27.10.1982
Efri deild: 5. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (123)

41. mál, fóstureyðingar

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Ég flyt þetta frv. ásamt þm. Salome Þorkelsdóttur, Agli Jónssyni og Lárusi Jónssyni. Þetta frv. felur í sér að þrengd er heimild til fóstureyðinga. Samkv. gildandi lögum er fóstureyðing heimil af þrenns konar ástæðum, þ.e. í fyrsta lagi af félagslegum ástæðum, í öðru lagi af læknisfræðilegum ástæðum og í þriðja lagi ef konu hefur verið nauðgað eða hún orðið þunguð sem afleiðing af refsiverðu atferli.

Með frv. þessu er lagt til að fella niður að félagslegar ástæður geti heimilað fóstureyðingar. Af þessu leiðir aðrar breytingar sem frv. felur á sér.

Það er skoðun flm. að félagslegar ástæður eigi ekki að réttlæta fóstureyðingu. Í fyrsta lagi eru félagslegar ástæður ákaflega rúmt og teygjanlegt hugtak. Í öðru lagi á að bæta úr félagslegum ástæðum með öðrum hætti en að tortíma mannlegu lífi.

Í gildandi lögum er gert ráð fyrir að félagslegar ástæður heimili fóstureyðingu þegar ætla má, eins og það er orðað, „að þungun og tilkoma barns verði konunni og hennar nánustu of erfið vegna óviðráðanlegra félagslegra ástæðna“. Í lögunum er svo að finna leiðbeiningar um það, til hvers skuli tekið tillit við mat á því hvað er „of erfitt“ í þessu sambandi og hvað eru „óviðráðanlegar félagslegar ástæður“. Þar er tiltekið sem ástæða fyrir fóstureyðingum að konan hafi alið mörg börn með stuttu millibili og skammt sé frá síðasta barnsburði. Samkv. þessari reglu getur fóstureyðing verið heimil þó að heimilisástæður séu góðar og heilsufar gott á heimilinu. Ef barnið er ekki velkomið í heiminn af einhverjum ástæðum skal lífi þess tortímt ef óskað er. Þá er önnur leiðbeiningarreglan sú, að fóstureyðing geti verið heimil ef konan býr við „bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu“. Og þriðja leiðbeiningarreglan er sú, að fóstureyðing geti verið heimil „þegar konan getur ekki vegna æsku eða þroskaleysis annast barnið á fullnægjandi hátt“.

Tvær síðustu leiðbeiningarreglurnar byggjast vissulega á félagslegum ástæðum. Enginn neitar því að bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis á heimili eða þroskaleysi móður geti skapað félagslegt vandamál. En spurningin er, hvernig á að bregðast við þeim vanda. Það á ekki að gera með því að veita heimildir til fóstureyðingar. Félagslegan vanda á að leysa með félagslegum ráðstöfunum.

Með lögum nr. 25 frá 22. maí 1975 voru heimildir til fóstureyðingar rýmkaðar. Afleiðingarnar hafa ekki látið á sér standa. Fóstureyðingum hefur fjölgað ískyggilega. Skráðar fóstureyðingar hér á landi á hverjar 1 000 konur á aldrinum 15–49 ára voru árið 1965 1.8, árið 1970 2. 1, árið 1975 5.9, árið 1976 6.7, árið 1977 8.4, árið 1978 8.4 einnig og árið 1979 10.2. Á tímabilinu 1962–1970 voru skráðar 61–109 fóstureyðingar á ári. Á árinu 1975 eru fóstureyðingar 308, árið 1976 367, 1977 456, 1978 453 og 1979 563. Þetta er reynsla okkar af því að heimila fóstureyðingar af svokölluðum félagslegum ástæðum.

