02.02.1983
Sameinað þing: 45. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1658 í B-deild Alþingistíðinda. (1397)
Þingsköp
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég get nú eiginlega ekki látið hjá líða að segja fáein gagnrýnisorð um þau vinnubrögð sem hér eru viðhöfð. Mér þykir þessi seinagangur aldeilis með ólíkindum. Því miður mun hv. formaður utanrmn. vera á fundi þannig að það er erfitt að beina til hans spurningum, en ég vildi gjarnan fá ákveðin svör við því, hvort ekki megi vænta þess að nál. muni liggja fyrir áður en mjög langt um líður um þá till. mína á þskj. 93 sem verið er um að fjalla.
Í öðru lagi vildi ég gjarnan beina þeirri spurningu hæstv. sjútvrh. er ekki hér viðstaddur, því vildi ég gjarnan beina þeirri spurningu til forsrh. hvort ekki sé óbreytt sú afstaða ríkisstj. sem tilkynnt var úr þessum ræðustóli í gær, þ. e. að mótmælt verði umræddu hvalveiðibanni, enda hafi Alþingi ekki ályktað í aðra veru.