28.01.1983
Neðri deild: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1592 í B-deild Alþingistíðinda. (1351)

85. mál, efnahagsaðgerðir

Frsm. 2. minni hl. (Sighvatur Björgvinsson):

Herra forseti. Því miður vannst mér ekki tími til áður en fundur þessi hófst að afhenda nál. mitt í skrifstofu þingsins. Ég var að fá það úr vélritun alveg á sömu mínútu og fundurinn hófst og fékk mínar síðustu upplýsingar varðandi þetta nál. nú í hádeginu, þannig að meiri hraða held ég að sé varla hægt að hafa á miðað við að þingstörfin gangi eðlilega fyrir sig. Ég hef hins vegar gengið frá þessu nál. nú og mun styðjast við það í ræðu minni hér á eftir og vona að það nægi að ég afhendi hæstv. forseta nál. að því loknu.

Það hefur áður komið fram í máli mínu um afstöðuna til þessa frv. að meginefni þess má skipta í þrennt: Það er í fyrsta lagi helmingslækkun verðbóta á laun, sem tók gildi þann 1. des. s.l., í öðru lagi ákvæði um láglaunabætur að upphæð 50 millj. kr., sem út voru greiddar í sama mánuði, í þriðja lagi hækkun vörugjalds á ýmsum innfluttum nauðsynjum, svo sem matvælum, sem ætlað er að skila á 6 mánaða gildistíma fimm- til sexfalt hærri tekjum í ríkissjóð en nemur samanlagðri fjárhæð láglaunabótanna, sem úthlutað var í des., og í fjórða lagi ráðstöfun gengismunar vegna gengislækkunar ríkisstj. í ágústmánuði á s.l. hausti, en það er orðin næstsíðasta gengisfelling hæstv. ríkisstj.

Launalækkunin, sem kom til framkvæmda þann 1. des. s.l. samkv. ákvæðum brbl. ríkisstj., reyndist nema röskum 7%. Laun alls launafólks í landinu voru þann dag lækkuð um þennan hundraðshluta frá ákvæðum gildandi kjarasamninga, jafnt laun hinna launalægstu sem laun hinna launahæstu. Vegna brbl. ríkisstj. héldu launagreiðendur á Íslandi þennan dag, þann 1. des., eftir af launagreiðslum starfsmanna sinna 135 millj. kr.. sem þeim hefði ella borið að greiða launafólki, ef ríkisstj. hefði ekki komið í veg fyrir það. Vegna brbl. ríkisstj. mun launafólk á yfirstandandi ári missa rúmlega 1600 millj. kr. í launum, sem fólki bar samkv. gildandi kjarasamningum að fá.

Þessi aðgerð, launalækkun með lögum, er einasta ráðstöfunin í samanlögðum brbl. og yfirlýsingum ríkisstj. sem einhver tímabundin áhrif hefur á verðbólguþróun. Engar aðrar ráðstafanir, sem ríkisstj. hefur gert eða boðað, hvorki í brbl. né í yfirlýsingunni sem brbl. fylgdi, hafa nokkur minnstu mælanleg áhrif á verðbólguna. Einasta verðbólguúrræði ríkisstj. var sem sé að lækka laun fólks með lögum um 1600 millj. kr. á einu ári.

Það er einnig kunnugt að slík ráðstöfun skilar tímabundnum árangri til lækkunar verðbólgu, en jafngömul er sú reynsla að þótt slík aðgerði skili árangri til skamms tíma eru áhrif hennar á verðbólguþróun til lengri tíma nákvæmlega engin. Til fjölmargra slíkra aðgerða hefur verið gripið á undanförnum árum. Þær hafa ekki forðað því, að verðbólgan hefur samt sem áður farið árvaxandi. M.ö.o.: aðgerð af þessu tagi, sem skilar skammvinnum árangri til lækkunar á verðbólgu, hefur nákvæmlega engin áhrif á verðbólgu til lengri tíma.

