27.10.1982
Neðri deild: 5. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (134)

28. mál, málefni aldraðra

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um málefni aldraðra, en þetta frv. er nú lagt fyrir hv. Alþingi öðru sinni; kom hér fyrir á síðasta þingi og var þá til ítarlegrar umræðu allan apríl s.l. í þessari hv. deild. Þar sem skammt er liðið síðan umræða fór fram hér á hv. Alþingi um málið mun ég ekki halda um það ítarlega framsöguræðu og aðeins gera grein fyrir höfuðatriðum frv. hér við 1. umr. um það.

Á Alþingi 1981 voru lögð fram tvö frv. sem bæði snertu málefni aldraðra, þ.e. annars vegar frv. Péturs Sigurðssonar o.fl. um sérhannað húsnæði fyrir aldraða og öryrkja og hins vegar stjfrv. um heilbrigðis- og vistunarþjónustu fyrir aldraða. Strax við 1. umr. um síðarnefnda frv. kom í ljós talsverður ágreiningur um efni þess. Samstaða náðist þó um ákvæði frv. varðandi Framkvæmdasjóð aldraðra og lög um stofnun þess sjóðs voru sett. Þau voru númer 49/1981. Í nál. heilbr.- og trn. Alþingis var lagt til að skipuð yrði nefnd til að endurskoða stjfrv. ásamt framkomnum brtt. auk frv. Péturs Sigurðssonar o.fl. Á sama þingi var og vísað til ríkisstj. þáltill. Jóhönnu Sigurðardóttur o.fl. um heilbrigðis- og félagslega þjónustu fyrir aldraða í trausti þess að við samningu nýs frv. um má(efni aldraðra yrðu þeir þættir, sem þáltill. fól í sér, teknir til greina.

Í framhaldi af þessum málalyktum á Alþingi skipaði heilbrrh. sjö manna nefnd, sem fékk það hlutverk að gera tillögur um samræmingu á skipulagi í heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða með tilliti til heilsufarslegra og félagslegra sjónarmiða. Í nefnd þessa voru skipuð: Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar, Þórarinn V. Þórarinsson lögfr., Hrafn Sæmundsson prentari og Pétur Sigurðsson alþm., auk stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra, en í henni áttu þá sæti: Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri og var hann formaður nefndarinnar, Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur og Gunnhildur Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri. Niðurstaða nefndarinnar var svo það frv., sem hér liggur fyrir, í öllum meginatriðum, að undanteknum fáeinum breytingum sem gerðar voru á mína ábyrgð og ríkisstj. þegar málið var til meðferðar þar.

Ég tel að meginákvæði þessa frv. felist í fyrsta lagi í markmiðssetningu þess, en þar er sett fram það markmið að aldraðir fái þá heilbrigðis- og félagslegu þjónustu sem þeir þurfa á að halda og að aðstoðin sé veitt á því þjónustustigi sem eðlilegast og hagkvæmast er miðað við þörf og ástand hins aldraða. Jafnframt er það markmið frv., að aldraðir geti svo lengi sem verða má búið eðlilegu heimilislífi, en að nauðsynleg stofnanaþjónusta sé fyrir hendi þegar hennar er þörf.

Gert er ráð fyrir því í frv., að yfirstjórn öldrunarmála sé í höndum heilbr.- og trmrh. og að í rn. verði komið á sérstakri deild öldrunarmálefna undir stjórn deildarstjóra. Jafnframt er gert ráð fyrir að skipuð verði samstarfsnefnd um málefni aldraðra sem í eigi sæti fimm menn tilnefndir þannig: Tveir frá Öldrunarráði Íslands, einn frá félmrn., tilnefndur af Sambandi ísl. sveitarfélaga, og tveir skipaðir af heilbr.- og trmrh. án tilnefningar. Ráðh. er ætlað að skipa formann úr hópi nefndarmanna. Nefnd þessari er falið í frv. allvíðtækt samræmingar- og stefnumótunarhlutverk auk þess sem henni er ætlað að vera tengiliður milli þeirra aðila sem starfa að málefnum aldraðra.

Yfirstjórn öldrunarmála verður því í höndum sérstakrar deildar í heilbrn. auk fyrrnefndrar nefndar, sem verður sérstakur ráðgjafi og stefnumótandi aðili. Svæðisstjórn öldrunarmála verður hins vegar í höndum stjórna heilsugæslustöðva í hverju heilsugæsluumdæmi í samvinnu við félagsmálaráð þar sem þau starfa.

Hlutverki stjórna heilsugæslustöðva í þessum málaflokki er svo lýst í 5. gr. frv. og ætla ég ekki að endurtaka það hér.

Eitt af hlutverkum stjórnarinnar er að kveðja menn til starfa í þjónustuhópi aldraðra, en samkvæmt 6. gr. frv. skal slíkur hópur starfa við heilsugæslustóð. Þó geta tvær eða fleiri heilsugæslustöðvar sameinast um slíkan hóp auk þess sem hópurinn getur starfað í tengslum við aðra heilbrigðisstofnun en heilsugæslustöð þar sem það þykir hentugra.

