01.02.1983
Sameinað þing: 43. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1636 í B-deild Alþingistíðinda. (1382)
Umræður utan dagskrár
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Hv. 5. þm. Vestf. kemur hér upp utan dagskrár til að ræða mál sem er eflaust ekki áhyggjuefni hans eins. Ég tel að oft hafi verið hafin umræða utan dagskrár á Alþingi af minna tilefni en hann vekur hér máls á. Hann kom hér að mörgum þáttum í mjög stóru máli og stóru samhengi, sem gæti tekið alllangan tíma að fara yfir, ef ætti að gera því skil. Ég mun taka nokkurn tíma til að fara yfir helstu efnin í því sem hann vék hér að. Ég hlýt að vekja athygli hv. fyrirspyrjanda á því, að hann getur áreiðanlega átt kost á því að leggja lið í sambandi við úrbætur í þessum málum, þær stórfelldu hækkanir raforku sem yfir hafa gengið á liðnum misserum og úrlausnir í því efni.
Það kom fram í máli hv. þm. og er eftir mér haft í blöðum nýlega að gjaldskrá Landsvirkjunar hafi hækkað á s.l. þremur árum um nærfellt 800%, á sama tíma og vísitala byggingarkostnaðar hafi hækkað um 275%. Þetta er rétt, ef tekin er inn í til viðbótar þremur árum sú 29% verðhækkun sem ákveðin var af stjórn Landsvirkjunar á heildsöluverði raforku frá Landsvirkjun núna 1. febr., þ.e. ef við tökum það gjaldskrártímabil til viðbótar. En ef aðeins er litið til þriggja ára rammans, þá er þetta um 600% hækkun á móti 275% hækkun byggingarvísitölu, sem eru raunverulega hinar sambærilegu tölur í þessu samhengi.
Ég tel rétt að rekja hér til frekari skýringar, af því að prósentutölur segja kannske ekki alltaf alla söguna, hver hefur verið hækkunin á gjaldskrá Landsvirkjunar innan hvers árs á þessu tímabili: Árið 1980 90.7%, árið 1981 66.2% og árið 1982 119%. Ráðgerð hækkun á heildsöluverði raforku hjá Landsvirkjun, samkv. þeim áætlunum sem lagðar hafa verið fyrir rn. varðandi gjaldskrárbreytingar á þessu ári, þar sem 29% hækkunin er fyrsta skrefið, er 125.9%.
Menn hafa hér fyrir sér hækkunarferli sem veltir upp á sig. Þannig koma samreiknað tölur af því tagi, sem hér liggja fyrir, þ.e. nærfellt 600% hækkun á þriggja ára tímabili. Ef við bætist síðan hækkunin innan þessa árs, þá verður hækkunin framreiknuð 1468% á fjórum árum. Þetta eru hækkanir miðað við þessi tvö ár, s.l. ár og yfirstandandi ár, miðað við þær verðbólguforsendur sem stjórn Landsvirkjunar gefur sér, um 50% verðbólgu. Það er nú ekki meira verðbólgustig sem Landsvirkjun leggur til grundvallar, þegar hún áætlar hartnær 126% hækkun á raforkuverði, þannig að hún hefur fyrirvara um að þessi hækkun gæti orðið meiri, miðað við þá fyrirætlan að tryggja hallalausan rekstur á árunum 1982 og 1983 samanlagt. Þetta er um tvöfalt meiri hækkun í prósentum heldur en verðhækkanir almennt innan viðkomandi ára.
Mál liggja þannig, að frá ársbyrjun 1982 hefur Landsvirkjun lögformlegt vald til þess, án atbeina stjórnvalda, að ákveða sína gjaldskrá. Um þau áramót féllu úr gildi lög nr. 94 frá 1970, um ráðstafanir til stöðugs verðlags og atvinnuöryggis, eins og þau hétu. Þar með gilda eingöngu ákvæði 11. gr. laga um Landsvirkjun varðandi ákvörðun gjaldskrár fyrirtækisins. Það eru engin ákvæði í lögum sem heimila stjórnvöldum inngrip í þá verðákvörðun. Hefur verið yfir það farið af hálfu lögfræðinga á vegum Landsvirkjunar svo og iðnrn., sem á þessi mál hafa litið, þannig að valdið er í höndum stjórnar Landsvirkjunar frá ársbyrjun 1982 að telja.
