27.10.1982
Efri deild: 5. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (125)

41. mál, fóstureyðingar

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Ég get verið stuttorður. Ég tel það frv., sem nú liggur fyrir um breytingar á lögum um fóstureyðingar, þannig vaxið, að ekki komi til greina að samþykkja það. Mér finnst allt of fortakslaust að fella niður það ákvæði, er kveður á um félagslegar aðstæður, því að við vitum að það sem til greina kemur í svona málum er meira en læknisfræðilegar ástæður og meira en það hvort konu hafi verið nauðgað.

Ég tel að þeir sem vilja fella niður félagslegar ástæður geri sér vart grein fyrir því hve félagslegar ástæður geta stundum verið nöturlegar og hversu mikill ábyrgðarhluti það er að þvinga konu til að eiga barn sem hún vill ekki eiga eða aðstæðnanna vegna á mjög erfitt með að eiga. Ég tel að grundvallarafriðið eigi að vera það að konan ráði því sjálf hvort af þessu verður eða ekki, en það þarf og að vera í lagi að ráðgjöf samkv. lögum sé rækt, að henni sé sinnt. Ég leyfi mér að efast um að svo sé gert í dag. Því þarf að breyta. Ég lýsi áhyggjum mínum af því hversu fóstureyðingum hefur fjölgað. Annaðhvort er það vegna þess að félagslegar ástæður hafa orðið verri eða þá að of frjálslega er farið með þessa hluti. Sýnist mér að viturlegra væri að fara ofan í það, kanna hvort þau ákvæði laganna er fjalla um ráðgjöf séu ræki sem skyldi.

Það heyrist í útlandinu, kannske mest hjá félagslega vanþróuðum ríkjum, að banna eigi fóstureyðingar. Kirkjan hefur fjallað mikið um þetta, þ.e. kaþólska kirkjan, en hún er þekkt fyrir annað en frjálslyndi og fyrir annað en að setja félagslegar þarfir fólks í öndvegi.

Ég get aftur á móti samþykkt það frv. sem fjallar um að breyta lögum um almannatryggingar svo að árleg mæðralaun hækki og reynt sé með auknu fjármagni að gera félagslegar aðstæður betri. Ég held þó að slíkar ráðstafanir muni ekki nægja, en það mun kannske verða spor í rétta átt.

Ég tek undir það, að ég virði skoðanir þeirra sem eru andvígir þeim lögum sem nú gilda og ber virðingu fyrir þeirra tali um mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. En ég hygg að menn geri sér ekki grein fyrir því hversu mikil ábyrgð fylgir því að neyða konu til að eiga barn, sem hún á e.t.v. mjög erfitt með að eiga vegna félagslegra ástæðna. Þær geta verið verri en nokkrar læknisfræðilegar ástæður, verri en nokkuð annað.