Þegar núgildandi lagaákvæði voru sett um fóstureyðingar árið 1975 bar 1. flm. þessa frv. fram brtt. við frv. að lögum þessum, þar sem lagt var til að fóstureyðingar yrðu ekki heimilaðar af félagslegum ástæðum. Brtt. náði ekki fram að ganga. Þessa brtt. hefur 1. flm. tekið upp á ný á þrem þingum í formi frumvarpa til laga sem voru samhljóða því sem hér er nú lagt fram. Þá hlutu frv. ekki afgreiðslu. Þess er nú freistað enn á ný að leggja málið fyrir Alþingi í trausti þess, að það nái nú fram að ganga.

Fyrir þrem árum bar hátt umræður um velferð barnsins. Þess var vænst að barnaár Sameinuðu þjóðanna yrði okkur einhver hvatning í þessu efni. Hvað hefði verið háleitari hugsjón en að þjóðin hefði sett sér á þessu barnaári það markmið að ekkert íslenskt barn væri óvelkomið í þennan heim af félagslegum ástæðum. En barnaárið leið án þess að til slíks kæmi. Í öllum umræðunum hér um velferð og rétt barnsins gleymdist helgasti rétturinn, rétturinn til lífsins. Hinir mörgu einstaklingar og félagasamtök, sem létu til sín heyra, véku ekki að því að létta á fargi fóstureyðinganna. Það var aðeins gert í lofsverðum undantekningartilfellum.

En þó það væri þagað þunnu hljóði hér á landi um þau grundvallarmannréttindi, sem rétturinn til lífsins er, þá var það síður en svo að slíkt gerðist hvarvetna annars staðar. Þannig var t.d. í tilefni barnaársins samþykki á þingi Evrópuráðsins 3. okt. það ár ítarleg ályktun um velferðarmál barnsins. Ályktun þessi kveður m.a. á um að vernda skuli rétt sérhvers barns til lífs frá því að getnaður á sér stað. Í ályktun þessari er skorað á ráðherranefnd Evrópuráðsins að hefjast þegar handa um gerð Evrópusáttmála um þau réttindi barnsins sem ályktunin fjallar um. Við Íslendingar erum aðilar að Evrópuráðinu svo sem kunnugt er. Okkur varðar því um hvað gerist á þeim vettvangi. Þetta frv. er því m.a. eðlilegt andsvar við því sem þar er að gerast.

Mörg fleiri dæmi mætti taka erlendis frá er sýna harðnandi andstóðu gegn fóstureyðingum og vissa tilhneigingu til að þrengja heimildir til að eyða fóstri. Þetta er ekki að ófyrirsynju. Þetta er vegna hinnar hörmulegu reynslu sem fengist hefur víða um lönd af frjálsum fóstureyðingum eða rúmum heimildum til fóstureyðinga.

Það var því fullkomin öfugþróun sem átti sér stað hér á landi með setningu laga nr. 25 frá 1975. Með frv. þessu er því lagt til að bregða á annað ráð. Það er lagt til að þrengja heimildir til fóstureyðinga. Frv. felur í sér að fóstureyðingar verði ekki heimilaðar af félagslegum ástæðum. Enginn neitar samt að félagsleg vandamál eru fyrir hendi. Bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis á heimili eða þroskaleysi móður, getur skapað félagslegt vandamál. En spurningin er, hvernig á að bregðast við þeim vanda. Það á ekki að gera með því að veita heimild til fóstureyðingar. Þjóðfélag, sem leyfir fóstureyðingar af félagslegum ástæðum, litur fram hjá hinum raunverulega vanda, sættir sig við óleyst vandamál. Félagslegur vandi verður ekki leystur nema með félagslegum ráðstöfunum.