Það er vert að líta á hækkunina 1980, sem var nærfellt 90%. Ég tel mig muna það rétt, að árið áður, 1979, voru hækkanir til Landsvirkjunar innan við eða a.m.k. ekki verulega fram yfir almennar verðhækkanir. Veturinn 1979–1980 var sviptingasamt tímabil. Það var á seinni hluta ársins 1979, að mig minnir sem ekki voru heimilaðar teljandi hækkanir til Landsvirkjunar, sem aftur olli því að stjórnvöld töldu óhjákvæmilegt að leyfa meiri hækkanir en ella hefðu orðið á árinu 1980. Á árinu 1981 er verðhækkunin um 66%, en síðan, eftir að Landsvirkjun hafði heimild til ákvarðana um þessi efni, tvöfalt meiri en almennar verðhækkanir í landinu.
Hv. 5. þm. Vestf. vék að því að ríkisstj. hefði beint þeim tilmælum til Landsvirkjunar s.l. vor, að í stað þess að taka mjög stórt skref í verðhækkunum yrði leitast við að dreifa verðhækkunum á lengra tímabil. Þetta er alveg rétt. Um þetta var rætt af fulltrúum stjórnar Landsvirkjunar og ríkisstj. og um það hafði ég að sjálfsögðu forgöngu, að slík stefna yrði mörkuð, í stað þess að láta eina stóra verðhækkun skella á með þeim afleiðingum sem það hefði haft. Á þeim tíma voru einnig og hafa verið síðan uppi um það áform og að því unnið að fá fram breytingar á verðlagningu raforku til stóriðju í landinu, en það eru samningar þar að lútandi, eins og réttilega kom fram í máli hv. ræðumanns hér áðan, sem valda mestu um það að verðhækkanir á raforku til Landsvirkjunar eru svo gífurlegar, umfram það sem almennt hefur verið í sambandi við verðlagningu hér í landinu, og verður þó að segja að við getum ekki kallað allt ömmu okkar, ef litið er til liðinna ára.
En við skulum aðeins horfa á þær skýringar sem fram eru bornar í þessu máli. Hvernig stendur á þessum miklu hækkunum? Auðvitað ber að hafa í huga að Landsvirkjun hefur í sambandi við sínar miklu framkvæmdir tekið mikið af lánum. Framkvæmdir hennar hafa að yfirgnæfandi hluta verið fjármagnaðar með erlendum lánum, sem auðvitað taka breytingum með breytingum á gengi gjaldmiðla og gengisskráningu íslenskrar krónu. Heildarlán Landsvirkjunar í árslok 1982 voru, að því er ég hef fengið upplýsingar um frá fyrirtækinu, 341.3 millj. Bandaríkjadala, umreiknað í Bandaríkjadali. Af þessum lánum voru 65% í dollurum, í Bandaríkjadölum, af þessari stóru lánafúlgu.
Það segir sig sjálft, að fjármagnsbyrðin af þessum miklu lánum hefur farið hækkandi með háum vöxtum, ekki síst á dollurum, og koma hér inn í af verulegum þunga. Við skulum ekkert horfa fram hjá því. Hitt er þó enn meiri þáttur í þessu máli, orkusölusamningarnir um stóriðju, og þá fyrst og fremst orkusölusamningurinn við Íslenska álfélagið h.f., sem er svo óralangt frá því að standa undir kostnaði við framleiðslu raforku í landinu frá nýjum virkjunum, að hrikalegt er á að horfa. Við skulum bara líta á eina tölu í því sambandi. Hvað fáum við greitt núna í íslenskri mynt fyrir kwst. sem rennur til álversins í Straumsvík? Hvað fáum við fyrir þessi 6.45 eða 6.47 mill Bandaríkjadala, sem greitt er fyrir þetta? Það eru rétt rúmlega 12 aurar íslenskir, 12.1 eyrir miðað við gengisskráningu fyrir fáum dögum. En verðið til almenningsveitna er á sama tíma, eftir breytinguna 1. febr., 65.40 aurar, sem Landsvirkjun innheimtir af almenningsveitum í landinu. Hækkunin um 29%, sem stjórn Landsvirkjunar ákvað um daginn, nemur 14.7 aurum á kwst. eða um 2.5 aurum meira en samtals fæst fyrir sama orkumagn samkv. orkusölusamningnum við álverið í Straumsvík.