Þjónustuhópurinn er svo skilgreindur ítarlegar í 7. gr. Hlutverk þjónustuhópsins er einnig skilgreint rækilega í frv. og ætla ég ekki að fara nánar út í það hér, en víkja aðeins að þeim þætti frv. sem fjallar um heimaþjónustu.

Eins og fram hefur komið er það eitt af meginmarkmiðum frv. að stuðla að því að aldraðir geti búið sem lengst eðlilegu heimilislífi. Ein aðalforsenda þess að þetta markmið náist er sú, að um allt land verði rekin virk heimaþjónusta fyrir aldraða. Slík þjónusta mundi gera öldruðum kleift að vera heima lengur en ella hefði verið unnt.

Orðið „heimaþjónusta“ í frv. þessu er nýtt og er samnefnari heimilishjálpar og heimahjúkrunar, þ.e. sú tvíþætta aðstoð sem unnt er að veita á heimili aldraðs einstaklings. Heilbrigðisþáttur þessarar aðstoðar, þ.e. heimilislæknar, heimahjúkrun og endurhæfing í heimahúsum, verður eftir sem áður í höndum starfsliðs heilsugæslustöðva og félagslegi þátturinn yrði í höndum starfsmanna félagslegrar þjónustu viðkomandi sveitarfélags.

Í frv. er lögð rík áhersla á að komið verði á fót öflugu samstarfi félagslega þáttarins og heilbrigðisþáttarins í þessu sambandi, því hjá öldruðum fléttast þessar þarfir mjög og mundi slíki samstarf stuðla mjög að árangursríkara starfi í þágu aldraðra og jafnframt leiða til þess að markmið frv. um að aldraðir búi sem lengst eðlilegu heimilislífi náist frekar. Því er gert ráð fyrir að skipulag heimaþjónustunnar verði í höndum stjórnar heilsugæslustöðvar í samvinnu við félagsmálaráð þar sem þau starfa.

Í frv. er gert ráð fyrir að ríkið greiði 65% af kostnaði við þessa heimaþjónustu eins og fram kemur í 27. gr. frv. Í frv. er fjallað ítarlega um dvalarstofnanir aldraðra og flokkun þeirra og þar er einnig um að ræða ákveðin nýmæli í 26. gr. varðandi kostnað vegna vistunar á dvalarstofnunum aldraðra. Ég tel óhjákvæmilegt, þar sem það er eitt mikilvægasta ákvæði frv., að gera hér sérstaka grein fyrir því.

Þar er lögð til grundvallarbreyting á greiðslu kostnaðar vegna vistunar á dvalarstofnunum fyrir aldraða. Eins og málum er háttað greiða vistmenn á dvalarheimilum kostnað af vistun sinni sjálfir. Ef tekjur þeirra hrökkva ekki fyrir dvalarkostnaði greiðir lífeyristryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins svokallaða heimilisuppbót til viðkomandi vistmanns. Verði vistmaður svo lasburða að hann þurfi sjúkravist tekur sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins við og greiðir allan kostnað af vistinni. Greiðsla ellilífeyris, tekjutryggingar og heimilisuppbótar fellur þá niður og í staðinn kemur greiðsla vasapeninga. Hafi viðkomandi haft lífeyrissjóðstekjur hætta þær nú að standa straum af vistkostnaði og renna að fullu til einstaklingsins. Reyndin hefur því orðið sú, að þeir sem tekjur hafa haft aðrar en lífeyri almannatrygginga hafa orðið tekjulega betur settir eftir að þeir fluttust á þyngra hjúkrunarstig, enda hættu þeir þá að taka þátt í greiðslu vistunarkostnaðar. Í frv. er því lagt til að kostnaður við vistun á dvalarstofnunum fyrir aldraða öðrum en sérhönnuðum íbúðum aldraðra verði greiddur af sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins. Sjúkratryggingadeildin innheimti þó hjá lífeyristryggingadeild sömu stofnunar, lífeyrissjóði vistmanns eða lætur innheimta hjá vistmanni sjálfum allt að fullu vistgjaldi eins og daggjaldanefnd ákveður það á hverjum tíma. Þó skal vistmaður á dvalarheimili halda eftir 25% tekna sinna og aldrei lægri fjárhæð en liðlega 1900 kr. á mánuði til eigin þarfa, en vistmaður á hjúkrunarheimili, hjúkrunardeild eða sjúkradeild heldur eftir 15% tekna, þó aldrei lægri upphæð en 1330 kr. á mánuði. Í 26. gr. frv. 3. málsgr. hefur upphæðum vasapeninga verið breytt frá því sem var í frv. í vor til samræmis við breytingar á lífeyrisbótum síðan frv. var lagt fram á s.l. vori. Annars vegar hefur upphæðin á dvalarstofnun farið upp í 1950 kr. á mánuði, hins vegar á hjúkrunarstofnun upp í 1330 kr. á mánuði. Þessar fjárhæðir skulu breytast eftir sömu reglum og gilda um hækkanir bóta almannatrygginga.