Það vill svo til að í þessu landi búum við við víðtæka almenna tryggingalöggjöf og margs konar opinbera aðstoð í félagslegu tilliti. Við teljum okkur standa allframarlega í þessum efnum og erum stundum harla ánægð með það sem áunnist hefur á síðustu áratugum til lausnar hinum ýmsu félagslegu vandamálum. En satt er það, að mörgu er enn ábótavant og að ýmsu þarf að hyggja. Betur þarf að gera í málum barnshafandi kvenna, svo sem varðandi fæðingarorlof og mæðralaun. Barnaheimilum þarf að fjölga og bæta við vöggustofum, dagvistarheimilum og leikskólum. Það þarf að bæta félagslega þjónustu og ráðgjöf við barnshafandi konur svo að þær fái mætt tímabundnum erfiðleikum. Það þarf að beita almannavaldinu og samhjálp þjóðarinnar um land allt, jafnt í strjálbýli sem í þéttbýli, til aðstoðar við þá konu sem býr við slæmar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu, svo að barnið, sem hún gengur með, verði velkomið í þennan heim og góður aðbúnaður þess sé tryggður. Ekkert annað er til lausnar þeim vanda sem um er að ræða. En þetta kostar fjármagn. Samt eru það smámunir, sem ekki eru til að hafa orð á, samanborið við hið óbætanlega tjón, sem blóðfórnir fóstureyðinganna valda nú hinni fámennu íslensku þjóð, sem þarfnast mest af öllu fleiri handa til að halda uppi sjálfstæðri tilveru sinni.

Við Íslendingar vinnum skipulagsbundið á ýmsum sviðum til að forða slysum og bjarga mannslífum. Við teljum að einskis megi láta ófreistað í þessum efnum. Þá viljum við öllu til kosta og mannslífið aldrei metið til fjár. Þar sem við beitum okkur í þessu efni höfum við líka náð árangri. Samt sem áður teljum við aldrei nóg að gert meðan mannslíf glatast af slysförum. Við fyllumst hryggð og teljum þjóðarógæfu að missa mannslíf af þessum orsökum. Það hvílir sorg yfir sjóslysum og umferðarslysum. Á síðasta ári, árið 1981, fórust 17 manns í sjóslysum og drukknuðu og 27 manns glötuðu lífinu í umferðarslysum þetta sama ár hér á landi. Þessu höfum við orð á og teljum að enn verði að herða róðurinn til að forða slysum og bjarga mannslífum frá bana. Við látum hverja ógæfuna í umferðar- og sjóslysum verða okkur hvatningu til að gera betur til að vernda mannslífið. Við unum því ekki að á síðasta ári skulum við hafa misst 17 mannslíf í sjóslysum og drukknunum og 27 mannslíf í umferðarslysum.

En hver eru hins vegar viðbrögð okkar við að missa á einu ári 547 mannslíf í fóstureyðingum? Á síðasta ári, árinu 1981, voru framkvæmdar 547 fóstureyðingar hér á landi. Það er hljótt um þessar fórnir. Það fer lítið fyrir frásögnum eða fréttum af þessum voveiflegu staðreyndum. Samt hlýtur þetta að nísta hvern mann inn í merg og bein ef hann sinnir þessari hugsun. En hvað er gert til varnar þeim mannslífum sem hér er fórnað? Það fer lítið fyrir því. Hvað er gert til að bjarga mannslífum á þessum vettvangi? Það er horft aðgerðalaust á ástandið sem fer versnandi frá ári til árs. Er ekki kominn tími til aðgerða? Tíma sinnuleysis, áhugaleysis og aðgerðaleysis á nú að ljúka.

Íslendingar hafa sérstöðu í ýmsum efnum og svo er ekki síst að því er varðar áhrif fóstureyðinga á fólksfjölda í landinu. Í sumum löndum, og þá einkum þeim fjölmennustu, er fólksfjölgun eitt meginvandamálið sem við er að glíma. Fólkinu fjölgar þar um of miðað við efnahag, félagslegar aðstæður, náttúruauðlindir og hagnýtingu þeirra til mannsæmandi lífskjara, jafnvel þótt takmarkaðar kröfur séu til lífsins gerðar. Áhrif fóstureyðinga á fólksfjölda í slíkum ríkjum eru oft sett í samband við offjölgunarvandamál, sem þar er við að stríða, þótt það breyti engu um eðli þess verknaðar sem felst í fóstureyðingum. Hins vegar er þessu þveröfugt farið hjá okkur Íslendingum. Áhrif fóstureyðinga hér á landi á fólksfjöldann hljóta að vera mikið alvörumál.