Hér er náttúrlega að finna meginskýringuna á þeim aðstæðum sem Landsvirkjun býr við. Þrátt fyrir allar þessar gjaldskrárhækkanir, þrátt fyrir nær 600% hækkun gjaldskrár á þremur árum var fyrirtækið rekið með nær 150 millj. kr. halla á s.l. ári. Og það er þessi halli sem stjórn fyrirtækisins hefur einsett sér að reyna að vinna upp. Ég tel það að sjálfsögðu eðlilegt markmið að þessi þýðingarmiklu undirstöðufyrirtæki í landinu séu rekin þannig, að þau séu ekki baggi á þjóðarbúinu. En það er ekki sama hvernig að þeirri tekjuöflun er staðið. Ég er alveg sammála hv. ræðumanni um það, að það er ekki sanngjarnt, það er þvert á móti mjög ósanngjarnt að skattleggja þurfi almenning í landinu til þess að greiða með raforku til erlendra auðfélaga, eins og nú gerist í ríkum mæli og það þannig, að mjög misjafnt kemur niður á fólkinu í landinu. Ég vænti þess að hv. þm. Ólafur Þórðarson og aðrir hv. alþm. verði ötulir stuðningsmenn þess að leiðrétta þetta dæmi, þegar til kasta Alþingis kemur von bráðar að taka á þessu máli til leiðréttingar.
Það er ekkert launungarmál og hefur komið fram, að nú þegar fyrirsjáanlegt er að Alusuisse ætlar ekki að koma neitt til móts við sanngirniskröfur okkar Íslendinga um leiðréttingu á þessum orkusölusamningi, sem hirðir nær helminginn af þeirri orku sem Landsvirkjun framleiðir, þá hef ég mótað um það tillögur, sem liggja fyrir hæstv. ríkisstj., að gripið verði til einhliða aðgerða af Íslands hálfu í nauðvörn til að leiðrétta þennan orkusölusamning með sanngjörnum hætti. Hv. þm. Ólafur Þórðarson verður vafalaust ötull talsmaður í sínum flokki fyrir því að við stígum slíkt skref, sem er algerlega óhjákvæmilegt að mínu mati að stigið verði, og þarf ekki öllu skýrari rök fyrir því en hann sjálfur rakti hér í sambandi við þá þróun sem orðið hefur á orkuverði og þann skatt sem íslenskur almenningur, mót því sem er lögfest í lögum um Landsvirkjun, mót anda þeirra laga verður nú að greiða til Íslenska álfélagsins, dótturfélags Alusuisse.
Ég vil jafnframt láta þess getið, að ég hef gert um það till. í ríkisstj. nú fyrir skemmstu að sett verði lög, sem kveði á um það að orkuveitufyrirtæki, þar með talin Landsvirkjun, falli ótvírætt undir verðlagseftirlit og ákvörðunarvald stjórnvalda, þannig að þau geti hlutast til um að ekki verði þarna áframhaldandi þróun af því tagi sem við höfum horft fram á, að unnt sé að hafa þar áhrif á af hálfu stjórnvalda. Því að það hlýtur að teljast óeðlilegt að veitufyrirtæki, hversu þýðingarmikil sem þau eru, og kannske alveg sérstaklega veitufyrirtæki sem mega flokkast undir einokunarfyrirtæki, sem standa ein fyrir því og er gert það lögskylt að afla raforku fyrir íslensku þjóðina, séu eftirlitslaus og ekki sé fylgst með verðlagningu þeirra á orku. Ég geri ráð fyrir því að þingflokkur Framsfl. fái að fjalla um það frv. nú alveg á næstunni. Ég hef óskað eftir því við formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar, að þeir taki það mál einnig upp í sínum flokkum og kanni viðhorf til lögfestingar slíks verðlagseftirlits gagnvart orkuveitufyrirtækjum, eins og almennt gildir um þjónustufyrirtæki hins opinbera. Ég vænti þess, að um það verði samstaða að afgreiða slíkt frv. sem lög frá yfirstandandi þingi.
Ég segi þetta ekki vegna þess að ég telji það sjálfsagt mál að verðlagningu nauðsynlegra þjónustufyrirtækja sé haldið niðri án tillits til rekstraraðstæðna og þess sem almennt er að gerast í þjóðfélaginu, en þarna verður almannavaldið að hafa möguleika til að taka í taumana og hafa eftirlit og ákvörðunarvald, ef þörf þykir. Núv. ríkisstj. hefur haft áhuga á því að reyna að ná ákveðinni samvinnu við rekstraraðila veitufyrirtækja um það að þau geti breytt verðlagningu hjá sér innan tiltekinna marka án íhlutunar ríkisvaldsins eða stjórnvalda, þá eitthvað í takt við verðlagsbreytingar almennt, t.d. byggingarvísitölu. Um þetta var gerð samþykkt í ríkisstj. að mig minnir í ársbyrjun 1982. En þar með er ekki verið að afsala sér því valdi að geta gripið inn þar sem lög heimila, heldur var þarna um eins konar verklagsreglu að ræða.
Ég ætla hér ekki að fara að rekja það eða leita eftir skýringum á því, hvort og þá hvaða fjárfestingarmistök hugsanlega hafa átt sér stað í sambandi við framkvæmdir í raforkuiðnaði okkar á undanförnum árum, en að því vék hv. ræðumaður, Ólafur Þórðarson, hér áðan. Mætti þar vissulega margt um segja, ef grannt er skoðað, en ég ætla ekki að vera með neina áfellisdóma uppi um það, enda þarf að rökstyðja slíkt með skýrum hætti. Ég vek hins vegar athygli á þeim málflutningi sem við höfum heyrt hér á hv. Alþingi og lesið í víðlesnum blöðum í landinu, sem er að réttlæta gerðir fortíðarinnar, gersamlega að ástæðulausu að mínu mati, vegna þess að forsendur hafa vissulega gerbreyst frá því að gerður var orkusölusamningurinn við Alusuisse 1966, svo að menn þurfa ekki endilega að vera að láta samviskuna naga sig, eins og ýmsir hv. aðstandendur þess samnings þó virðast gera, þegar þeir eru að bera sí og æ í bætifláka fyrir þann gerning á sínum tíma.
Það atriði sem oftast er klifað á í þessum efnum er á þá leið að þetta hafi nú bara verið góður samningur, því að hann borgi upp kostnaðinn við Búrfellsvirkjun, línurnar frá Búrfelli til Faxaflóa og varaaflsstöðvar, ekki bara á 25 árum eins og áður hafði verið ráð fyrir gert, heldur á 19 árum. Og þeir leita í gögnum Landsvirkjunar til að finna þessum staðhæfingum sínum stað. Ég vil staðhæfa að jafnvel þótt þetta væri rétt, sem þarna er verið að halda fram, þá væru þetta ekki rök fyrir því að samningurinn um álverið í Straumsvík hafi verið góður samningur á sínum tíma eða réttlætanlegur. En við þetta bætist að hér er ekki rétt með farið. Þessar staðhæfingar eru ekki réttar. Þær fá ekki staðist þegar litið er á þessi mál og miðað við eðlilegar forsendur og horfur fram í tímann. Ég held að tiltölulega auðvelt sé að sýna fram á það, að orkusölusamningurinn við íslenska álverið borgi ekki upp þessa fjárfestingu á 19 árum, ekki einu sinni á 36 árum, jafnvel ekki á öllum samningstímanum, 45 árum, miðað við fast verðlag og eðlilega ávöxtunarkröfu. Ég ætla ekki að fara út í þetta hér talnalega, en ég tel að bornar hafi verið fram hrikalegar blekkingar í sambandi við þetta mál til þess að reyna að réttlæta þennan samning, sem öllu skiptir að sjálfsögðu að fá nú breytt fyrr en seinna.
