24.01.1983
Neðri deild: 27. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1486 í B-deild Alþingistíðinda. (1257)

85. mál, efnahagsaðgerðir

Forseti (Alexander Stefánsson):

Það er stefnt að því að ljúka umr. um málið í dag og koma því til nefndar. Það má því gera ráð fyrir því að halda þurfi áfram fundum í kvöld. Fundi verður frestað núna kl. 4 vegna þingflokksfunda og gert ráð fyrir að fundur hefjist aftur kl. 6 og, ef með þarf, verði fundi aftur frestað fram yfir kvöldmat og haldinn kvöldfundur.

Til máls tekur hv. 3. þm. Vestf. og vil ég taka fram að hann getur frestað ræðu sinni kl. 4.