25.01.1983
Sameinað þing: 41. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (1294)
87. mál, málefni El Salvador
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fylgja afstöðu okkar Alþb.-manna úr hlaði með langri ræðu að þessu sinni. Ég gerði nokkra grein fyrir mátefnum El Salvador á síðasta þingi og hv. flm. hefur gert það hér nú.
Við vitum að í Suður-Ameríku er nú herforingjaeinræði í Argentínu, Chile, Uruguay, Bolivíu, Honduras, Guatemala og EI Salvador — ógnarstjórnir sem njóta fulltingis og efnahagsaðstoðar Bandaríkjastjórnar og bandarískra auðhringa.
Herforingjaklíkurnar hafa stjórnað El Salvador hver af annarri frá 1931, þegar síðasta kjörna forsetanum var steypt af stóli. Farabundo Marti, sem þjóðfrelsishreyfingin í El Salvador er kennd við, var myrtur 1932 ásamt þúsundum annarra landsmanna og síðan hefur landinu verið stjórnað af leppstjórnum erlendra ríkja.
EI Salvador er land þjakað af fátækt og þjóðfélagslegu misrétti, menntunarskorti og hörmungum. Á sama tíma samþykkir bandaríska þingið ár eftir ár gífurlegt fjármagn til þess að leppstjórnir þeirra geti viðhaldið þessu ástandi með hervaldi, misþyrmingum og morðum, eins og hér hefur verið lýst.
Öllum siðmenntuðum þjóðum ber að beita sér fyrir því að Bandaríkin láti nú þegar af þessari fjárhagsaðstoð við núverandi svokallaða ríkisstjórn í EI Salvador. Fyrr ná stríðandi öfl í landinu ekki saman um friðsamlega lausn.
Þingflokkur Alþb. lýsir því yfir eindregnum stuðningi við framkomna till. hv. þm. Alþfl. og skorar á Alþingi að sjá til þess að hún verði afgreidd á þessu þingi. Umr. (atkvgr.) frestað.