27.01.1983
Sameinað þing: 42. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1575 í B-deild Alþingistíðinda. (1338)
91. mál, hvalveiðibann
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Með þessu máli er hreyft mjög viðkvæmu efni að ýmsu leyti, sem mikið hefur verið til umræðu upp á síðkastið og við í sjútvrn. höfum lagt mikla vinnu í að skoða og upplýsa. Hef ég reyndar, eins og kom fram í ræðu hv. flm., látið dreifa hér á Alþingi allítarlegum gögnum um þetta mál. Hef ég látið útbýta skýrslu frá Hafrannsóknastofnun um ástand hvalastofnsins við Íslandsstrendur. Upplýsingar um Hval hf. og mikilvægi þeirrar starfsemi fyrir íslenskan þjóðarbúskap hafa einnig legið fyrir og verið dreift, en auk þess almennu yfirliti frá sjútvrn. um hvalveiðar. Ég skal, eins og hv. flm., ekki lengja þessar umr. um of með því að rekja allt þetta. Þetta kemur, vona ég, greinilega fram.
Menn munu sjá af skýrslum Hafrannsóknastofnunar, að hún telur að hvalastofninn hér sé ekki í hættu. Menn munu einnig sjá af skýrslu um vinnslu á hval, að hér er um mikilvæga grein í okkar atvinnulífi að ræða. Reyndar mikilvægari en kemur fram í þeirri skýrslu, því að þar er ekki fjallað um hrefnuveiðar, sem eru stundaðar á nokkrum stöðum hér á landi.
Alþjóðahvalveiðiráðið var stofnað fyrir allmörgum árum af ríkjum sem hvalveiðar stunduðu. Það var stofnað í þeim tilgangi að koma þeim veiðum á skynsamlegri grundvöll en áður var og ekki síst til að efla vísindastarfsemi á þessu sviði þannig að stunda mætti veiðarnar á vísindalegum grundvelli. Við Íslendingar höfum tekið virkan þátt í þessari starfsemi. M.a. áttum við formann Alþjóðahvalveiðiráðsins um allmörg ár. Ég vil taka undir það, sem kom fram hjá hv. frsm., að okkar menn þar hafa, að mínu mati, unnið algerlega á málefnalegum grundvelli og lagt mjög mikla áherslu á að efla vísindastarfsemi þannig að grundvöllur tillagna vísindanefndarinnar, sem með Alþjóðahvalveiðiráðinu starfar, gæti orðið sem öruggastur. Um þetta hafa fulltrúar Íslands ætíð haft fyrirmæli. Ég hef að sjálfsögðu, meðan ég er í þessu starfi, fylgst með vinnu þeirra þar og er sannfærður um að því hefur verið fylgt. Hitt er svo annað mál, að vísindanefndin hefur stundum verið ósammála og t.d. hafa verið deilur um hvernig á að meta hvalastofninn. Ég get getið þess hér, að fyrir síðasta fund lögðu íslenskir vísindamenn fram gögn, þar sem þeir vefengja mjög þá formúlu, ef ég má kalla það svo, sem hefur verið notuð til að meta styrkleika einstakra stofna. Tel ég hana reyndar þannig, að hún meti hættuna miklu meiri en hún er.
En það hafa orðið verulegar breytingar innan Alþjóðahvalveiðiráðsins á undanförnum árum. Stöðugt hefur fjölgað þeim þjóðum sem hafa sótt um og fengið inngöngu — ekki sem hvalveiðiþjóðir heldur fyrst og fremst sem andstæðingar hvalveiða og reyndar í mjög mörgum tilfellum þjóðir sem hafa engra efnalegra hagsmuna að gæta í þessu sambandi. Á síðasta fundi voru þjóðirnar orðnar 38. Þar af gengu 8 í ráðið á árinu 1982, en eitt ríki gekk úr, og engin þessara þjóða hefur gegn hvalveiðibanni. 1576 hvalveiðar sem atvinnugrein.
Reglur ráðsins eru þær, að banna má hvalveiðar ef slík tillaga hlýtur 3/4 atkv. Hins vegar geta aðildarlöndin mótmælt slíkri samþykkt og er þá það ríki ekki bundið af samþykktinni.
Á ársfundinum 1982 fékk tillaga, sem legið hefur fyrir ráðinu nokkur ár, um allsherjarbann tilskilda 3/4 hluta atkv. Það voru 25 þjóðir sem greiddu atkv. með slíkri tillögu, en 7 voru á móti og voru Íslendingar í þeim hópi. Í þeirri till. er gert ráð fyrir að banna allar úthafsveiðar 1985 og veiðar frá strandstöðvum eftir áramótin 1985/86.
