02.02.1983
Sameinað þing: 45. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1669 í B-deild Alþingistíðinda. (1411)

91. mál, hvalveiðibann

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Mér þykir rétt að gera í stuttu máli grein fyrir nokkrum atriðum þessa máls.

Eins og hér hefur komið fram margsinnis hefur hæstv. ríkisstj. fjallað um málið, reyndar nokkrum sinnum, en þó einkum nú á tveimur fundum, og lagði ég fram í síðustu viku á fundi ríkisstj. till. um að mótmæta banni við hvalveiðum. Ríkisstj. fjallaði á fundi sínum í gær aftur um málið og þá var málið afgreitt þannig, að menn létu í ljós sína skoðun og var því síðan lýst yfir að þetta væri mál sjútvrh., með öðrum orðum ekki gert að ríkisstjórnarmáli. Með tilvísan til þess að mikill meiri hl. ráðh. hafði tjáð sig fylgjandi því að mótmæla lýsti ég því jafnframt yfir að ég mundi mótmæla samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins. Ég tjáði hins vegar hv. Alþingi, að að sjálfsögðu mundi ég hlíta niðurstöðu Alþingis, þar sem hér lægi fyrir till. um málið, og þá ekki senda mótmæli ef sú yrði niðurstaðan á Alþingi að það skyldi ekki gert. Ég vil hins vegar leiðrétta það sem kom fram utan dagskrár í gær hjá hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni, að ég mundi bíða eftir samþykkt Alþingis. Ég get að sjálfsögðu ekki beðið lengur en til miðnættis í kvöld, því að þá rennur tíminn út og við höfum misst þar með af strætisvagninum. Ég hef hins vegar gert ráðstafanir til þess að móttakarinn á skrifstofu Alþjóðahvalveiðiráðsins verði opinn til miðnættis. Við höfum því nokkurn tíma, ef hv. alþm. óska þess.

Ég vil jafnframt láta það koma hér fram, að ég hef setið fundi utanrmn. og n. hefur kannað þetta mál allítarlega. Ég tjáði n. í morgun, að ef hún óskaði að túlka niðurstöðu þeirrar könnunar þannig og teldi á grundvelli þeirrar niðurstöðu að ekki bæri að mótmæla, þá mundi ég einnig taka það sem fullgilda till. í því máli og mundi fara eftir því. Um þetta varð ekki samstaða í hv. utanrmn., enda má kannske segja að þær upplýsingar sem lágu fyrir hafi ekki verið nægilega ljósar. Málið er því komið hér til umr. og n. klofin í afstöðu sinni. Ég vil samt leyfa mér að vona að niðurstaða fáist hér fyrir tilskilinn tíma þannig að afgreiða megi málið í kvöld.

Mér þykir rétt að gera hv. Alþingi grein fyrir því, á hvern máta ég hef hugsað mér að mótmæla hvalveiðibanni. Ég vit, með leyfi forseta, lesa þá tilkynningu sem ég hef hugsað mér að biðja hæstv. utanrrh. að koma á framfæri ef þessu verður mótmælt. Hún er svona:

„Athygli er vakin á því, að vísindanefnd Alþjóðalivalveiðiráðsins, sem meta á ástand hvalastofna, hefur ekki séð ástæðu til að mæla með allsherjarstöðvun hvalveiða. Ákvörðun 34. ársfundar ráðsins um stöðvun hvalveiða í atvinnuskyni, úthafsveiða 1985 og veiða frá strandstöðvum 1986, er því alls ekki byggð á vísindalegum niðurstöðum, svo sem til er ætlast samkv. 5. gr. 2. mgr. alþjóðasáttmálans um skipan hvalveiða. Það er skoðun íslenskra stjórnvalda, að heimilt skuli að nýta hval eins og önnur dýr í lífríki okkar, en sú nýting skuli framkvæmd í samræmi við vísindalegar niðurstöður um nýtanleika hvers einstaks hvalastofns, þannig að hæfileg nýting verði tryggð og jafnframt fyrirbyggt að um ofveiði verði að ræða. Því ber að flýta fyrir endurmati á stofnstærðum. Það verður best gert með alþjóðlegri samvinnu og undir stjórn Alþjóðahvalveiðiráðsins, t. d. með því að nýta hvalveiðiskipin í vaxandi mæli til rannsóknarstarfa jafnhliða veiðum. Sé veiðum hins vegar hætt eru allar líkur á því að fjármagn til hvalarannsókna muni fljótlega minnka og rannsóknir dragast saman.

Hvalastofnar þeir, sem Íslendingar veiða úr, eru Austur-Grænlands-Íslands-langreyðarstofninn, Íslands-Grænlandssunds-sandreyðarstofninn og Norður-Atlantshafsmiðsvæðis-hrefnustofninn. Samkv. bestu fáanlegum vísindalegum' upplýsingum eru þessir stofnar ekki ofnýttir eða í hættu vegna veiða. Þessir stofnar hafa verið stöðugir um árabil og því flokkaðir af Alþjóðahvalveiðiráðinu sem stofnar sem þola árlegar veiðar — nefnt á ensku hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu Sustained Management Stocks, sbr. töflu 1 á bls. 12–13 í viðauka við alþjóðahvalveiðisáttmálann frá í mars 1982.