Hv. ræðumaður benti á 11. gr. gildandi laga um Landsvirkjun frá 1965. Þar segir orðrétt, herra forseti: „Til orkusölusamninga til langs tíma við iðjufyrirtæki, sem nota meira en 100 millj. kwst. á ári, þarf Landsvirkjun leyfi ráðh. þess, er fer með raforkumál. Slíkir samningar mega ekki að dómi ráðh. valda hærra raforkuverði til almenningsveitna en ella hefði orðið.“
Þetta er mjög athyglisvert lagaákvæði, sem þarna er á ferðinni. Þeir hæstv. ráðh. sem stóðu að þessari samningsgerð og undirrituðu samningana og breytingar á þessum samningum á sínum tíma hafa eflaust metið það svo, að þessu ákvæði væri fullnægt þá. Og ég er ekki að vefengja það. En ég tel að þetta ákvæði, sem þarna er í lögum, fái ekki lengur staðist dóm reynslunnar, því sé í raun ekki fullnægt, og það er sannarlega umhugsunarefni fyrir það stjórnvald sem fer með þessi mál.
Ég vil bæta því hér við í sambandi við þróun mála og okkar virkjanir frá því að virkjað var við Búrfell, sem talið var réttlætanlegt að gera í tengslum við samninginn við Alusuisse 1966, að þá var tekinn okkar besti virkjunarkostur og gerður þessi orkusölusamningur í tengslum við byggingu þeirrar virkjunar. Það varð svo að sjálfsögðu til þess að miklu fyrr en ella þurfti að ráðast í næstu virkjun.
Álverið í Straumsvík notar sem svarar 90–95% af framleiddri orku Búrfellsvirkjunar. Sú virkjun, sem næst var ráðist í af Landsvirkjun, og þurfti að ráðast í löngu fyrr en ella hefði orðið, varð tvöfalt dýrari á föstu verðlagi en Búrfellsvirkjun. Þá sjá menn nú hvaða vit er í því að gera samninga sem tengja saman eina virkjun og eitt stóriðjuver og ætla að leita raka fyrir tilteknu orkuverði til 45 ára út frá slíkri uppsetningu mála.
Það voru fleiri atriði sem hv. 5. þm. Vestf. vék hér að. Hann vék að því að gerður hefði verið sameignarsamningur um nýja landsvirkjun, og það gætti ásökunartóns í orðum hans út af þeirri samningsgerð. Hann nefndi þar tvennt sérstaklega: Að ríkinu hafi ekki verið tryggður aukinn hlutur í tengslum við samninginn, sem felur í sér að við taki ný landsvirkjun með breyttum sameignarsamningi að gildandi lögum. Orkuveitusvæði fyrirtækisins verður nánast landið allt, en að þessum samningi standa tvö sveitarfélög ásamt ríkinu, Akureyrarbær og Reykjavíkurborg. Ríkið ef með 50% eignarhlut- eða heimild til þess að halda 50% eignarhlut í fyrirtækinu, en sveitarfélögin hinn helminginn á móti, Reykjavíkurborg með eitthvað um 44% og Akureyrarbær með 6% eða nálægt því, sagt eftir minni.
