01.02.1983
Sameinað þing: 43. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (1381)
Umræður utan dagskrár
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár vegna verðhækkana á raforku, sem dunið hafa yfir landsmenn.
Í Þjóðviljanum 28. jan. er þess getið að 29% verðhækkun sé væntanleg hjá Landsvirkjun 1. febr. Það er látið að því liggja að þessi verðhækkun sé ákvörðun stjórnar Landsvirkjunar einnar. Hér stendur, með leyfi forseta:
„Stjórn Landsvirkjunar fer með allt ákvörðunarvald í þessum efnum samkv. núgildandi lögum og þarf ekki að leita samþykkis hjá gjaldskrárnefnd, Verðlagsstofnun eða ríkisstj.“
Í Dagblaðinu, 22. tölublaði, er viðtal við hæstv. ráðh., þar sem orðrétt er haft eftir honum, með leyfi forseta:
„Með þessari síðustu hækkun Landsvirkjunar hefur raforkuverð hækkað um 800% á þremur árum, á sama tíma og verðlag hefur hækkað um 275% miðað við byggingarvísitölu.“
Það fer ekki milli mála að Landsvirkjun hefur með sínum hækkunum slegið öllum opinberum stofnunum við. Það hlýtur að vera ærið umhugsunarefni hjá hæstv. seðlabankastjóra, þegar hann næst tekur sig til og semur ræðu á hátíðis- eða tyllidögum og kemur á framfæri sínum boðskap, að ríkisstj. hafi brugðist í efnahagsmálum, að víkja örfáum orðum að stjórnarformönnum í ríkisstofnunum sem fara í fylkingarbrjósti í verðhækkunum í landinu. Ég tel að það hljóti að vera fyrsta spurning hins óbreytta: Hvaða fjárfestingarmistök hafa átt sér stað hjá Landsvirkjun á undanförnum árum sem gera það að nauðsyn að hún fái 800% verðhækkun á sama tíma og byggingarvísitala hefur hækkað um 275%.
Í þeim blaðaviðtölum, sem ég hef lesið hér, hefur ráðh. nánast þvegið hendur sínar af allri ábyrgð á þessum hækkunum, sem hér er minnst á. Þetta er þó málaflokkur sem undir hann heyrir og einnig hlýtur það að vera eðlilegt, ef ráðh. telur sig ekki hafa völd til afskipta á þessu sviði, að hann leiti eftir lagabreytingum, hafi frumkvæði um að leggja það til sem tryggi að eðlilegt aðhald geti átt sér stað á þessu sviði. Ég vitna í ræðu, sem hann flytur á SÍR-þingi nú í haust. Þar spyr hann, með leyfi forseta:
„Í þessu sambandi er vert að hafa í huga lög um Landsvirkjun, þar sem segir m.a. í 11. gr.:
„Til orkusölusamninga til langs tíma við iðjufyrirtæki, sem nota meira en 100 millj. kwst. á ári, þarf Landsvirkjun leyfi ráðh. þess, er fer með raforkumál. Slíkir samningar mega ekki að dómi ráðh. valda hærra raforkuverði til almenningsrafveitna en ella hefði orðið.““
Vissulega má um það deila samkv. orðanna hljóðan, hvort þetta eigi aðeins að gilda þann dag sem ráðh. tekur ákvörðunina, svo sé allt í lagi að halda áfram með verðhækkanir, ef hann er fallinn frá og aðrir menn teknir við. Ef svo er er lagatextinn meingallaður og eðlilegt að lagðar verði til breytingar á þessum lagatexta hið bráðasta.
Ég vil vekja á því athygli, að 11. gr. í landsvirkjunarlögunum er af þeim sem sömdu lögin örugglega hugsuð á þann — veg, að hún eigi að tryggja rétt almennings í þessu landi til að fá raforku á sannvirði. Ég vil lesa nú upphaf þessarar greinar, með leyfi forseta, til að varpa ljósi á hver er höfuðtilgangur greinarinnar:
„Stjórn Landsvirkjunar ákveður, að fengnum tillögum Efnahagsstofnunarinnar, heildsöluverð Landsvirkjunar á raforku. Skal raforkuverðið við það miðað, að eðlilegur afrakstur fáist af því fjármagni, sem á hverjum tíma er bundið í rekstri fyrirtækisins. Einnig skal að því stefnt, að fyrirtækið skili nægilegum greiðsluafgangi til þess að það geti jafnan með eigin fjármagni og hæfilegum lántökum tryggt notendum sínum næga raforku. — Landsvirkjun gerir orkusölusamninga við Rafmagnsveitur ríkisins, héraðsrafmagnsveitur og iðjuver, innan þeirra marka sem segir í 2. gr. Til orkusölusamninga til langs tíma við iðjufyrirtæki, sem nota meira en 100 kwst. á ári, þarf Landsvirkjun leyfi ráðh. þess, er fer með raforkumál. Slíkir samningar mega ekki að dómi ráðh. valda hærra raforkuverði til almenningsrafveitna en ella hefði orðið.“
Þarna er aftur komið að niðurlagsorðum greinarinnar, þeim orðum sem hæstv. ráðh. vitnaði til í sinni ræðu. Ég tel að orðalag þessarar greinar hefði þurft að vera miklu ákveðnara. Það hefði þurft að standa hér skýrum stöfum að óheimilt væri með öllu að velta yfir á almenning í landinu afleiðingum af röngum orkusölusamningum. En hægjum örlítið á því að meta hvað lög leyfa í þessum efnum og hvert raunverulegt vald hæstv. ráðh. er í reynd.