Ég vil geta þess í þessu sambandi, að árið áður voru samþykktar tillögur í ráðinu í fyrsta lagi um bann við búrhvalveiðum og í öðru lagi um bann við notkun á köldum skutli við hrefnuveiðar. Við Íslendingar mótmæltum banni við notkun á köldum skutli, þótt við tökum mjög ákveðið undir að leita þarf betri leiða. Kem ég áð því síðar. Hins vegar mótmæltum við ekki búrhvalsbanninu, vegna þess að til eru þeir vísindamenn í vísindanefndinni sem töldu að um ofveiði á búrhveli kynni að vera að ræða. Er það, vil ég leyfa mér að segja, nokkuð táknrænt fyrir það, að við höfum ekki viljað ganga gegn niðurstöðum vísindamanna, jafnvel þótt þær væru ekki studdar af meiri hluta vísindamannanna. Við erum hér nú að ræða bann við veiðum á langreyði og sandreyði sem falla þá undir þetta allsherjarbann.
Innan fyrstu 90 daganna mótmæltu fjögur ríki, þ.e. Noregur, Japan, Sovétríkin og Perú, en reglurnar eru jafnframt þær, að mótmæli einhver framlengist tíminn til mótmæla um aðra 90 daga. Þetta annað tímabil rennur út 2. febr. n.k.
Eins og mönnum er kunnugt hafa hvalveiðar dregist mjög saman. Fjölmargir hvalastofnar, sem voru stórir áður, hafa verið ofveiddir. Á því er enginn vafi. Hefur verið mjög nauðsynlegt að friða þá. Hefur verið mjög dregið úr öllum hvalveiðum, þannig að það eru aðeins níu lönd í heiminum sem stundað hafa hvalveiðar síðustu árin. Eitt af þessum löndum hefur hætt, þ.e. Spánn, og stóð að tillögunni um bann á síðasta fundi. Er jafnframt talið mjög líklegt að á næstu árum munu fleiri ríki hætta hvalveiðum, eins og t.d. Norður-Kórea og Brasilía. Hins vegar hefur andstaðan gegn hvatveiðum mjög aukist upp á síðkastið. Er þess skemmst að minnast, að bann við hvalveiðum var samþykkt á heljarmikilli friðunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Stokkhólmi fyrir örfáum árum, ég held 1973. Þar tókum við Íslendingar þátt í atkvgr. Má því viðurkenna að við höfum ekki verið alveg sjálfum okkur samkvæmir. En þó hefur mest borið á ýmiss konar alþjóðasamtökum sem upp hafa risið í mörgum löndum, ekki síst í Bandaríkjunum, og sum eru reyndar alþjóðleg, sem hafa barist gegn hvalveiðum af miklum tilfinningahita.
Í þessu máti hafa gengið rök með og á móti og er óþarft að rekja það í mörgum orðum. Rökin á móti hvalveiðum eru þau, að um útrýmingarhættu sé að ræða. Ég hef komið inn á það nokkuð og ég tel alls ekki nægilega vel rökstutt. Rökin með hvalveiðum eru hins vegar þau, að ekki sé um slíka hættu að ræða og nýta beri hvalastofninn eins og önnur dýr þessarar plánetu okkar, en hins vegar undir ströngu vísindalegu eftirliti og gæta þess að ekki sé farið of langt. Það eru einnig rök í þessu sambandi að vera þarf visst jafnvægi í náttúrunni. Við höfum þess dæmi að jafnvægisleysi skapast þegar um algera friðun á einum stofni er að ræða, en annar er hins vegar nýttur. Við sjáum þetta t.d. í sambandi við selveiðar. Sel fjölgar gífurlega mikið, eftir að sala á selskinnum hefur nánast dottið niður, og veldur það t.d. okkur Íslendingum verulegum og vaxandi búsifjum.