Þessi gamla reynsla hefur hlotið nýja staðfestingu nú. Strax eftir setningu brbl. í ágústmánuði á s.l. hausti gaf ríkisstj. út þá yfirlýsingu, að vegna setningar laganna hefði tekist að hafa þau áhrif á verðbólguna að hún mundi á árinu 1983 ekki fara mikið yfir 50% frá upphafi árs til ársloka, en án laganna hefði hún sennilega farið yfir 70%. Þetta var að sögn ríkisstj. hinn mikli árangur þeirrar fórnar sem launþegum var ætlað að færa með lækkun launa þann 1. des. Ég hafði hins vegar tal af Þjóðhagsstofnun í morgun og nú, rétt fimm mánuðum eftir setningu brbl. og aðeins tæpum tveimur mánuðum eftir að launalækkunin tók gildi, er áætlað af Þjóðhagsstofnun að um mitt ár 1983 verði verðbólgan komin yfir 70% og frá upphafi til loka þessa árs verði verðbólga a.m.k. 65%. M.ö.o. stöndum við nú í nákvæmlega sömu sporum og við stóðum áður en brbl. voru sett í ágúst á s.l. hausti. Verðbólgulækkunaráhrifin af launaskerðingunni þann 1. des. s.l. eru nú þegar runnin út í sandinn. Sú fórn er nú þegar orðin árangurslaus. Ætli menn að ná þeim markmiðum í verðbólgumálum sem ríkisstj. setti sér í ágústmánuði s.l. og ætli menn að beita sömu aðferðum til þess og ríkisstj. beitti þá, þá liggur nú fyrir að þann 1. mars n.k. ætti að skerða laun um sama hundraðshluta og þau voru skert í des. s.l. Ef ná ætti markmiði ríkisstj. með setningu brbl. með sama hætti yrði þann 1. mars að lækka laun í landinu um 7% enn á ný. Fórnin frá því í des. er runnin út í sandinn. Áhrifa hennar gætir ekki lengur. Við stöndum í sömu sporum og við stóðum í í ágústmánuði, áður en lögin voru sett. Svo algerlega tilgangslaus hefur sú fórn orðið sem launafólk var neytt til þess að færa í sjálfum jólamánuðinum fyrir tilstuðlan brbl. ríkisstj. Sem vopn í aðgerð gegn verðbólgu eru brbl. orðin marklaust plagg.

Til þess að vega upp á móti launalækkun, sem á einu ári mun svipta íslenskt launafólk röskum 1600 millj. kr., sem það ella mundi hafa fengið á desemberverðlagi árið 1982, ákvað ríkisstj. í brbl. að verja 50 millj. kr. í láglaunabætur. Þessi fjárhæð nemur 3% af launasviptingu ríkisstj. Sárabæturnar námu 3% af þeirri launalækkun sem ríkisstj. framkvæmdi og að mati Alþýðusambands Íslands námu þessar láglaunabætur 0.7% af launafjárhæðinni sem greidd var í landinu 1. des. s.l.

Fram hefur komið, einkum og sér í lagi eftir að láglaunabæturnar komu til greiðslu, að ýmsir forsvarsmenn launþegasamtaka hafa gagnrýnt framkvæmdina mjög harðlega og ekki viljað við kannast að samráð hafi verið við þá haft um tilhögun og framkvæmd greiðslnanna, eins og skylt er þó samkv. ákvæðum brbl: — Nú, herra forseti, sakna ég mjög hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar, sem úr salnum gekk á braut þegar ég hóf mína ræðu því að hann vissi hvað ég ætlaði að segja. (Gripið fram í: Þess vegna fór hann.)

Vegna þessara yfirlýsinga forustumanna launþegasamtakanna beitti ég mér fyrir því í nefndarstörfum fjh.og viðskn. að sérstaklega yrði kannað hver aðild forsjármanna stærstu launþegasamtaka í landinu hefði verið að ákvörðun um tilhögun láglaunabóta og jafnframt að hvaða marki gagnrýni þeirra eftir á hefði við rök að styðjast. Nefndin fékk til viðræðu við sig um þessi efni fulltrúa frá Alþýðusambandi Íslands og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og auk þess aðstoðarmann fjmrh. og þá sérfræðinga sem með honum unnu að ítarlegri könnun á framkvæmd láglaunabótagreiðslnanna samkv. ýmsum mismunandi útfærslum. Upplýsingarnar, sem við í fjh.- og viðskn. fengum frá þessum heiðursmönnum, leiddu eftirfarandi í ljós:

Við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja var af hálfu fjmrn. og ríkisstj. nær ekkert samband haft í tengslum við ákvarðanirnar um tilhögun á greiðslum láglaunabóta. Þá fyrst þegar margir fundir höfðu verið haldnir milli fulltrúa fjmrn. og forustumanna Alþýðusambands Ístands og margar sameiginlegar athuganir gerðar að frumkvæði þessara aðila um ýmsa tilhögun láglaunabótagreiðslnanna voru fulltrúar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja kvaddir til og þá aðeins til eins fundar. Á þeim fundi voru fulltrúum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja t.d. ekki afhentar ítarlegar upplýsingar og útfærslur, sem fulltrúar Alþýðusambands höfðu dögum saman haft með höndum og unnið með. Þessum eina samráðsfundi við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja lauk án nokkurrar sameiginlegrar niðurstöðu og annar fundur var ekki boðaður. Samráð ríkisstj. við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja um láglaunabæturnar var sem sagt nánast ekki neitt. Upplýsingamiðlun ríkisstj. til BSRB var nánast engin og aðstaða BSRB til tillagnagerðar eða áhrifa á niðurstöðuna var ekki fyrir hendi.

Samráðið við forustumenn Alþýðusambands Íslands um tilhögun láglaunabótanna var hins vegar mikið og allnáið um langt skeið. Þær upplýsingar voru veittar í fjh.- og viðskn., að forustumenn Alþýðusambandsins voru til samráðs kvaddir strax upp úr mánaðamótunum október/nóvember á s.l. hausti, eftir að fjmrn. hafði lagt fram sínar fyrstu grunnhugmyndir um greiðslu láglaunabóta á grundvelli skattaframtala fyrir árið 1981 og keyrt þær hugmyndir út í tölvum. Fulltrúum Alþýðusambandsins voru fengnar allar þessar upplýsingar, þ. á m. tölvukeyrslan, og hófust síðan tíðir fundir milli forráðamanna Alþýðusambands Íslands annars vegar og starfsmanna og sérfræðinga fjmrn. hins vegar. Stóð það samráð í tvær til þrjár vikur. Á þeim tíma voru verulegar breytingar gerðar á hugmyndum fjmrn. um tilhögun bótagreiðslnanna. Fjölmargar útkeyrslur í tölvum á grundvelli skattaframtala 1981 voru jafnframt gerðar á þessu tímabili til að sýna áhrif hverrar breytingarhugmyndar fyrir sig, sem fram komu í viðræðum Alþýðusambandsins og fjmrn. Allar þessar upplýsingar er ég með hér. Alla þessa bók með öllum þessum tölvuútkeyrslum á öllum hugmyndum og breytingum sem fram komu fengu forráðamenn Alþýðusambands Íslands í hendur og unnu með ásamt fulltrúum fjmrn. á samráðsfundum, sem tíðum voru haldnir í 2–3 vikur.

Lesið þið svo það sem þeir heiðursmenn segja um sína aðild að málinu eftir að af framkvæmdinni hefur orðið og eftir að gagnrýnin hefur komið fram í blöðum. Það eru kannske mannleg viðbrögð, en þau eru ekki stórmannleg og ekki til sóma kjörnum forustumönnum voldugustu launþegasamtaka í landinu, enda ekki kyn þótt hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson hafi vikið sér snarlega úr salnum þegar ég bað um orðið. Hann á sæti með mér í fjh.- og viðskn. á þingi og vissi hvaða upplýsingar ég hafði þar fengið og vissi hvað ég ættaði mér að segja.