Í 10. gr. a í sama viðauka við alþjóðasáttmálann um skipan hvalveiða frá 1946 segir: „Hvalveiðar í atvinnuskyni skulu leyfðar á SMS-hvalastofnum í samræmi við tillögur vísindanefndarinnar.“ (Og vísar þessi skammstöfun, SMS, í það enska heiti sem ég las áðan.) Stöðvun veiða úr þessum stofnum verður því ekki réttlætt á vísindalegum grundvelli. Auk þess hefur ríkisstjórn Íslands áhyggjur af hugsanlegum áhrifum af stöðvun hvalveiða á lífkerfi sjávar, þar sem vitað er að hvalastofnar við Ístand nýta verulegt magn af fæðu og oft í samkeppni við aðra stofna sjávardýra, sem Íslendingar nýta og byggja afkomu sína á. Með hliðsjón af framangreindu mótmælir ríkisstjórn Íslands hér með breytingu þeirri sem samþykkt var af Alþjóðahvalveiðiráðinu á 10. gr. í viðauka við alþjóðasáttmálann um skipan hvalveiða 1946, með nýrri undirmálsgrein e, um stöðvun hvalveiða í atvinnuskyni, strandveiða frá áramótum 1986 og úthafsveiða 1985/86.

Ríkisstjórn Íslands mun leggja áherslu á að auka rannsóknir á hvalastofnunum og jafnframt að mannúðlegum aðferðum verði beitt við hvalveiðar. Ríkisstjórn Íslands er að sjálfsögðu reiðubúin til þess að endurskoða ofangreinda niðurstöðu, ef fram koma ný viðhorf sem breyta ofangreindum rökstuðningi.“

Um þetta mál allt mætti að sjálfsögðu hafa mörg orð, en ég skal reyna að stytta það. Þó vil ég koma inn á örfá atriði, sem mér hafa þótt nokkuð áberandi í umræðum um málið.

Í 1. mgr. þess sem ég las er vísað til þess, að vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins hefur ekki talið ástand hvalastofna þannig að hún hafi viljað gera tillögu um allsherjarstöðvun hvalveiða. Eins og ég las er það því í raun og veru gagnstætt grundvallargrein alþjóðasáttmálans um skipan hvalveiða að ráðið ályktar um allsherjarstöðvun hvalveiða. Engu að síður er mjög áberandi í þeim fjölmörgu mótmælum sem borist hafa, fullyrðingum sem heyrst hafa til stuðnings því að hvalveiðar verði algerlega stöðvaðar, að hvalastofninn sé í útrýmingarhættu. Þetta er náttúrlega alrangt og ég vona að enginn hér mæli með stöðvun hvalveiða af þeirri ástæðu. Ég hef rætt við vísindamenn um þetta. Utanrmn. átti reyndar viðræður við íslenska vísindamenn. Þeir tóku skýrt fram, að af þessari ástæðu væri ekki nauðsynlegt að stöðva hvalveiðar. Ástæðan er allt önnur. Ástæðan er nánast pólitísk eða sá þrýstingur sem komið hefur fram hjá ýmsum hópum sem hafa lagst mjög hart gegn hvalveiðum.

Í því sambandi vil ég taka það fram, að ég hef verulega samúð með þeim sem beita sér fyrir aukinni náttúruvernd og vilja koma í veg fyrir að dýrastofnum verði eytt. Það er vissulega mikil hætta á því á mörgum sviðum. En ég vil hins vegar leyfa mér að fullyrða, að í sambandi við hvalastofninn sé sú hætta lítil og reyndar engin eins og ástatt er núna og vissulega miklu meiri í sambandi við fjölmarga aðra dýrastofna á jörðu hér. Mér hefur því sýnst, að andstaðan gegn hvalveiðum væri mest af tilfinningaástæðum sprottin.

Hitt er svo annað mál, að þessir hópar geta haft veruleg neikvæð áhrif á markaði okkar erlendis og hafa hótað því. Það er skylt að taka tillit til þess þótt illt sé. Það var af þessari ástæðu að ég lagði ekki fram till. um að mótmæla banni strax innan fyrstu 90 daganna, en það er sá frestur sem til mótmæla er veittur. Þá hafði mér nýlega borist bréf frá framkvæmdastjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna eða réttara sagt fyrirtækis þeirra í Bandaríkjunum, þar sem mjög óvænt var snúið við blaðinu og nú lagst gegn því að hvalveiðibanninu yrði mótmælt. Ég taldi skylt að kynna mér það mál vandlega og því yrði mótmælum frestað, og það var gert.

Í sambandi við þetta kom fram hjá hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur að ruglingslegar væru samþykktir Alþjóðahvalveiðiráðsins. Ég tek undir það með henni. Það er svo sannarlega rétt. Hins vegar vil ég upplýsa hér, að sú skýrsla sem gerð var fyrir mig 29. júlí, ef ég man rétt, átti ekki að fara neitt út fyrir mínar dyr. Ég hygg að ég hafi að vísu afhent hana ráðherrum. Hún var byggð á þeim vinnugögnum sem menn komu með heim. Hún er byggð m. a. á fjölrituðum tillögum, sem lágu fyrir hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu. Ég vil leyfa mér að fullyrða að þar hafi verið farið með það mál eins og það lá fyrir þá. Hins vegar gerist það 6. ágúst, að Alþjóðahvalveiðiráðið skrifar bréf og tilkynnir að endanleg samþykkt hafi verið eins og þar var fram tekið. Svo gerist það 2. sept., að Alþjóðahvalveiðiráðið skrifar enn eitt bréf og segir að það beri að strika út fimm orð úr þeirri samþykkt sem það hafði 6. ágúst talið rétta. