27.10.1982
Neðri deild: 5. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (132)
29. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til l. um framlengingu á svokölluðu sjúkratryggingargjaldi. Frv. gerir ráð fyrir því að á næsta ári verði gjaldstofn sjúkratryggingagjalds 153 900 kr. og af þeirri upphæð greiðist 2%, en ekkert af því sem er þar fyrir neðan.
Í ár er álagning sjúkratryggingargjalds 56,2 millj. kr. og er gert ráð fyrir að þar af innheimtist 51 millj. kr. Samkv. frv. mundi sjúkratryggingagjald 1983 gefa 80 millj. kr. í innheimtu, en álagning næmi 85 millj. kr. Hér er um að ræða frv. um breytingu á lögum um almannatryggingar, en að sjálfsögðu er hér í rauninni um að ræða skatt. Þau ár sem ég hef farið með heilbr.- og trmrn. hefur þessu máli yfirleitt verið vísað til fjh.- og viðskn. Ég legg til, herra forseti, að svo verði gert nú og til 2. umr.