Meðal athyglisverðustu breytinga frá fyrstu hugmyndum fjmrn. um tilhögun bótagreiðslnanna, sem verða á meðan þetta samráð við Alþýðusamband Íslands um framkvæmd bótagreiðslnanna á sér stað, er eftirfarandi:

Samkv. upphaflegum hugmyndum fjmrn. var ráð fyrir því gert, að fólk með tekjur undir 10–15 þús. kr. ætti ekki að njóta láglaunabóta. Eftir fundahöld og viðræður við Alþýðusamband Íslands breytast þessi mörk úr 10–15 þús. í 25 þús. kr. M.ö.o.: fólk með tekjur á bilinu 10–15 og upp í 25 þús. kr. á árinu 1981 hefði átt að fá láglaunabætur samkv. upphaflegum hugmyndum fjmrn., en fékk þær ekki samkv. þeim hugmyndum sem komust á blað í viðræðum og samráði ASÍ og fulltrúa fjmrn.

Í öðru lagi var samkv. upphaflegum hugmyndum fjmrn. gert ráð fyrir að hámarkstekjur þeirra sem láglaunabótanna nytu væru röskar 51 þús. kr. á ári. Þeir sem hefðu hærri tekjur fengju ekki láglaunabætur. Eftir að samráð fjmrn. við Alþýðusamband Íslands hefur átt sér stað hefur þessi fjárhæð leyfilegra hámarkstekna verið hækkuð úr 51 þús. í 75. Þessar breytingar, sem verða meðan á samráði fjmrn. og Alþýðusambands Íslands um framkvæmd láglaunabótagreiðslnanna stendur, hafa m.a. þau áhrif að láglaunahjón með tekjur á bilinu 10–30 þús. kr. á árinu 1981, sem hefðu samkv. upphaflegum tillögum fjmrn. átt að fá láglaunabætur sem numið hefðu ca. 9% af tekjum þeirra, hlutu samkv. þeim hugmyndum sem festar voru á blað að loknu samráði við Alþýðusambandið láglaunabætur sem voru ígildi um 2% af tekjum þeirra. Þetta lægst launaða fólk hafði lækkað í láglaunabótum á meðan á þessu samráði stóð úr 9% ofan í 2%. Á sama tíma hafði hlutur fólks með tekjur á bilinu 80–120 þús. kr. skánað mjög verulega.

Í þessu sambandi voru eftirfarandi spurningar lagðar sérstaklega fyrir aðstoðarmann fjmrh., sem þátt hafði tekið í umræddu samráði af hálfu fjmrn.:

1. Hvaða fulltrúar Alþýðusambands Íslands sátu á samráðsfundum með starfsmönnum rn. um þessi mál? Svar: Ásamt forseta og varaforseta Alþýðusambands Íslands áttu aðild að þessum fundum yfirmenn á skrifstofu Alþýðusambandsins og ýmsir verkalýðsforingjar, svo sem Guðmundur J. Guðmundsson o.fl. Sumir komu aðeins á einn samráðsfund. Aðrir sátu þá alla.

2. Voru einhverjar af hinum fjölmörgu útfærsluhugmyndum og tölvukeyrslum, sem gerðar voru í sambandi við athugun málsins, sem fulltrúar Alþýðusambandsins fengu ekki í hendur til skoðunar og athugunar? — Svar: Nei.

3. Voru einhverjar hugmyndir eða tillögur, sem fulltrúar Alþýðusambands Íslands komu með um aðra útfærslu kerfisins, ekki kannaðar eða skoðaðar? — Svar: Nei.

4. Voru einhverjar hugmyndir eða tillögur um fyrirkomulag láglaunabótanna, sem fulltrúar Alþýðusambands Íslands settu fram, sem ekki var fallist á? — Svar: Nei.

5. Voru einhverjar hugmyndir eða tillögur um útfærsluna sem fulltrúar Alþýðusambandsins andæfðu eða mótmæltu, en engu að síður voru framkvæmdar? Svar: Nei.

Ástæðulaust er að orðlengja þetta frekar, en ljóst er af þeim upplýsingum, sem fjh.- og viðskn. hlaut, að ítarlegt og náið samband var milli fjmrn. og forustumanna ASÍ um alla tilhögun málsins og stóð það samráð í 2–3 vikur. Allar hugmyndir og breytingar á upphaflegu kerfi, sem urðu til á þessum tíma, urðu í þessu samráði. Og aðferðin, sem loks var notuð við greiðslu bótanna, var að mjög verulegu leyti byggð á hugmyndum sem fram komu í viðræðum ASÍ og fjmrn. Hins vegar kom einnig fram á þessum fundum, að við ákveðin atriði höfðu fulltrúar Alþýðusambandsins gert aths.

