan hefur verið framlengt frá ári til árs með nokkrum breytingum á prósentutölu. Ennfremur var með þessum greinum ákveðið að hækka vörugjald á tímabilinu 23. ágúst 1982 til 28. febrúar 1983 og var tilgangurinn með því tvenns konar, annars vegar að draga úr innflutningi og þar með viðskiptahalla og hins vegar að afla tekna vegna launabóta og húsnæðismála.
Í 10. gr. frv. er gerð tæknileg breyting á tollskrá, er varðar viðmiðun á gengi við tollafgreiðslu vara, og 11. gr. varðar samræmingu á verðbótahækkunum launa 1. sept. 1982, en áður hafði verið samið svo um milli verkalýðssamtaka og vinnuveitenda á almennum markaði að dregin skyldu frá verðbótahækkunum 1. des. 2.9% en til þess að þessi umsamda skerðing á verðbótum, sem um var samið á hinum almenna launamarkaði, næði jafnt til allra launamanna var þetta ákvæði sett í brbl.
Ástæðan til þess að þessi brbl. voru sett var í meginatriðum sú, að þjóðarbúið hafði orðið fyrir miklum áföllum frá því er gert hafði verið ráð fyrir þegar þjóðhagsspá var samin og þjóðhagsáætlun var til umr. hér á hv. þingi. Sú mikla breyting sem varð á s.l. ári í þjóðarbúskapnum þýddi það, m.a. vegna aflatregðu og aflabrests og heimskreppu, að horfur voru á og eru á 10% halla á viðskiptum við önnur lönd á árinu 1982, 5% samdrætti þjóðartekna á mann á því ári og vaxandi verðbólgu vegna þessara efnahagsörðugleika. Það var m.a. vitað að aflabresturinn, þ.e. bæði hvarf loðnunnar og samdráttur í þorskveiðum og óhentugri samsetning afla, hefur knúið á um miklu meiri gengisbreytingar á s.l. ári en ella hefðu orðið og þar með valdið nokkrum og verulegum hluta hinnar auknu verðbólgu.
Í yfirlýsingu ríkisstj., sem kemur fram í grg. þessa frv., sem ég þarf ekki að rekja hér frekar, er svo greint frá því hver helst séu markmið þau sem ríkisstj. hyggist vinna að með þessum brbl., eins og að draga verulega úr viðskiptahalla og reyna að treysta á þann veg undirstöður atvinnulífsins að unnt sé að tryggja næga vinnu og koma í veg fyrir atvinnuleysi, draga úr víxlgangi kaupgjalds og verðlags. Það er auðvitað ljóst að 1. gr. frv. hefur orðið til þess, en samkv. henni nam niðurfelling verðbóta á launum um 7.7%. Hún hefur orðið til þess að verðbólgan hefur ekki vaxið eins og hún hefði gert án aðgerða. Einnig hafa þessar aðgerðir átt sinn þátt í því að viðskiptahallinn hefur ekki orðið eins mikill og ella hefði orðið.
Ég skal með tilvísun til þess sem ég sagði áðan ekki rekja frekar efni þessa frv., en í umr., bæði nú og eins að sjálfsögðu þegar n. hefur fengið málið til meðferðar, verða auðvitað gefnar þær upplýsingar sem menn munu biðja um, ýmist í umr. eða í n., og legg ég til að frv. sé vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.