02.02.1983
Sameinað þing: 45. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1662 í B-deild Alþingistíðinda. (1407)

91. mál, hvalveiðibann

Frsm. minni hl. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Eins og fram kom hjá frsm. meiri hl. utanrmn. hefur utanrmn. haft mál þetta til meðferðar frá því í fyrradag. Í því felst að n. tók til meðferðar till. til þál. um mótmæli gegn hvalveiðibanni, sem hv. alþm. Eiður Guðnason hefur flutt, og ennfremur að n. tók til meðferðar ákvörðun ríkisstj., sem tekin var á fundi ríkisstj. 1. febr. eða í gær, en þar var, eins og kunnugt er, tekin ákvörðun um að bera fram mótmæli af Íslands hálfu við ályktun um stöðvun hvalveiða.

Alþm. til glöggvunar var bókun ríkisstj. eftirfarandi: „Afstaða til samþykktar Alþjóðahvalveiðiráðsins um stöðvun hvalveiða var til umræðu á fundi ríkisstj. í dag. Á grundvelli þeirra skoðanaskipta, sem þar fóru fram, varð niðurstaða að sjútvrh. mun bera fram mótmæli af Íslands hálfu við ályktuninni um stöðvun hvalveiða.“

Ég tel rétt að tíunda þessa ályktun hér samhliða því sem ég nefni till. til þál., sem hv. þm. Eiður Guðnason hefur flutt, en efni þeirrar þáltill. er kunnugt þm.

Utanrmn. fjallaði mjög ítarlega um mál þetta og fékk marga til fundar við sig til að veita upplýsingar og tjá skoðanir sínar. Er þar um að ræða fulltrúa hagsmunasamtaka, vísindamenn, fulltrúa Hafrannsóknastofnunar og forstjóra Hvals hf., svo að dæmi séu tekin, sem og Þórð Ásgeirsson, fyrrv. forseta Alþjóðahvalveiðiráðsins. Því miður gat utanrmn. ekki orðið sammála við afgreiðslu málsins. Minni hl. n., sem ég mæli hér fyrir, hefur skilað nál. þar sem við gerum það að till. okkar að tillgr., er um getur í þáltill. Eiðs Guðnasonar, orðist svo:

„Alþingi ályktar í framhaldi af ákvörðun ríkisstj. 1. febr. s. l., að samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um algert bann við hvalveiðum frá og með árinu 1986 verði mótmælt.

Jafnframt beinir Alþingi því til ríkisstj. að auka enn rannsóknir á hvalastofnum hér við land, í samvinnu við vísindaráð Alþjóðahvalveiðiráðsins, í því skyni að fyrir liggi sem fullkomnust þekking á þessum hvalastofnum við frekari meðferð málsins.“

Að því er snertir fyrri málslið þessarar till. vil ég láta það nú koma fram, án þess að fara mörgum orðum um, að við Íslendingar höfum nýtt auðlindir sjávarins á grundvelli þeirrar vísindaþekkingar, sem fyrir hendi hefur verið á hverjum tíma, og við leggjum áherslu á í samfélagi þjóðanna, að þjóðir virði verndun auðlinda á landi og legi. Það er ekki umdeilt í þessu máli að hvalveiðar Íslendinga hafa verið stundaðar með þessum hætti. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar, sem komu til nefndarfundar, gerðu grein fyrir því, að svo hefði verið af hálfu aðila, sem hvalveiðar stunda hér við land, og töldu hvalastofna, er á okkar mið ganga, ekki vera í hættu — þá sem nú eru stundaðar veiðar úr. Það er álit okkar í minni hl. n., að það sé ákaflega mikið fordæmi af hálfu okkar Íslendinga ef við viðurkennum að veiðar, sem stundaðar eru á vísindalegum verndargrundvelli, séu bannaðar. Þá er unnt að seilast töluvert langt í okkar nýtingu auðlinda hafsins.

