28.01.1983
Neðri deild: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1600 í B-deild Alþingistíðinda. (1352)

85. mál, efnahagsaðgerðir

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Með vísun til þess, sem ég áður hef sagt um fundahaldið í dag, að ekki verður gengið til atkv. um dagskrármálið, þá er það ákvörðun mín að þing standi eigi lengur en til kl. 3 nú, líka með vísun til þess að þingflokksfundir hafa verið boðaðir á þeim tíma. Ég leyfi mér að kalla hv. 1. þm. Reykn. frsm. 3. minni hl. fjh.- og viðskn., enda þótt hans álit hafi enn eigi verið lagt fram, og tekur hann nú til máls, en eins og ég hef þegar sagt eru aðeins 9 mínútur til stefnu.