Það mátti skilja á hv. þm. að hann hefði talið rétt að ríkið tryggði sér aukinn hlut í sambandi við þetta. Auðvitað er álitamál hvernig að þessu hefði átt að standa, en samkomulag varð ekki um aðra tilhögun, og ekki sérstaklega eftir henni sóst af ríkisins hálfu, vegna þess að 50% eignarhlutdeild með þessum sveitarfélögum og fleiri, sem geta bæst við, er að mati þeirra sem að samningnum stóðu nægilegt til þess að tryggja hlut almannavaldsins í sambandi við málefni fyrirtækisins. Auk þess setur Alþingi lög og getur að sjálfsögðu breytt lögum varðandi Landsvirkjun. Undirbúningur hefur verið í gangi til breytinga á þeim lögum og samkomulag þar að lútandi var undirritað nú fyrir örfáum dögum af hálfu eignaraðila, m.a. til að fylgja eftir þeim breytingum sem gerðar voru með nýjum sameignarsamningi 11. ágúst 1982.
Í þeim drögum að lagafrumvarpi sem samkomulag hefur tekist um er gert ráð fyrir því að önnur sveitarfélög eða samtök þeirra hafi möguleika á að gerast meðeigendur í Landsvirkjun ásamt hinum sveitarfélögunum tveimur og þurfi til þess að reiða fram fjármagn sem nemur, má ég segja, 1% af metnum eignum fyrirtækisins. Auk þess ef gert ráð fyrir því að eins konar fulltrúaráð verði sett á fót við Landsvirkjun, fulltrúaráð með tillögurétti, sem samtök sveitarfélaga í landshlutunum kjósi menn í auk fulltrúa sem ráðherra tilnefnir. Stjórn Landsvirkjunar á þar einnig seturétt. Gert er ráð fyrir að fulltrúaráðið komi saman ekki sjaldnar en einu sinni á ári til að fjalla um málefni fyrirtækisins og einstakra landshluta, verðlagningarstefnu og annað fleira. Um þetta tókst samkomulag. Ég tel að verulegur fengur sé að slíkri aðild sveitarfélaga í landinu, þó ekki sé það eignaraðild eða bein aðild að stjórn félagsins, en þó aðild til að fylgjast með málefnum þess og gera þar um tillögur.
Hv. 5. þm. Vestf. vék að því að ekkert væri í sameignarsamningnum frá 11. ágúst 1982 sem tryggði að Landsvirkjun gæti ekki samið um óhagstæða sölu raforku til stórfyrirtækja. Það er út af fyrir sig rétt, að í þeim samningi er ekkert sem kveður á um það, en í gildandi lögum um Landsvirkjun eru fyrirmæli um viðmiðun og í endurskoðuðum lögum þarf slíkt einnig að vera og um það er gerð tillaga. Það hlýtur að vera kappsmál almannavaldsins og hv. Alþingis að saga af því tagi sem við þekkjum frá orkusölusamningnum við Íslenska álfélagið sérstaklega endurtaki sig ekki. Það eru vítin til að varast.
Þá vék hv. 5. þm. Vestf. sérstaklega að því að sá skattur sem við greiðum í raun til stóriðjunnar með raforkunni legðist misjafnt á íbúa þessa lands. Það er alveg rétt. Raforkunotkun í landinu er mjög misjöfn, alveg sérstaklega þegar litið er á landshluta þar sem raforka er notuð til upphitunar með beinum eða óbeinum hætti. Það eru milli 15 og 20% landsmanna sem búa við raforku til upphitunar og verða nálægt 20%, þegar innlendir orkugjafar hafa alfarið tekið við af olíu, sem nú er senn að hverfa úr orkunotkun í landinu.
Nú fer því fjarri að stjórnvöld hafi ekki litið á þetta mál og hina miklu byrði þess fólks sem þarf að binda sér þyngsta bagga í sambandi við húshitunarkostnað. Samkvæmt ákvörðunum ríkisstj. hefur verið gripið til niðurgreiðslu á raforku til húshitunar frá s.l. hausti að telja. Ef ekki væri um þá niðurgreiðslu að ræða greiddu menn nú hátt í 80% af olíukyndingarkostnaði — 77% er mér tjáð — fyrir upphitun meðalhúsnæðis með raforku. Eftir gjaldskrárbreytinguna núna 1. febr. er þetta hlutfall 62% og er.það þó ærinn kostnaður. Hver kwst. raforku til upphitunar er m.ö.o. greidd niður um 17 aura. Og ég endurtek það, til þess að menn hafi samanburðinn, að álverið í Straumsvík greiðir fyrir kwst. 12.1 eyri en við borgum niður húshitunarkostnaðinn um 17 aura. Notandinn greiðir síðan sjálfur, ef ég man rétt, samkv. taxta C 1 hjá Rafmagnsveitum ríkisins, algengasta húshitunartaxtanum, 58 aura fyrir upphitun.