Í fyrsta lagi samþykktu þeir ekki að greiðslur bótanna ættu sér stað á grundvelli tekna ársins 1981. Hins vegar viðurkenndu þeir, að ef af greiðslum ætti að verða í desembermánuði væri þetta eina færa leiðin.

2. Samkv. tillögum Alþýðusambands Íslands var á það fallist að sjálfstæðir atvinnurekendur, sem ættu kröfu á að njóta greiðslu láglaunabóta á grundvelli skattaframtala ársins 1981, yrðu að sækja um það sérstaklega. Þær umsóknir áttu að berast í janúarmánuði. Engin umsókn frá slíkum aðilum hefur komið. Hins vegar féllust fulltrúar Alþýðusambandsins á það til samkomulags að bændur, sem teljast sjálfstæðir atvinnurekendur, fengju engu að síður bótagreiðslur byggðar á skattframtali 1981.

3. Einnig komu fram frá Alþýðusambandinu andmæli við því, að hlutafjáreigendur sem störfuðu sem launþegar við fyrirtæki sem þeir eiga hlutafé í skuli njóta láglaunabóta. Hins vegar kom fram, og þeir gerðu sér ljóst og gátu engum brtt. við það fram komið, að eins og skattaframtöl væru uppbyggð væri ekki hægt að einangra þennan hóp manna frá öðrum launþegum.

Vegna þess hversu mikil gagnrýni hefur komið fram, m.a. hjá forustumönnum í Alþýðusambandi Íslands, á framkvæmd láglaunabótagreiðslnanna tel ég nauðsynlegt að hér komi fram hvaða samráð var við þá haft við undirbúning málsins, hvaða breytingar áttu sér stað í grundvallaratriðum á útfærslukerfinu á meðan á þeim samræðum stóð og hvaða áhrif þær breytingar höfðu fyrir kjör hinna lakast launuðu.

Ég gæti einnig haft langt mál um hvernig þessir sömu menn og áttu aðild að þessu samráði hafa eftir á komið fram í fjölmiðlum, — ekki bara til þess að firra sig allri ábyrgð, ekki bara til þess, heldur einnig til þess að taka undir þá gagnrýni, sem fram hefur komið á þessar aðferðir, hvernig þeir hafa m.a. gefið fráleitar upplýsingar, sem slegið hefur verið upp í blöðum, eins og þær, að hæsti gjaldandi í tilteknum hreppi hafi fengið láglaunabætur þegar þeir vissu um leið og þeir héldu því fram að sá hreppur, sem þeir tiltóku, hafði aðeins fjóra gjaldendur og allir töldust þeir vera láglaunamenn. Þetta er bara dæmi um hvað voldugir aðilar í þessu samfélagi telja sér sæma.

Að nota skattframtöl til að reyna að jafna kjör fólks er ekki hugmynd sem er ný af nálinni. Slíkt hefur þó ekki áður verið reynt í þeim mæli sem gert var við útgreiðslu láglaunabótanna. Sú tilraun er því að mörgu leyti merk og þótt ýmsir ágallar hafi komið í ljós nú, í fyrsta skipti sem þetta hefur verið reynt, tel ég að úr þeim megi bæta og úr þeim eigi að bæta og nauðsynlegt sé að nota tímann vel til að kanna nánar hvernig sníða megi af ýmsa annmarka á þessu kerfi. Það er skoðun undirritaðs, að með því að beita skattakerfinu frekar en gert er megi bæta mjög mikið kjör þess þjóðfélagshóps sem hefur raunverulega lægstu launin í landinu og við lökust lífskjörin býr.

Sú háværa gagnrýni, sem komið hefur fram á þessa framkvæmd, er ekki að öllu leyti sanngjörn, þó að hún sé það að sumu leyti, og þá síst er hún sanngjörn þegar hún er sett fram af hálfu þeirra sem samráð var haft við um undirbúning málsins og verulegt tillit virðist hafa verið tekið til.

