31.01.1983
Efri deild: 33. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1606 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)

173. mál, umferðarlög

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Hér er vissulega hreyft ágætu öryggismáli um að bifreiðir, bifhjól og vélhjól aki með ljósum allan sólarhringinn. Raunar er það svo, að margir gera þetta nú þegar en mættu vera fleiri. Tilefni þess að ég kvaddi mér hljóðs er hins vegar sú staðreynd að býsna lengi hafa umferðarlögin verið í endurskoðun. Ég vildi af því tilefni beina spurningu til hæstv. dómsmrh. og óska eftir því að forseti láti kanna hvort ráðh. getur komið því við að vera hér í deildinni stundarkorn. (Forseti: Það mun verða athugað.)

Það eru býsna mörg atriði, ótrúlega mörg, í umferðarlögunum sem ástæða væri til að breyta og hrófla við — ekki bara þetta öryggisatriði heldur fjölmörg önnur.

Ég minni þar á t.d. ákvæðið um notkun öryggisbelta, sem samþykkt var á sínum tíma að ekki skyldu vera viðurlög við, þó svo öryggisbeltaskyldunni væri ekki sinnt, og það var bundið við þann tíma er endurskoðun umferðarlaga lyki. Hins vegar voru menn þá svo bjartsýnir að búast við að þessi endurskoðun umferðarlaganna tæki ekki nema tiltölulega skamman tíma. Sú endurskoðun, þó að hér sé ekki um sérstaklega flókinn lagabálk að ræða, hefur þó tekið ótrúlega langan tíma og virðist lítt á því bóla að nokkrar breytingar eða tillögur sjáist til bóta. Ég held að það sé t.d. orðið brýnt að gera ráðstafanir til þess að reglunum um notkun öryggisbelta í bifreiðum verði betur framfylgt en verið hefur. Það gerist áreiðanlega ekki öðruvísi en að einhver viðurlög verði við því ef menn ekki hlíta þessum reglum, svo sem annars staðar er og svo sem hefur sýnt sig að því miður er nauðsynlegt til þess að eftir þessum reglum sé farið.

Ég hefði sem sé viljað beina þeirri spurningu til hæstv. dómsmrh., hvenær væri að vænta tillagna umferðarlaganefndar, sem nú hefur starfað í ein tvö eða þrjú ár. Ef þeirra tillagna er ekki að vænta á næstunni er e.t.v. ástæða til að flytja brtt. við ýmsa fleiri þætti umferðarlaga. — Það virðist eitthvað erfitt (Forseti: Ritari deildarinnar er að leita að ráðh.) að ganga úr skugga um hvort hæstv. dómsmrh. er hér í húsinu. Ég doka bara við. (Gripið fram í.) Ef hæstv. dómsmrh. er ekki í húsinu nær þetta náttúrlega ekki lengra. Þá verður fsp. mín að bíða betri tíma. E.t.v. má fresta þessari umr. (Forseti: Eigum við ekki aðeins að hinkra eftir ritara. Þá kemur í ljós hvort maðurinn er í húsinu.) Ég mun óska eftir því að umr. verði frestað, þannig að ráðrúm gefist til þess að svar fáist, ef í ljós kemur að hæstv. ráðh. er ekki viðlátinn. (Forseti: Ef hv. þm. vill hinkra örlítið enn o fá úr því skorið hvort ráðh. er í húsinu eða ekki.) Ég hef nægan tíma. (Forseti: Það hefur komið í ljós að hæstv. ráðh. virðist vera í húsinu, en finnst því miður ekki. En hv. þm. hefur beðið um að umr. verði frestað. Ég mun reyna að fresta henni þá um sinn, en taka málið ekki út af dagskrá.) Það er sem sagt ósk mín, herra forseti, að þessari umr. verði þá frestað þangað til hæstv. dómsmrh. getur verið við hér í deild, hvort sem það verður í dag eða síðar. (Forseti: Hæstv. dómsmrh. hefur nú komið í deildina og það hefur verið beint til hans fsp. eða óskað eftir að hann hlýddi á umr. Þá gef ég hv. 5. þm. Vesturl. aftur orðið.)

Herra forseti. Það var vegna umr. um þá breytingu á umferðarlögum, sem hv. 4. landsk. þm. Salome Þorkelsdóttir hefur mælt fyrir, um að bifreiðar, bifhjól og vélhjól skuli aka með ljósum allan sólarhringinn, að ég beini hér með þeirri fsp. til hæstv. dómsmrh. hvort líkur séu á því að endurskoðun umferðarlaga, sem nú hefur kannske ekki staðið jafnlengi og endurskoðun stjórnarskrár en hefur samt staðið ótrúlega lengi, sé að ljúka, vegna þess að ef þeirri endurskoðun er ekki að ljúka og engar horfur á að henni ljúki á næstunni held ég að það sé brýnt að breyta ýmsum fleiri ákvæðum umferðarlaga en þessu eina. Þetta er vissulega breyting sem er til bóta og breyting sem nauðsynlegt er að eigi sér stað, en það er svo margt annað í umferðarlögunum sem þarf að breyta að það væri þá ástæða til þess að taka miklu fleiri mál upp um leið. En ég verð að segja það alveg — eins og er, að þessi endurskoðun umferðarlaga hefur gengið undrahægt fyrir sig. Því er það spurning mín til hæstv. dómsmrh., hvenær Alþingi megi vænta þess að fram verði lagt frv. til nýrra umferðarlaga, sem sagt, hvenær líkur séu á að þessari endurskoðun ljúki.