Íslenska þjóðin hefur því sögulega hlutverki að gegna að halda uppi í þessu landi sjálfstæðu ríki með öllu sem því fylgir. Í þessu efni höfum við sérstöðu vegna fámennis þjóðarinnar. Okkur finnst þetta sjálfsagt og eðlilegt og getum ekki hugsað okkur annað en að halda okkar sjálfstæðu tilveru. En það hljóta samt að vera takmörk fyrir því hvað fámennið leyfir. Einhvers staðar eru takmörkin fyrir því, hve margar hendur þarf til að geta haldið uppi sjálfstæðu ríki og hagnýtingu auðlinda okkar til lands og sjávar. Ef farið er niður fyrir þessi mörk er í húfi að þjóðin megni að halda uppi sjálfstæðu ríki með þeim skyldum sem því fylgja. Það er í húfi að þjóðinni haldist á hinum miklu auðlindum sínum, ef hún hefur ekki bolmagn til að hagnýta þær í þurfandi heimi. Sjálf tilvera hinnar íslensku þjóðar er þá í húfi. Að þessu er skylt að huga þegar rætt er um áhrif fóstureyðinga hér á landi á fólksfjölda þjóðarinnar.

En hvað sem þessu líður, svo alvarlegt sem það er fyrir þjóðarheildina, varðar frv. þetta fyrst og fremst einstaklinginn, siðferðilega afstöðu og lífsskoðun. Hér er gengið út frá að fétagslegar ástæður geti aldrei réttlætt fóstureyðingu. Þetta leiðir af því, að það er um mannslíf að tefla þegar rætt er um eyðingu fósturs. Það er grundvallaratriði, að þetta mannslíf hefur rétt til þess að vera borið í þennan heim. Réttinn til lífsins verður að viðurkenna. Það er siðferðileg skylda að varðveita líf, jafnvel líf ófædds barns. Fóstureyðing á því ekki að koma til greina nema líf móður sé í fyrirsjáanlegri hættu, eða telja megi auðsætt að barnið verði svo vangefið að ekki verði komist hjá að gripa til örþrifaráða, eða konan hafi orðið þunguð af refsiverðu atferli. Það er á þessum forsendum sem frv. þetta er flutt.

En fóstureyðingar eru ekki einungis brot á rétti hins veika og varnarlausa mannlega lífs í móðurkviði. Þær fela í sér hættuna á þjóðfélagslegri upplausn. Ef þjóðfélagið viðurkennir að fólk geti notið hamingju, ánægju og unaðar, en það þurfi ekki að bera afleiðingarnar ef það vill það ekki, þá er það sama þjóðfélag að kippa stoðunum undan sjálfu sér og stefnir til hruns. Þá duga ekki jafnvel félagslegar ráðstafanir. Þá getur til þess komið að jafnvel eigin geðþótti og makræðissjónarmið ráði því, hvort mannlegu lífi er tortímt eða ekki. Fjárhagur og félagsleg aðstoð verður þá aldrei einhlít vörn í þeim vanda, því að það er ekki einungis um félagslegt vandamál að ræða, heldur siðrænt vandamál. Til þarf að koma lífs- og manngildismat á siðferðilegum grunni.

Oft liggur leiðin til varanlegrar hamingju í gegnum andstreymi, að ófríska konan ali barn sitt og lifi með því og fyrir það. Þau eru óteljandi dæmin um börn, sem hafa fengið góða umönnun og gott veganesti út í lífið, þótt efni hafi verið af skornum skammti. Jafnvel ríkidæmi er engin trygging fyrir því að aðhlynning og uppeldi fari vel úr hendi.