Hæstv. ráðh. hefur gengið frá samningi fyrir hönd ríkisstj. milli Íslands og Laxárvirkjunar um yfirtöku á byggðalínum o.fl. Í þessum samningi er verið að afhenda bestu virkjunarkosti þessa lands fyrirtæki sem hefur að dómi ráðh. lítið eigið fé. Það hefði verið eðlilegt undir þeim kringumstæðum að það væri gengið frá í fyrsta lagi aukinni aðild ríkisins að þessu fyrirtæki. Það getur ekki verið eðlilega staðið að verki að stór bæjarfélög á Íslandi skuli vera helmingseigendur á móti íslenska ríkinu í virkjun sem er landsvirkjun fyrir landið allt. Það hlýtur að vera mjög óeðlilegt að um leið og virkjunarrétturinn var afhentur skyldi ekki vera gengið frá aukinni eignaraðild íslenska ríkisins. En hitt er þó ennþá undarlegra, að eftir að hæstv. ráðh. er búinn að vera vitni að þeirri gífurlegu verðhækkunarskriðu, sem orðið hefur á raforku í hans stjórnartíð, skuli hann ekkert gera í þessum samningi til að tryggja að raforkuverð til almennings í landinu markist ekki alfarið af því að Landsvirkjun geti samið um svo óhagstæða raforku til stórfyrirtækja að það sé eina nauðvörnin að velta því yfir á almenning.
Hitt vekur svo ekki síður spurningu, ef stefnan er að leggja skuli á skatta sem eigi að greiða með orkusölusamningunum, hvort réttlætanlegt sé að taka þá í gegnum raforkuna. Þá erum við komin að kjarnaatriði: Hverjir eru það sem greiða? Jú, það eru raforkukaupendurnir á Íslandi, segja menn. Það hlýtur að vera nokkuð jafnt. Svo er þó ekki í reynd.
Á hinum „heitu svæðum“ þessa lands, þar sem hitaveitur eru, má gera ráð fyrir að meðalheimili noti 34 þús. kwst. á ári, en á heimili úti á landi, þar sem menn kaupa raforku til upphitunar íbúðarhúsnæðis, nota menn raforku sem er að magni til 37–38 þús. kwst. á ári. Hvernig haldið þið að svona skattheimta komi þá út? Það er verið með þessu móti að standa þannig að verki að hin „köldu svæði“ Íslands eru að borga stórkostlegan skatt með stóriðjunni í landinu. Stórkostlegan skatt. Í orði kveðnu er verið að tala um að það sé verið að greiða niður raforku til húsaupphitunar og það sé jöfnunargjald á raforku, en í framkvæmd kemur þetta þannig út með þessari gífurlegu verðhækkun á raforku að það er verið að skattleggja þessi svæði fyrir stóriðjuna í landinu.
Fyrir nokkrum árum var mörkuð sú stefna að Íslendingar skyldu draga úr olíukaupum og hætta að nota olíu til upphitunar íbúðarhúsnæðis og nota innlenda orkugjafa í staðinn. Ég hygg að hver einasti Íslendingur hafi fagnað þessari stefnu. En með 800% hækkun á heildsöluverði á raforku hefur þessi stefna snúist upp í martröð. Dreifbýlið, sem vonaði að það mundi fá raforku á sanngjörnu verði til upphitunar íbúðarhúsnæðis, situr í dag uppi með það, að í reynd er verið að skattleggja það í þágu stóriðjunnar.
Nú munu e.t.v. einhverjir spyrja: Nær það nokkurri átt að vera að hella úr skálum reiði sinnar yfir hæstv. iðnrh. í þessu máli? Eru það ekki bara lögin sem eru þess efnis að fram hjá þeim verði ekki gengið? En í Þjóðviljanum 16. nóv. er vitnað í ræðu hæstv. iðnrh. og þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Um það var samkomulag milli stjórnvalda og Landsvirkjunar í apríl s.l. að í stað þess að fyrirtækið tæki þá stórt stökk í hækkunum gjaldskrár yrði slíkum hækkunum dreift á nokkur tímabil með það að markmiði að rekstrarhallinn í ár fengist bættur með tekjuauka á næsta ári (1983).“
Það er nefnilega, ef grannt er skoðað, um samkomulag að ræða milli hæstv. ríkisstj. og Landsvirkjunar um að velta þessum hækkunum yfir á þjóðina. Ég held að hverjum þeim sem les þetta hljóti að vera ljóst að það er um kattarþvott að ræða þegar allri ábyrgð er varpað á stjórn Landsvirkjunar í þessu máli. Hitt bið ég menn að hugleiða, hversu auðvelt það er að ætla að draga úr verðbólgunni í þessu landi meðan fyrirtæki á borð við Landsvirkjun leikur lausum hala í sínum verðlagsákvörðunum og hefur samþykkt 800% hækkun á raforku.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, en vænti þess að hæstv. iðnrh. geri grein fyrir því samkomulagi sem gert var í apríl um þessi efni.