01.02.1983
Sameinað þing: 44. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)
Þingsköp
Forseti (Jón Helgason):
Til þess að þetta liggi ljóst fyrir frá fyrstu hendi mun ég fresta þessum fundi í nokkrar mínútur og óska eftir því að formaður utanrmn. geti komið hér til þess að gera grein fyrir gangi mála í nefndinni, þar sem mér er ekki svo kunnugt um hvernig málin standa þar, ef menn geta fallist á það þá að bíða í 5 mínútur meðan fundinum er frestað. — [Fundarhlé.]
Ég hef haft samband við formann utanrmn. Það er samkomulag um það við hann að boða til fundar kl. 1 á morgun um málið, sem hér var til umr., en hæstv. sjútvrh. mun gera grein fyrir því, hvernig það stendur gagnvart tímasetningum.