28.01.1983
Neðri deild: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1602 í B-deild Alþingistíðinda. (1354)
85. mál, efnahagsaðgerðir
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Reykn. komst svo hér að orði áðan, að meðferð þessa máls væri einsdæmi í þingsögunni o sagðist hann hafa nokkuð langa þingsögu að baki. )~g held að ég verði að segja, og er mín þingsaga víst ívið lengri, að hann hafði mjög mikið til síns máls í þessum ummælum. Mér virðist nefnilega að framkoma hans sjálfs og nokkurra þm. úr hans eigin þingflokki sé með þeim hætti að ég minnist ekki slíkra vinnubragða.
Þetta frv. er búið að vera til meðferðar á Alþingi á þriðja mánuð. Þegar Ed. þingsins hafði það til meðferðar voru haldnir sameiginlegir fundir fjh.- og viðskn. úr báðum deildum. Þetta voru mjög margir og langir fundir, þar sem til voru kallaðir allir þeir sem óskað var upplýsinga frá og fengnar mjög ítarlegar skýrslur og upplýsingar um málið. En svo er mál með vexti, að nefndir vinna þannig saman, að þegar málið er til meðferðar í hinni fyrri deild, þá er það venja hér á þingi að þegar málið kemur til seinni deildar taki nefnd í þeirri deild sér tiltölulega skamman tíma þar sem hún er búin að kynna sér ásamt nefndinni úr hinni deildinni alla málavöxtu.
Nú kemur málið hingað, er afgreitt frá hv. Ed. 18. jan., fyrir 10 dögum og þegar það kom til þessarar hv. deildar til 1. umr. miðvikudaginn 19. jan. bar ég fram þá ósk við hv. þd., nefnd og hæstv. forseta deildarinnar að reynt yrði að ljúka þessu máli fyrir lok þeirrar viku sem nú er senn á enda. Þetta var ósköp eðlileg ósk og ekki til mikils mælst vegna þeirra vinnubragða sem áður voru viðhöfð. Þá gerist það hér, að hv. 1. þm. Reykn. og fáeinir félagar hans upphefja hér hið mesta málþóf, sem stóð í nærri tvo tíma og tók mestallan tíma þessarar hv. deildar þann dag, frá kl. 2 til nær 4, svo það munaði minnstu að málið sjálft kæmist ekki til umr. svo að hægt væri að flytja framsöguræðu. Þannig hafa þessi vinnubrögð, sem þessi hv. þm. var að lýsa að væru einsdæmi, haldið áfram — allt miðaði að því markmisst að tefja og trufla meðferð málsins.
Nú liggur það fyrir, að mikill meiri hluti þessarar hv. deildar hefur ekki við það að athuga og felur það eðlilegt að málið næði afgreiðslu í þessari viku. Það eru ekki aðeins stuðningsmenn frv., heldur hefur Alþfl., annar stjórnarandstöðuflokkurinn, sýnt fullan drengskap í því og lýst því yfir að þótt andvígur sé frv. muni hann ekki á nokkurn hátt leggja stein í götu þess að það fengi afgreiðslu í þessari viku. En þarna eru nokkrir hv. þm. sem misbeita valdi sínu til að koma í veg fyrir að vilji þingsins nái fram að ganga. Þetta eru einstök vinnubrögð. Ég held að það sé alveg hárrétt hjá hv. 1. þm. Reykn. Ég minnist ekki slíks.
Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta, en öllum þingheimi og alþjóð er kunnugt hvernig þessi vinnubrögð, þessar tafir, þetta sem hv. þm. færir fram, eru eingöngu átyllur tilbúnar til að fela aðaltilganginn að tefja og trufla. Um það skal ég ekki fara fleiri orðum. Þessi framkoma dæmir sig sjálf. En ég vil taka það fram, að hæstv. forseti þessarar deildar hefur lagt sig mjög fram um að greiða götu þessa máls og fá sæmilega samstöðu um að afgreiða það. Og þótt svo horfi að málið nái ekki afgreiðslu í dag, þá vil ég láta hæstv. forseta vita það, að hans viðleitni í þessu efni er verulega mikils metin.