Sjútvrn. hafa að sjálfsögðu borist mörg erindi um þessi mál og með þeirri skýrslu, sem ég hef látið dreifa hér, hef ég jafnframt látið dreifa ýmsum þessum erindum. Ég vil taka það fram, að þarna er alls ekki öllu dreift. Það er mikill bunki af bréfum og slíku, stundum svo skiptir tugum, sem berst til sjútvrn. í viku hverri frá skólabörnum í Bandaríkjunum. Sé ég alls ekki ástæðu til að birta allt slíkt. Auk þess eru ýmsar marktækar álitsgerðir, sem ekki eru hér með, en þeirra er getið nokkuð í lokaorðum þessarar skýrslu. Það eru í fyrsta lagi hreppsnefndir, eins og t.d. Barðastrandarhrepps, verkalýðsfélagið Hörður sunnan Skarðsheiðar, starfsmenn Hvals hf., skipstjórar á hrefnuveiðibátum o.s.frv. sem hafa lagt mjög eindregið til að banninu verði mótmælt. Jafnframt hafa ákveðin samtök gert till. um að fallist verði á þetta bann. Þar má nefna Náttúruverndaráð og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Ég vil vekja athygli í þessu sambandi á því, að í ályktun Náttúruverndarráðs segir svo, með leyfi hæstv. forseta, í niðurstöðum:
„Tímabundin stöðvun hvalveiða hér á landi er ekki líffræðileg nauðsyn“. - Ég legg áherslu á þetta. — „er ekki líffræðileg nauðsyn, heldur ákvörðun sem byggir á stjórnmálalegum og menningarlegum viðhorfum.“ M.ö.o. telur Náttúruverndarráð ekki að hvalastofninn sem við nýtum sé í hættu.
Ég vil jafnframt geta þess, að í ályktun Landverndar, sem ekki er birt hér með, en gengur mjög í svipaða átt, kemur fram nokkur misskilningur, þar sem Landvernd leggur til, með leyfi forseta:
„Aðalfundur Landverndar 1982 bendir á að þar sem ákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðsins um stöðvun hvalveiða frá árinu 1986 er m.a. byggð á þeim niðurstöðum vísinda- og tækninefndar ráðsins að búrhvala- og langreyðarstofnar í Norður-Atlantshafinu séu ofnýttir“ o.s.frv.
Lagt er til að fallist sé á þetta. Þarna er misskilningur. Það er rétt að nokkrir vísindamenn hafa talið búrhvalastofninn ofveiddan, en langflestir vísindamanna hafa ekki talið langreyðarstofninn ofnýttan, og enginn sem við þekkjum hefur haldið því fram að hann væri í eyðingarhættu.
Sama kemur fram í samþykkt Sambands dýraverndunarfélaga Íslands, þar sem lagt er til að hválveiðum verði hætt til að forðast útrýmingu hvala. Það er að sjálfsögðu ekkert síður markmið stjórnvalda og þeirra sem hvalveiðar stunda en dýraverndarsamtakanna að forðast slíkt.
Eins og ég sagði áðan hef ég reynt að gera mér eins glögga grein fyrir þessu máli og hægt er. Mér er ljóst að þarna eru bæði rök sem mæla með mótmælum og önnur sem mæla með því að ekki verði mótmælt. Ég átti m.a. fund með sjútvrh. Noregs um málið þegar þeir voru að móta sína afstöðu. Norðmenn veiða um 2000 dýr, hrefnu eingöngu. Norðmenn ákváðu að mótmæla eftir mjög ítarlega athugun á málinu. Þeir sendu m.a. menn til Bandaríkjanna, sem áttu þar ítarlegar viðræður við gegn hvalveiðibanni. 1578 stjórnvöld, samtök, þm. o.fl., og lögðu eftir slíka ferð til að Norðmenn mótmæltu þessu banni.
Ég hef einnig átt ítarlegar viðræður við bandaríska sendiherrann um þessi mál. Það er að minni ósk að hann lætur í ljós álit sitt, að athuguðu máli, á þessu með bréfi dags. 2. nóv. s.l. Þar er rakið til hvaða aðgerða megi grípa samkv. amerískum lögum. Í lögum þar eru tvær heimildir:
Önnur heimilar stjórnvöldum þar að takmarka innflutning á sjávarafurðum frá þeim löndum sem ekki hlíta verndunaraðgerðum Alþjóðahvalveiðiráðsins, en að vísu þarf það að vera í samræmi við reglur Alþjóðatollastofnunarinnar, GATT. Ég get getið þess hér, að Norðmenn töldu að vel athuguðu máli að slíkar takmarkanir gætu aldrei samræmst reglum Alþjóðatollastofnunarinnar.
Hin heimildin er annars eðlis. Hún heimilar Bandaríkjastjórn að afturkalla veiðileyfi sem kunna að hafa verið veitt erlendum ríkjum sem ekki hlýða slíkri samþykkt sem hér um ræðir. Það kemur okkur að sjálfsögðu ekki við. Við höfum engar slíkar veiðiheimildir í bandarískri fiskveiðilögsögu.
Ég vil geta þess, að hingað til lands kom, eftir að ég hafði rætt við sendiherrann, maður frá Bandaríkjunum sérfróður í þessum aðgerðum. Ég átti ítarlegt viðtal við hann. Ameríska sendiráðið hefur því veitt mjög mikilvægar upplýsingar í þessu sambandi.
Ég held ég megi segja að það sé nokkuð samdóma álit þeirra sem þessi mál hafa skoðað, að þær hættur, sem mótmælum kunna að fylgja, stafi ekki af opinberum aðgerðum, heldur öllu fremur af hugsanlegum aðgerðum þrýstihópa í Bandaríkjunum, sem eru nefndir í þessum gögnum allmargir. Þeir virðast hafa mikil fjárráð og starfa ötullega. Þetta kemur m.a. fram í samþykkt Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem telur að slíkir þrýstihópar kunni að taka upp mótmæli gegn neyslu á íslenskum fiski í veitingahúsum þar sem íslenskur fiskur er auglýstur sem 1. flokks gæðavara. Sérstaklega hefur þetta komið fram, segja forstöðumenn risafyrirtækisins Long John Silvers, sem er stærsti einstakur fiskkaupandi í heiminum og rekur 1100 eða 1200 veitingastaði í Bandaríkjunum, sem selja íslenskan fisk m.a. og fyrst og fremst.
Ég vil geta þess að ég hef einnig rætt við hinn aðalútflytjanda á fiski til Bandaríkjanna, Samband ísl. samvinnufélaga. Það telur sig ekki hafa orðið vart við þessa tilhneigingu og ekki hafa fengið slíkar aðvaranir frá sínum „kúnnum“ í Bandaríkjunum. En ég vil leggja á það ríka áherslu, að alls ekki ber að taka svona mál léttilega. Þetta er að sjálfsögðu mjög alvarlegt mál. Ef úr slíkum mótmælum yrði og ef þau leiddu til samdráttar hjá slíkum aðilum eða t.d. þeir hyrfu að því að kaupa fremur kanadískan fisk, sem aðallega keppir við okkur um þennan markað, er þar um langtum stærra áfall að ræða í raun og veru en ef hvalveiðar okkar Íslendinga legðust niður, þótt mjög mikilvægar séu. Þannig eru rökin með og á móti. Ég vil geta þess, að eftir að þessar skýrslur voru teknar saman barst mér grg. frá sendiráði okkar í Bandaríkjunum. Þar er þetta rakið á málefnalegan hátt nokkuð svipað og ég hef nú þegar gert og bætir út af fyrir sig ekki miklu við það. En sendiráðið kemst einnig að þeirri niðurstöðu, að hættur stafi fyrst og fremst frá slíkum þrýstihópum sem ég hef nefnt.
Um þetta gæti ég haft ýmis fleiri orð, því mikið er búið um þetta að fjalla. M.a. vil ég geta þess, að við höfum tekið þátt í fundum hvalveiðiríkja eftir að þetta hefur skeð og reynt að fylgjast vandlega með því sem þau hafa í huga.
Ég vil einnig geta þess, að við höfum fylgst náið með þeim tilraunum sem nú eru gerðar með að aflífa hrefnuna á mannúðlegri hátt, eins og talað er um. Bæði Norðmenn og Japanir eru með víðtækar tilraunir. Ég geri ráð fyrir að haldið verði áfram hrefnuveiðum, þar sem við mótmæltum a.m.k. þar til algert bann kemur til framkvæmda. Ef við verðum þá að hlífa því. Þá verða hrefnuveiðar að stöðvast. En ég geri ráð fyrir að til þess tíma munum við leggja ríka áherslu á að nýta okkur þær leiðir sem þessar þjóðir eru að þróa til mannúðlegri veiða. Og ég vil taka mjög undir að það ber að gera. Þótt skiptar skoðanir séu um réttmæti þeirrar gagnrýni sem er á kalda skutlinum. Viðurkennt er að í sumum tilfellum getur tekið töluverðan tíma að aflífa skepnuna með slíku verkfæri. Því ber vitanlega að breyta.
Nokkur vandi er þarna á höndum. Ákaflega erfitt er að nota sprengjuskutla. Bæði er það hættulegt fyrir mannskap á litlum bátum, sem þetta stunda, og hins vegar eyðileggja slíkir skutlar dýrið svo mjög að lítið getur orðið eftir nýtanlegt af því. Þess vegna beinast tilraunir að því að nota miklu minna sprengiefni og þá alveg sérstaklega að því að nota jafnhliða kraftmiklar byssur. Það er t.d. sú leið sem Norðmenn hyggjast fara og telja sig þegar hafa náð athyglisverðum árangri.
Ég vil geta þess að lokum almennt, að gæta þarf þess að jafnvægi sé í náttúrunni. Mér er tjáð að áættað hafi verið að hrefnustofninn í Norður-Atlantshafinu neyti um 1.5 millj. lesta af loðnu á ári. Það er sem sagt tvöfalt meira en við Íslendingar höfum gert okkur vonir um að veiða. Þetta mun að vísu ekki allt vera á íslensku yfirráðasvæði, heldur fyrst og fremst norðar og í Barentshafi. Í þeirri veislu er hrefnan, að því er mér er sagt, svona 6 mánuði á ári og hámar í sig 1.5 millj. lestir. Að sjálfsögðu er enginn vafi að þessi stóru og föngulegu dýr nýta mjög mikið af nytjafiski. Ég hef stundum haft á orði, að ef þetta dýr yrði alveg friðað yrði líklega að friða loðnuna svo að hvalurinn fái nóg að éta. En það er nú annað mál.
Ég vil svo segja það að lokum til að draga þetta saman, að ég tel að ákvörðun 34. ársfundar Alþjóðahvalveiðiráðsins um stöðvun hvalveiða í atvinnuskyni, úthafsveiða 1985 og veiða frá ströndum eftir árslok 1985, þ.e. 1986, sé alls ekki byggð á vísindalegum niðurstöðum, eins og ætlast er til í þeim samþykktum sem á að fara eftir hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Ég tel jafnframt skylt að taka tillit til þess, að vísindanefnd ráðsins, sem meta á ástand hvalveiðistofnanna, hefur ekki séð ástæðu til að mæla með allsherjarstöðvun hvatveiða. Það er því mín skoðun að heimila eigi að nýta hval eins og önnur dýr í lífríki okkar, en sú nýting skuli vera undir ströngu vísindalegu eftirliti með hverjum einstökum hvatastofni, þannig að nýtingin sé hæfileg. Ég tel því að auka beri vísindalegar athuganir á hvalastofninum, eins og við höfum reyndar gert síðustu árin, en þurfum að gera í stórauknum mæli. Í því skyni má vitanlega nota hvatveiðiskipin. Ég tel verulega hættu á því að mjög dragi úr rannsóknum á hvalastofninum ef hvalveiðar leggjast niður.
Ég vil einnig leggja áherslu á það, að ég tel að bæta þurfi hvalveiðar þannig að þær verði sem mannúðlegastar, eins og sagt er. Á það sérstaklega við um kalda skutulinn.
Þá vil ég leggja áherslu á það, að hvatastofnar þeir sem við Íslendingar veiðum úr, þ.e. Austur-Íslandslangreyðarstofninn og Íslands-Grænlandssundssandreyðarstofninn og svo loks Norður-Atlantshafsmiðsvæðis-hrefnustofninn, eru samkv. niðurstöðum vísindamanna, þeim bestu sem fáanlegar eru, ekki taldir vera í hættu. Þessir stofnar hafa reyndar allir verið flokkaðir í ákveðinn flokk hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu, sem má kalla á íslensku „Stofnar í jafnvægi“, og talið er eðlilegt að nýta þá. Í samþykktum Alþjóðahvalveiðiráðsins frá 1946 segir:
„Hvalveiðar í atvinnuskyni skulu leyfðar á hvatveiðistofnum sem eru í jafnvægi og þær skulu stundaðar í samræmi við tillögur vísindanefndarinnar.“
Ég tel einnig rétt að vekja athygli á því, að hvatastofninn neytir gífurlegs magns af nytjafiskum, sem nýttir eru til manneldis, og alger friðun hvalastofnsins getur leitt til þess að jafnvægi þessu verði stofnað í hættu.
Ég tel m.ö.o. að stöðvun veiða úr þessum stofnum verði því ekki réttlætt á vísindalegum grundvelli. Þess vegna hef ég lagt fram í ríkisstj. till. sem er svohljóðandi:
„Með hliðsjón af ofangreindu mótmætir ríkisstjórn Ístands hér með breytingu á viðauka við alþjóðasáttmálann um skipan hvalveiða frá 1946, þ.e. undir málsgrein 10 e, um stöðvun hvalveiða í atvinnuskyni, úthafsveiða 1985 og veiða frá strandstöðvum 1986.“
Ég vil einnig taka það fram, að ég tel sjálfsagt að mjög vandlega sé með þessum málum fylgst á næstu árum og stjórnvöld eigi að vera tilbúin að endurskoða slíka ákvörðun, ef í ljós kemur að þær staðreyndir, sem ég hef rakið í nokkrum orðum, reynast að einhverju leyti ekki réttar. Ég geri því ráð fyrir að hvalveiðibanninu verði mótmælt, nema fram komi hér á Alþingi meirihlutavilji gegn slíkum mótmælum.