Herra forseti. Ég hef látið þessum kafla í minni framsögu lokið. Nú ætti að vera óhætt fyrir hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson að ganga í salinn.

Eins og áður sagði er ráð fyrir því gert, að sú hækkun á vörugjaldi sem í frv. felst verði til að hækka verðlag á ýmsum nauðsynlegum neysluvörum, svo sem matvörum, og muni á gildistímanum, 6 mánuðum, skila ríkissjóði í tekjur um fimm- til sexföldum þeim láglaunabótum sem út voru greiddar í des. eða hartnær tvöfaldri þeirri fjárhæð sem ráð er fyrir gert í yfirlýsingu ríkisstj. með brbl. að samtals verði greiddar í láglaunabætur á árinu 1982 og árinu 1983. Þessi aðgerð veldur beinum verðhækkunum algengrar neysluvöru og vinnur að sjálfsögðu gegn yfirlýstum tilgangi brbl., sem átti að vera að draga úr verðbólgu og verðhækkunum. Þessi þáttur brbl. er því mótsögn við sjálfan tilganginn og sennilega gleggsta dæmið um hvernig eitt rekur sig á annars horn í ráðstöfunum hæstv. ríkisstj.

— Um ráðstöfun gengismunar, fjórða atriði frv., er það að segja, að aðgerð af því tagi hefur verið fylgifiskur margra gengisbreytinga. Um hana er deilt og um hana má vissulega deila, bæði hvort yfirleitt eigi að taka gengismun og einnig hvernig honum er ráðstafað. Verða þær deilur ekki gerðar að frekara umræðuefni hér.

Við 1. umr. í Nd. flutti sjútvrh. hins vegar till. um breytingu á þessu ákvæði, þar sem hann m.a. leggur til að Alþingi fallist á að heimila honum að fá hluta af gengismun til ráðstöfunar að höfðu samráði við sjávarútvegsnefndir Alþingis. Áður hafði ráðh. lýst því opinberlega að hann mundi flytja till. um að hluta af gengismun yrði ráðstafað fyrir milligöngu Byggðasjóðs til tiltekinna fyrirtækja í fiskvinnslu sem eiga við rekstrarörðugleika að etja. Sú reyndist samt ekki vera till. hans, heldur eins og fyrr segir, að hann sjálfur fái fjármunina til ráðstöfunar þótt látið sé í veðri vaka að hann hyggist ráðstafa þeim með þeim hætti sem hann hefur áður lýst opinberlega að ætti að vera efni till. sinnar.

Það er út af fyrir sig athugunarvert hvort og þá hvernig eigi að veita tilteknum fyrirtækjum sérstaka fjárhagsaðstoð svo að þau geti haldið áfram rekstri. Þm. Alþfl. eru reiðubúnir að taka afstöðu til slíks máls eða till. þar um, ef hún kemur fram á Alþingi. Eins og frá till. sjútvrh. er gengið er Alþingi hins vegar ekki gefinn kostur á að taka ákvörðun um það atriði, heldur aðeins að sjútvrh. fái tiltekna fjármuni til úthlutunar án nokkurra fyrirmæla frá Alþingi um hvernig með skuli fara. Þm. Alþfl. eru á móti slíkri till. og munu því greiða atkv. á móti henni, en lýsa sig hins vegar reiðubúna að taka efnislega afstöðu til till. frá ríkisstj. um hvernig mæta eigi rekstrarerfiðleikum tiltekinna atvinnufyrirtækja, ef slík till. kemur fram á Alþingi.