Það verður að byggja á því lífs- og manngildismati sem er undirstaða íslenskrar menningar og arfleifðar. Samkvæmt því mati er rétturinn til lífs undirstaða allra annarra mannréttinda. Það er aftan úr grárri forneskju að ætla af félagslegum ástæðum að breyta hér nokkru um. Langt er nú liðið síðan aflagður var sá siður að heimila barnaútburð hér á landi. En barnaútburðurinn var heimilaður af félagslegum ástæðum þeirra tíma, ómegð, fæðuskorti og öðrum framfærsluvandamálum. Ef fóstureyðing hefði á þeim tíma verið framkvæmanleg með sama hætti og nú hefði sú aðferð vafalaust verið notuð í stað barnaútburðar. Það var nefnilega ekki sama hve lífið hafði langt fram gengið þegar því var tortímt. Samkvæmt Grágás var ekki heimilt að bera út barn eftir að það hafði fengið næringu. Þá hét það morð og varðaði við lög. En verknaðurinn var heimill og löglegur ef barnið hafði ekki fengið næringu. Okkur finnst slík lög og reglur nú víðs fjarri. En árið 1975 setjum við samt lög, sem heimila að mannlegu lífi sé tortímt af félagslegum ástæðum, og um lögmæti þess fari eftir því hvað þroska þessa lífs sé langt komið. Hér var stigið spor um langan veg aftur á bak, því að félagslegar aðstæður eiga aldrei að geta heimilað tortímingu mannlegs lífs, á hvaða þroskastigi sem það er.

Kristilegar siðgæðishugmyndir leiddu til afnáms hins forna siðar um tortímingu mannlegs lífs af félagslegum ástæðum. Síðan hefur þjóðin á löngum ferli við harðæri og áþján megnað að halda í heiðri þau lífsviðhorf sem liggja þessu til grundvallar. Það væri kaldhæðni örlaganna ef þjóðinni ætti ekki að takast þetta á mestu velmegunar- og velgengnistímum sem hún hefur búið við.

Með frv. þessu er þess freistað að svo megi verða.

Ég gat þess áðan að frv. þetta er nú endurflutt. Ég gat þess að ég hefði áður verið einn um hituna sem flm. Ég gat þess einnig í upphafi að nú værum við flm. fjórir. Mér þykir ákaflega mikilvægt að nú skuli svo vera komið, að ég er ekki lengur einn flm. að þessu frv., heldur hefur nú komið vaskt lið til aðstoðar og til baráttu í þessu mikilvæga máli. Ég hef ástæðu til þess að ætla að það sé ekki einungis innan veggja þessarar hv. deildar sem í ljós kemur aukið fylgi og baráttuvilji fyrir því máli sem hér er flutt. Ég hef ríka ástæðu til þess að ætla að það sé á vissan hátt spegilmynd af þeirri þróun sem er að gerast úti í þjóðlífinu. Ég tel engan vafa á því að það séu alltaf fleiri og fleiri sem eru að gera sér ljóst hvílík óhæfa það er að ætla sér að leysa svokölluð félagsleg vandamál með fóstureyðingum. Ég hef ástæðu til þess að ætla að um leið og æ fleira og fleira fólk gerir sér grein fyrir þessu, þá sé líka æ fleira og fleira fólk þess albúið að berjast fyrir þessum málstað og leiða hann til sigurs.

Þegar ég hef þetta allt í huga, þá leyfi ég mér, herra forseti, að vænta þess að þetta frv. fái nú afgreiðslu á því þingi sem við nú sitjum. Það er sannarlega kominn tími til þess að hv. alþm. láti af því sinnuleysi, áhugaleysi og aðgerðarleysi sem um of hefur einkennt í þessu máli. Herra forseti. Ég vil leyfa mér að lokinni þessari umr. að óska þess, að frv. verði vísað til hv. heilbr.- og trn.