Það er hins vegar engin ný bóla að upphitunarkostnaður í landinu sé misjafn. Hann hefur stundum verið meiri en þessu nemur og þeir sem enn búa við olíukyndingu greiða hærra hlutfall en þetta, þrátt fyrir olíustyrkina. Það er þó ekki aðeins rafhitunin sem er kostnaðarsöm. Nýjar hitaveitur axla einnig þungar fjármagnsbyrðar af fjárfestingarkostnaði vegna sinna framkvæmda. Gjaldskrá hjá sumum veitum er ekki fjarri því sem viðgengst þar sem raforka er notuð til upphitunar.
Ég tel rétt að nefna aðeins nokkrar tölur um áætlaðan árlegan húshitunarkostnað 400 rúmmetra íbúðar frá og með deginum í dag, samkvæmt þeim ákvörðunum gjaldskrár sem teknar hafa verið. Þá er húshitunarkostnaður með rafhitun hjá Rafmagnsveitum ríkisins 62% af olíukyndingarkostnaði án niðurgreiðslu olíunnar og nemur fyrir þetta húsnæði, miðað við eðlilega einangrun og meðalnotkun, á ári 23 021 kr. nákvæmlega reiknað. Hjá öðrum aðilum með rafhitun húsa er þetta hlutfall mjög svipað eða aðeins lægra, t.d. hjá Rafveitu Akureyrar 58%, hjá Orkubúi Vestfjarða 59%, hjá Vestmannaeyjakaupstað 61%. Þar er það hraunveitan í Eyjum annars vegar og hins vegar rafveitan sem sjá Vestmannaeyjakaupstað fyrir upphitun og taxtinn í rafhituninni er 61%.
Lítum þá á fáeinar hitaveitur til samanburðar. Hitaveita Akureyrar er með hlutfallið 59% og árlegan kostnað reiknaðan fyrir 400 rúmmetra íbúð 22 144 kr. Hitaveita Eyra, þ.e. Stokkseyrar og Eyrarbakka, er með nákvæmlega sama hlutfall og rafhitunin hjá Rafmagnsveitum ríkisins, 62%. Þar er áætlaður árskostnaður við upphitun þeirrar staðalóúðar sem hér er miðað við 23 159 kr. Síðan er allur gangur niður á við hjá hitaveitum í þessu efni. Einna lægst komumst við hjá Hitaveitu Reykjavíkur, þó að dæmi finnist um litlar veitur með hagstæðari taxta, þar sem húshitunarkostnaðurinn er aðeins 14% af olíukyndingarkostnaði eða 5 231 kr. á ári samkvæmt þeim tölum sem ég hef hér fyrir framan mig, þ.e. rösklega fjórum sinnum lægri en hjá þeim notendum sem búa við rafhitun, þrátt fyrir þá niðurgreiðslu sem nú er í gildi.
Nú veit ég að hver einasti þm. sem á umbjóðendur sem búa við rafhitun, mun hafa heyrt dæmi um hærri upphitunarkostnað íbúðar heldur en hér er áætlaður. Þá eru aðstæðurnar eitthvað breytilegar frá þeim forsendum sem hér eru gefnar, húsnæðið hugsanlega stærra, notkunin ekki endilega með ýtrasta sparnaði eða einangrunin ófullkomin. Það er nú kannske það sem er allt of algengt hjá okkur, að einangrun íbúðarhúsnæðis er ekki sem skyldi.