Í sambandi við það er þó nauðsynlegt að eitt komi fram: Því hefur verið haldið fram á opinberum vettvangi, að þau fyrirtæki sem nú er sérstaklega rætt um að þurfi sérstakrar aðstoðar við séu „eftirlegukindur“ sem ekki hafa fengið sérstaka fyrirgreiðslu eða lánsaðstoð úr Byggðasjóði eða öðrum sjóðum á síðustu mánuðum eins og önnur fyrirtæki hafi fengið m.a: til skuldbreytinga. Þetta er rangt. Mjög mörg þeirra fyrirtækja, sem nú er rætt um að veita sérstaka fjárhagsfyrirgreiðslu, eru í hópi þeirra sem slíka fyrirgreiðslu fengu á árinu 1982, bæði með sérstökum lánveitingum frá Byggðasjóði, með skuldbreytingum við olíufélög og með skuldbreytingum við Byggðasjóð sjálfan. Sum þessara fyrirtækja eru jafnvel í hópi þeirra sem hæstu fjárhæðirnar hafa fengið í þessu sambandi. Eru þess jafnvel dæmi að þau hafi fengið með þessum hætti á árinu 1982 fjárhagsaðstoð sem nemur margföldu eigin fé þeirra.

Mér er kunnugt um að íbúar í sveitarfélögum þar sem mörg þessi fyrirtæki starfa standa í þeirri trú, að engin aðstoð hafi fengist til reksturs þessara fyrirtækja og atvinnuörðugleikar staðanna séu vegna þess að þessi atvinnufyrirtæki sitji ekki við sama borð og önnur. Í sumum tilvikum eru þetta fyrirtæki sem fengið hafa metfjárhagsfyrirgreiðslu á síðasta ári. Upplýsingar um að svo hafi ekki verið hafa komið frá forsvarsmönnum þessara fyrirtækja, jafnvel á sömu dögum og þeir hafa verið að sækja lánatékkana sína. Lánveitingar Byggðasjóðs eru opinber gögn. Lánveitingar ýmissa annarra sjóða eru það ekki. Í fskj. með frv. eru birtar lánveitingar Byggðasjóðs til þessara fyrirtækja á síðustu árum og einnig þær lánveitingar sem hafa orðið með sérstökum hætti á árinu 1982, sem mér er sagt að sé ekki trúnaðarmál, en er lærdómsríkt og nauðsynlegt, ekki síst fyrir íbúa þessara byggðarlaga, að afla, því að það er ekki rétt að Byggðasjóður eða aðrar lánastofnanir hafi brugðist.

Herra forseti. Við Alþfl.-menn teljum að gersamlega þýðingarlaust sé að halda áfram á þessari braut stöðugra bráðabirgðalausna. Algert meginatriði er að menn láti þeim lokið, en stígi í þeirra stað fyrsta skref í átt til gerbreyttrar stefnu og stjórnunar í efnahagsmálum þjóðarinnar. Í samræmi við það telur flokkurinn að nú eigi að samþykkja eftirtaldar ráðstafanir:

1. Með breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt verði komið á afkomutryggingu heimila, þar sem þjóðfélagið ábyrgist öllum þegnum sínum tiltekið lágmarkslífskjarastig, sem verðbólga, skattahækkanir, tekjumissir vegna sjúkdóma, aldurs og örorku, atvinnumissir og aðrar slíkar aðstæður fá ekki hróflað við. Jafnframt verði með breytingum á sömu lögum tryggð jöfnun á orkukostnaði. Með slíkri ábyrgð þjóðfélagsins um tiltekna lágmarksamkomu munu byrðar hinna erfiðu ára lenda á bökum þeirra sem þær byrðar geta borið. Sú er till. Alþfl. að slíkt skuli gert.

2. Með breytingu á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins og með breytingu á fjárlögum verði stigið fyrsta skref í afnámi útflutningsbóta á landbúnaðarafurðir með því að lækka þá fjárhæð, sem til þess er ætluð á fjárlögum, um fjórða hluta. Í staðinn verði landbúnaðinum veittur tímabundinn framleiðslu- og framleiðnistyrkur til stuðnings við nýjar og ábatasamar búgreinar og uppbyggingu iðnaðar í dreifbýli. Frv. að lögum um þetta efni liggur þegar á borðum alþm. flutt af Alþfl.

3. Samþykkt verði frv. um tímabundna stöðvun á innflutningi fiskiskipa og hagkvæmni í endurnýjun fiskiskipastólsins. Áhersla verði lögð á að efla hagræðingu og tækniframfarir í fiskvinnslu og breytingar í þá átt gerðar á lögum og reglum um lánveitingar stofnlánasjóða. Þetta frv. liggur ennfremur á borði alþm. tilbúið til afgreiðslu.

