25.01.1983
Sameinað þing: 41. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1528 í B-deild Alþingistíðinda. (1287)

47. mál, ráðunautur í öryggis- og varnarmálum

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Hæstv. félmrh. og formaður Alþb. flutti hér langa tölu áðan og var mikið niðri fyrir. Auðheyrt var að það sem sagt hafði verið úr þessum ræðustóli hafði snert hann, haft þau áhrif að honum svall móður í brjósti. Það var eitt atriði í ræðu hæstv. félmrh. og formanns Alþb. sem ástæða er til að víkja hér sérstaklega að.

Hann lét svo ummælt að fyrrv. utanrrh. Guðmundur Í. Guðmundsson hefði viðurkennt að hafa tekið sæti í vinstri stjórninni til þess eins að geta þar setið á svikráðum við samráðherra sína. Nú hika ég ekki við að fullyrða og tel mig raunar vita að svona hafi Guðmundur Í. Guðmundsson aldrei tekið til orða. Þess vegna fullyrði ég að þessi ásökun hæstv. félmrh. er röng. Guðmundur Í. Guðmundsson sagði ekki þau orð sem formaður Alþb. lagði honum í munn hér áðan. Þess vegna skora ég á hæstv. ráðh. að finna orðum sínum stað, greina frá því hvar þessi ummæli er að finna og hvenær þau voru sögð. Auðvitað hljótum við, sem hér höfum hlýtt á umr., að draga þá ályktun að hann hafi vitnað orðrétt til þess sem utanrrh. hafi sagt.

Það er alvarlegur hlutur ef ráðh. í ríkisstjórn Íslands leggur mönnum orð í munn með þeim hætti sem hæstv. félmrh. gerði hér áðan og það reynist síðan vera staðlausir stafir og ekki hafa við nein rök að styðjast. Ég er sannfærður um að Guðmundur Í. Guðmundsson hefur ekki látið þau orð falla sem hæstv. félmrh. lagði honum í munn. Það má vera að hann hafi talað í þá veru að hann hafi tekið sæti í þessari ríkisstj. til að hyggja sérstaklega að þessum viðkvæmu málum. En að hann hafi sagt að hann ætlaði sér að taka sæti í þessari ríkisstj. til að sitja þar á svikráðum við samráðherra sína, það held ég að sé alrangt. Ég trúi því að það sé alrangt meðan hæstv. félmrh. finnur ekki orðum sínum stað, segir þingheimi hvenær þau voru sögð, við hvaða tækifæri og hvar þau sé að finna.