Ég taldi rétt að þetta kæmi hér fram. Það hefur ekki verið hvikað neitt frá þeim markmiðum sem stjórnvöld settu fram s.l. vor, að ná því að rafhitun í landinu verði jöfnuð svo, að hún nemi ekki meira en 60% af olíuhitunarkostnaði eða verði svipuð því og gerist hjá nýjum en þó hagkvæmum hitaveitum. Við erum að nálgast það mark og við það verður aukið næsta skrefi í niðurgreiðslu ekki síðar en 1. maí n.k. í sambandi við gjaldskrárákvarðanir.
Ég fékk einmitt í hendur í gær tillögur nefndar sem sett var á fót að höfðu samráði við þingflokka þann 30. sept. 1982, til þess að fjalla um framtíðarfjáröflun til að standa undir kostnaði við að jafna húshitunarkostnaðinn. Þetta nál. mun berast formönnum þingflokka í dag, og öllum hv. alþm. einhvern næstu daga, þegar búið er að fjölfalda álitsgerðina, þannig að þeir sjái þær till. sem þar liggja fyrir, hvernig hægt sé að standa undir þeim nauðsynlega lágmarksjöfnunarkostnaði í sambandi við húshitunina sem ákvarðanir hafa verið teknar um. Dreg ég þá ekkert úr því og tek reyndar alveg sérstaklega fram að það þarf að gera betur en þegar er orðið. Þó þurfum við auðvitað að gæta þess í þessu efni að hvetja ekki til óskynsamlegra ákvarðana í sambandi við upphitunarkosti með innlendum orkugjöfum.
Ég hlýt að vera talsmaður jafnaðar í sambandi við slíkar nauðþurftir sem ylur er í híbýlum manna. Ég þekki það vel sem eigandi í senn íbúðar hér á höfuðborgarsvæðinu og í minni heimabyggð, hversu hrikalegur sá munur er milli einstakra landshluta sem felst í ójöfnum húshitunarkostnaði. Það er í rauninni einhver allra mesti ójafnaðarþátturinn í þessu þjóðfélagi og það hlýtur að vera öllum hv. alþm. kappsmál að stigin verði skref í framhaldi af því sem þegar hefur verið gert til að bæta þar um.
Herra forseti. Ég sá mig tilknúinn vegna ummæla hv. 5. þm. Vestf. áðan að fara um þessi efni allnokkrum orðum og gæti vissulega haft þau miklu fleiri.
Ég vil að endingu segja þetta. Við þurfum nú á næstunni að ná saman um það að tryggt verði með lögum eðlilegt eftirlit stjórnvalda með verðlagningu allra orkuveitna í landinu. Við þurfum í öðru lagi að tryggja það með löggjöf, ef ekki öðruvísi, að hætt verði þeirri útsölu á orku sem viðgengst til erlendra stóriðjufyrirtækja í landinu. Þeirri meðgjöf, skattlagningu á íslenskan almenning verði hætt eða úr henni dregið með sanngjörnum hætti og þar með tryggðar eðlilegar tekjur til aðalorkuöflunarfyrirtækis í landinu. Þær tekjur verði síðan notaðar m.a. til þess að leiðrétta það mikla misræmi sem við búum hér við í sambandi við upphitunarkostnað, þar sem við notum raforkuna sem orkugjafa. Það hefur verið reiknað út að eðlileg leiðrétting á raforkuverði til álversins í Straumsvík, um þreföldun á því verði sem nú er, mundi gera kleift, miðað við óbreyttan hag Landsvirkjunar, að lækka heildsöluverð til almenningsveitna um nálægt 60%. Ég vænti þess að eiga hauk í horni þar sem hv. 5. þm. Vestf. er og ég vænti að það séu 58 þm. auk okkar sem eru reiðubúnir að tryggja eðlilega skipan þessara mála með einhliða aðgerðum af Íslands hálfu, með nauðsynlegri lagasetningu ef ekki fást fram leiðréttingar með öðrum hætti, svo sem nú virðist borin von.