01.02.1983
Sameinað þing: 44. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1656 í B-deild Alþingistíðinda. (1389)

Þingsköp

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég undra mig nokkuð á þessum fundarslitum. Ég hafði þegar um hádegi í dag kvatt mér hljóðs utan dagskrár, en féllst á að falla frá því þar eð hv. utanrmn. sæti enn að störfum. Ég hélt að við værum hér að bíða eftir niðurstöðum þess máls og sé því ekki annað ráð vænna, ef nú á hér að slíta fundi, en spyrja hæstv. forseta: Hef ég leyfi til að kveðja mér hljóðs utan dagskrár eða ekki? Ég hafði fengið jáyrði fyrir því í dag, en sem sagt eins og ég sagði áðan, ég féllst á að falla frá því þar til fyrir lægi hvernig ákvörðun og hvernig afgreiðslu á þál. hv. þm. Eiðs Guðnasonar um mótmæli gegn hvalveiðibanni lyktaði hér í þinginu í dag. Ég vil þá mælast til þess, að gert verði hlé á þessum fundi en honum ekki slitið eins og hér stendur til, og ég vil spyrja hvort þetta sé eðlileg afgreiðsla mála.