26.01.1983
Neðri deild: 28. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)
166. mál, hreppstjórar
Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Frv. það sem hér er til umr. lýtur að breytingum á lögum um hreppstjóra frá 26. apríl 1965. Frv. er í samræmi við tillögur starfshóps er skipaður var í nóvember 1980 og falið það verkefni að endurskoða ákvæði um starfskjör og skipan hreppstjóra. Í áliti starfshópsins sem fylgir frv. þessu er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um sögu hreppstjórastarfsins, lagaákvæði sem tengjast störfum hreppstjóra og reglur er gilt hafa um launagreiðslur þeirra og upplýsingar og ábendingar frá sýslumönnum landsins.
Hreppstjórastarfið er eitt hið elsta opinbera starf hér á landi sem á rætur að rekja til starfs hreppstjórnarmanna Jónsbókar. Framan af fóru hreppstjórar fyrst og fremst með sveitastjórnarstörf, fljótlega skipuðust mál þó þannig, að þeir fóru einnig — og síðar í auknum mæli — með ýmiss konar umboðsstörf í umboði sýslumanna. Með breyttri skipan sveitarstjórnarmála frá 1872 hafa störf hreppstjóra eingöngu verið á vettvangi stjórnsýslu ríkisins.
Hér skal getið um helstu nýmæli frv. Hreppstjórum er samkv. því gert að hlíta almennum reglum um aldurshámark, þ.e. miðað er við 70 ára aldursmarkið. Samkv. könnun, sem gerð var á s.l. ári, voru 46 starfandi hreppstjórar eldri en 70 ára.
Reglum um útreikning launa er breytt á þann veg að laun ákvarðast sem ákveðinn hundraðshluti af launum almennra lögreglumanna, samkv. launaflokki sem fjmrh. ákveður nánar. Launin miðast að nokkru leyti við íbúatölu í viðkomandi hreppi, á bilinu 100–500 íbúar. Hreppstjórar í hreppum með 500 íbúa eða fleiri fá þó sömu laun.
Samkv. gildandi lögum taka hreppstjórar laun í hlutfalli við íbúatölu viðkomandi hrepps. Umfang hreppstjórastarfsins fer ekki ætíð eftir fólksfjölda í hreppunum. ýmis önnur atriði eru þar ráðandi. Í þeim hreppum sem hin fastákveðnu laun hrökkva eigi fyrir áætluðu vinnuframlagi hreppstjóra getur dómsmrh. samkv. 2. gr. ákveðið, að fengnum tillögum sýslumanns, að greiða þeim viðbótarlaun. Ætti þetta ákvæði að vera til hagræðis.
Í hreppum er liggja fjarri sýsluskrifstofum og þar sem útgerð er talsverð er lögskráning sjómanna nokkurt starf. Í afskekktum hreppum getur verið hagkvæmt að fela hreppstjóra innheimtu þinggjalda og önnur umboðsstörf.
Samkv. athugun er gerð var á síðasta ári námu greidd hreppstjóralaun í landinu 19.7 ársstöðugildum samkv. launum eftir 12. launaflokki BSRB, 3. þrepi. Eftir reglum frv. hefðu heildarlaun hreppstjóra numið 18.4 ársstöðugildum. Er því í raun verið að lækka heildarlaun hreppstjóra um 1.3 ársstöðugildi. Þar á móti kemur að ekki er áættað fyrir viðbótarlaunum fyrir hreppstjóra er gegna umfangsmiklum störfum.
Í frv. er ákvæði um að lífeyrissjóðsréttindi hreppstjóra fari eftir reglum er fjmrh. setur. Einnig er að finna ákvæði um hvernig fari um greiðstu útlagðs kostnaðar.
Svo sem fram kemur í áliti starfshópsins hafa störf hreppstjóra víða hin síðari ár farið minnkandi. Þeir gegna þó enn mikilvægum störfum í stjórnkerfi ríkisins og er því lögð áhersla á að launagreiðslur til þeirra séu í sem bestu samræmi við það vinnuframlag sem þeir inna af hendi. Er til þess ætlast að ákvæði frv. tryggi það.
Herra forseti. Ég legg til að frv. þessu verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.