Við vekjum athygli á því, að Alþjóðahvalveiðiráðið er nú orðin þess konar stofnun sem hv. frsm. meiri hl. utanrmn. gerði hér grein fyrir. Einmitt vegna starfshátta Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem hann nefndi dæmi um, er því ráði bersýnilega lítt treystandi. Við bendum ennfremur á að algert bann við hvalveiðum er ákveðið af þessu Alþjóðahvalveiðiráði án þess að vísindaráð sömu stofnunar hafi lagt það til. Það er ekki álit vísindaráðs Alþjóðahvalveiðiráðsins að um algert bann skuli vera að ræða. Þess vegna finnst okkur fullkomin ástæða til að bera fram mótmæli í tilefni af því banni sem Alþjóðahvalveiðiráðið hefur samþykkt og með þeim hætti sem hér hefur verið gerð grein fyrir.

Við gerum okkur vissulega grein fyrir því, að hér er um viðkvæmt mál að ræða og víðfeðm alþjóðleg samtök náttúruverndarmanna og smærri þrýstihópa eru mjög andvíg hvalveiðum, og okkur ber að því leyti að taka tillit til þessara sjónarmiða sem þau geta haft áhrif á okkar hagsmuni, auk þess sem við hljótum að taka tillit til allra sjónarmiða, sem fram eru sett, og gera okkur grein fyrir því, á hve traustum grundvelli þau eru reist. Í þessu sambandi hefur verið nefnt að viðskiptahagsmunum okkar verði ógnað ef hvalveiðum hér við land verði haldið áfram. Ég skal ekkert um það dæma og því síður neita að svo kunni að fara, en þá er það gert án þess að ástæða sé til. Okkar hlutverk hlýtur þá að vera að snúast við því eins og best verður gert á hverjum tíma. Í þessu sambandi hlýt ég þó að nefna, að meðal þeirra þjóða sem mótmælt hafa hvalveiðibanninu eru þjóðir eins og Norðmenn, Sovétmenn, Perúmenn og Japanir, en ég veit ekki betur en sá markaður, sem talinn er vera í mestri hættu af okkar hálfu, fyrir frystar fiskafurðir í Bandaríkjunum, taki þannig á móti japanskri framleiðslu að það þurfi að setja sérstök innflutningshöft til að torvelda Japönum að selja bíla í Bandaríkjunum — og það eftir að hvalveiðibannið var sett á og mótmæli Japana kunngerð.

Ég vil samt sem áður ítreka það og endurtaka, að við skulum ekki yppa öxlum við þeim mótmælum sem borist hafa í þessu sambandi og búa okkur undir að skýra okkar málstað. Því er ég kominn að því að lýsa seinni málsl. í till. frá minni hl. utanrmn., þar sem því er beint til ríkisstj. að auka enn rannsóknir á hvalastofnum hér við land í samvinnu við vísindaráð Alþjóðahvalveiðiráðsins í því skyni að fyrir liggi sem fullkomnust þekking á þessum hvalastofnum við frekari meðferð málsins. Við skulum nota tímann fram til 1986 til að gera okkur grein fyrir því, með hvaða hætti unnt er að nýta þessa auðlind, sem við eigum rétt á að nýta, og með hvaða hætti við getum snúist gegn óréttmætum árásum erlendis frá, sem byggjast á þeim misskilningi að verið sé að eyða hvalastofnunum hér við land. Það er að vísu rétt, að hér er um flökkudýr að ræða. Okkur ber þess vegna skylda til að taka tillit til hagsmuna annarra þjóða í þessu sambandi. En við erum að veiða hvali innan 200 mílna efnahagslögsögu okkar og meðan við vinnum ekki tjón á stofnum erum við ekki heldur að vinna tjón á réttmætum hagsmunum annarra þjóða.

Ég tel að aukin vísindaleg þekking sé til þess fallin að styrkja málstað okkar. Ef hins vegar kemur í ljós að hvalastofnar séu í hættu er auðvitað sjálfsagt að taka málið til endurskoðunar og draga réttar ályktanir af því. En ef, eins og allar forsendur benda nú til, tíminn leiðir í ljós að hér sé um eðlilega nýtingu auðlinda hafsins að ræða, þá erum við að glata að vissu leyti rétti og stöðu, ef við mótmælum ekki og notum þetta tímabil, meðan mótmælin standa og áður en algert hvalveiðibann tekur gildi, til þess að taka okkar endanlegu ákvörðun á grundvelli þess sjónarmiðs, sem við höfum ávallt haft í heiðri, Íslendingar, og við megum aldrei glata, nefnilega að vernda auðlindir hafsins, en nýta þær einnig að svo miklu leyti sem eðlilegt er svo að lífkeðjan verði ekki rofin.