Ef þetta fyrirkomulag nær fram að ganga er tveimur markmiðum náð: Í fyrsta lagi er leiðrétt það ranglæti, sem nú hefur ríkt, að vistmenn á sjúkrastofnun hafa í mörgum tilvikum meiri tekjur en vistmaður á dvalarheimili. Hér er gert ráð fyrir rýmri fjárráðum meðan hinn aldraði hefur heilsu til að njóta ýmissa lífsins gæða. Í öðru lagi er komið í veg fyrir þann ávinning sem vistmaður og erfingjar hans hugsanlega hafa nú af því að honum verði komið á þyngra og dýrara þjónustustig. Í þessu sambandi er vert að vekja athygli á því, að í fskj. með frv. þessu, fskj. IV, kemur fram að nú greiðir Tryggingastofnunin að fullu dvalarheimiliskostnað 80% vistmanna þrátt fyrir ákvæði um hið gagnstæða. Þetta mun hins vegar breytast mjög með auknum lífeyrissjóðsrétti landsmanna á næstu árum.

Herra forseti. Ég vil að allra síðustu víkja að ákvæðum frv. um Framkvæmdasjóð aldraðra og taka það fram að frv. gerir ráð fyrir að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði á næsta ári 300 kr. á mann. Það er hækkun um 50% frá árinu 1982. En í fjárlagafrv. fyrir árið 1983 er gert ráð fyrir minni hækkun á þessu gjaldi. Þar er gert ráð fyrir sömu hækkun á þessu gjaldi og á öðrum liðum fjárlagafrv. Þess vegna er það svo, að ef þess er kostur að Alþingi ljúki afgreiðslu á þessu máli, sem ég er hér að mæla fyrir, fyrir áramót verða tölur í fjárlagafrv. að breytast til samræmis við það. Á það legg ég mjög mikla áherslu því að annað getur skapað óþægindi fyrir heilbr.- og trmrn. og þá aðila sem þurfa að skipta við Framkvæmdasjóð aldraðra.

Herra forseti. Ég teldi það mjög við hæfi undir lok þess árs sem Alþingi hefur kosið að tileinka málefnum aldraðra, að frv. um málefni þeirra yrði að lögum fyrir lok ársins og að Alþingi taki höndum saman um það. Ég tel að um þetta frv. sé í raun og veru allgóð samstaða. Eins og fram kom í framsöguræðu minni hér í upphafi hafa þingmenn úr öllum flokkum komið hér að og lagt hönd á plóginn og ég tel að þess vegna ætti að vera unnt að ljúka afgreiðslu þessa máls á þessu þingi fyrir áramótin. Ég skora á hv. heilbr.- og trn. og Nd. að halda þannig á málum að slíkt verði gert. Það væri miklu lakara ef dráttur yrði á afgreiðslu þessa máls. Vafalaust greinir okkur á um eitt og annað, t.d. fyrirkomulag á fjármögnun stofnana fyrir aldraða. Ég geri ráð fyrir að það sé einhver ágreiningur uppi um það, a.m.k. hafa menn verið að skrifast á um það í blöðunum, en ég held þó að það mál eigi út af fyrir sig ekkert að þurfa að tefja þetta sérstaka mál, sem hér er, um samræmingu á þjónustu við aldraða.

Ég vil aðeins vegna umræðna sem fram hafa farið um fjármögnun á stofnunum fyrir aldraða segja það, að fyrir mér vakir í þeim efnum eitt. Það er að fjármögnun þessara stofnana sé einföld og skýr. Það er hlutverk heilbr.- og trmrn. að sjá til þess að aldraðir á þessum stofnunum njóti þeirrar þjónustu sem lög um heilbrigðisþjónustu kveða á um. Þess vegna mun heilbr.- og trmrn. að sjálfsögðu leggja á það mikla áherslu, ef stofn anir eru fluttar yfir á föst fjárlög, að lög um heilbrigðisþjónustu séu í hvívetna uppfyllt. Það er meginmál. Við teljum að reynslan af daggjaldakerfinu sé ekki nógu góð, það sé ekki nógu heppilegt að greiða kostnað við heilbrigðisstofnanir í gegnum sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins, eins og þetta hefur verið, en ég skora á menn að láta ekki deilur um þetta sérstaka mál hafa áhrif á framgang þessa frv. hér. Ég held að það sé óþarfi. Og ég vona að menn geti sameinast um að afgreiða það á þessu ári. Í fullvissu þess ætla ég ekki að sinni að hafa lengri eða fleiri orð um fjármögnun á sjúkrastofnunum í landinu, elliheimilum eða öðrum stofnunum.

Herra forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn.