27.01.1983
Sameinað þing: 42. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1580 í B-deild Alþingistíðinda. (1339)
91. mál, hvalveiðibann
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Við höfum ekki langan tíma nú fram að kvöldfundi til þess að ræða þetta þýðingarmikla mál. Ég vil strax í upphafi ræðu minnar lýsa yfir því, að ég mun greiða atkv. gegn þessari till. Ekki vegna þess að ég trúi því að hvalastofnanir séu ofveiddir hér við land, svo sem undirstrikað hefur verið af miklum dugnaði af hálfu þeirra hvalfriðunarmanna. Ég held að það sé ekki sannað. En ég er mjög hræddur um það, að mörkuðum okkar fyrir fisk beggja vegna Atlantshafsins sé stefnt í voða ef við mótmælum hvatveiðibanninu. Mér er kunnugt um það reginafl sem samtökin sem barist hafa gegn hvalveiðum búa yfir pólitískt og áróðurslega. Ég tek miklu atvarlegar heldur en bæði hv. flm. þáttill. sem hér er um að ræða og hæstv. sjútvrh. hættuna sem í þessu felst.
Hitt er annað mál, að við megum passa okkur Íslendingar ef svo verður komið málum, að stofnaðir eru þrýstihópar og áróðurshópar suður í löndum í stórborgum heimsins, og við eigum að sæta því að slík samtök banni okkur aðgang að þeim auði sem við eigum einir til þess að byggja á framfærslu okkar, sem er sjávarafli í hinum ýmsu myndum. Við höfum reynt þetta og það brennur á okkur nú þegar, og höfum gert undanfarin ár eins og hæstv. sjútvrh. drap á með afleiðingu af áróðrinum gegn selveiði, sem leiddi til þess m.a. nú endanlega, að Norðmenn ákváðu að gera ekki út á selveiðar í austurísnum nú í vetur. Ástæðan er sú, að það er ekki hægt að selja þessi skinn. Í þessu máli gengu fram ýmis samtök sem voru þó annars eðlis nokkuð heldur en sterkustu samtökin sem standa núna að ávarpi til Íslendinga út af hvalveiðunum. Það voru fyrst og fremst samtök á meginlandi Evrópu. Gengu þar ýmsir fyrir, þar á meðal heimsþekkt þokkadís, Brigitte Bardot, sem mælti mjög gegn því að verið væri að drepa litlu sætu kópana úti á ísnum og flá þá lifandi. Í a.m.k. einu sjónvarpsviðtalinu, sem átt var við hana um litlu sætu kópana á ísnum, var hún í pels úr úlfaskinni. Svo bar til að einmitt um þetta leyti var það nú líklega einna helst vesalings úlfurinn sem var í hættu vegna útrýmingar.
Við sjáum hvernig fer þegar gerðar eru friðunarráðstafanir án tillits til mannsins og án tillits til þeirrar staðreyndar að dýrastofnarnir hér á norðurslóð hafa sætt sig við tilveru mannsins og veiðiaðferðir hans.
Hringormapestin jókst í fiskinum og síðan gripu gáfaðir og framsýnir reiknistokksmenn — ég vil nú aðeins undirstrika þetta þegar menn tala eins og hv. þm. Eiður Guðnason annars vegar og hæstv. sjútvrh. Steingrímur Hermannsson hins vegar um hina vísindalegu sönnun — þeir gripu til þess mælistokksmennirnir þá að leggja til að farið yrði að borga verðlaun fyrir neðri kjálka úr sel, verðlaun sem námu þá 700 ísl. kr. fyrir hvern kjálka. Þetta var náttúrlega forkastanlegt á upplýstri og siðaðri öld að hvetja til þess háttar morða og dráps eins og þar var gert. En það breytir ekki því, að ef hefði átt að borga 700 kr. fyrir neðri kjálkann úr einhverju kvikindi í þessu sambandi þá var það ekki selurinn. Ég vil ekki hrakyrða frú Brigitte Bardot, en hvað afkomu selsins og lífsins í Norður-Atlantshafi áhrærir, þá hefði gjarnan fyrr mátt vera einum neðri kjálkanum færra í henni. En það er annað mál.
Ég hef fullkomna ástæðu til þess að ætla að við séum í hættu með fiskmarkaðina okkar beggja vegna Atlantshafs ef við mótmælum nú hvalveiðibanninu eins og sakir standa, og að við eigum ekki sakarafl við þá aðila sem snúast munu gegn okkur í hefndarskyni á fiskmörkuðunum. Nú tel ég alveg bráðnauðsynlegt að fram komi á Alþingi vilji fyrir því að við mótmælum ekki banninu.