4. Kosin verði af Alþingi nefnd til að gera í samráði við sjómenn og útvegsmenn tillögur um veiðileyfastjórn á fiskveiðum þannig að full og hagkvæm nýting fáist á íslenskum fiskimiðum og hagstæðustu útgerðaraðstæður fái að njóta sín. Tillaga um þetta efni liggur á borðum alþm. flutt af Alþfl. tilbúin til afgreiðslu.

5. Allt sparifé verði samstundis verðtryggt til að tryggja hag sparifjáreigenda og skapa á ný nægilegt framboð á lánsfé. Jafnframt verði samþykkt frv. um breytingu á útreikningsreglum lánskjaravísitölu þannig að greiðslubyrði af verðtryggðum lánum hjá almenningi geti aldrei aukist umfram hækkun verðbóta á laun. Þetta frv. liggur reiðubúið á borðum þm. flutt af þm. Alþfl. tilbúið til afgreiðslu.

6. Til þess að mæta sérstaklega áhrifum verðtryggingarstefnunnar gagnvart húsbyggjendum verði samþykkt frv. um sérstakt viðbótarlán úr bankakerfinu til húsnæðisöflunar. Þetta mál liggur einnig fyrir Alþingi flutt af þm. Alþfl. tilbúið til afgreiðslu.

7. Á næstu þremur árum verði ný erlend lán takmörkuð við skuldbreytingar og erlenda kostnaðarþætti arðbærra framkvæmda, en önnur erlend lántaka verði bönnuð. Þessa till. mun þingflokkur Alþfl. gera, komi einhvern tíma í dagsins ljós frv. ríkisstj. um lántökur.

8. Framkvæmdastofnun ríkisins verði lögð niður í núverandi mynd, en byggðastefna verði mörkuð við afgreiðslu Alþingis á fjármögnunar- og framkvæmdaáætlunum í byggðamálum til fjögurra ára í senn. Framkvæmd á slíkum áætlunum verði í höndum aðila sem lúti sameiginlegri stjórn ríkisvalds og sveitarfélaga. Einnig hefur frv. um þetta efni verið samið og flutt af þm. Alþfl.

Herra forseti. Þetta eru ekki bara innantóm orð, eins og í yfirlýsingu hæstv. ríkisstj. sem hún gaf í ágústmánuði og ekkert hefur sést í efndirnar á. Þetta varðar mál sem þegar hafa verið sniðin í lagabúning og flutt inn á Alþingi og liggja þar tilbúin til afgreiðslu, til samþykktar, til breytingar eða til synjunar. Þetta er ekki tímabundin skammtímaráðstöfun, sem rennur úr gildi á þremur, tveimur, einum mánuði, eins og brbl. hæstv. ríkisstj. gera. Þetta er till. um kerfisbreytingu, — ekki bara um gerbreytta efnahagsstefnu, heldur einnig um gerbreyttar starfsaðferðir við stjórnun efnahagsmála. Einasta vonin fyrir okkur til þess að stöðugar fórnir launafólks í baráttunni við verðbólguna fari að skila einhverjum árangri, er að menn fallist á að gera slíka kerfisbreytingu á íslenskum efnahagsmálum. Slík breyting mun ein skila árangri. Af hverju? Af því að hún er varanleg. Ef við breytum okkar efnahagskerfi, ef við breytum okkar stjórnarháttum, erum við að gera varanlega breytingu og slík varanleg breyting er það eina sem skilað getur varanlegum árangri, er það eina sem getur tryggt venjulegu launafólki að fórnir þess í baráttunni við verðbólguna fari að skila árangri.

Það frv. til staðfestingar á brbl., sem hér er til afgreiðslu, gerir á hinn bóginn einungis ráð fyrir kaupskerðingu hjá launafólki. Slík ráðstöfun ein sér er ósanngjörn og það er þegar komið í ljós að hún hefur engum árangri skilað. Alþfl. er því andvígur frv. og munu þm. flokksins greiða atkv. gegn 1. gr. þess.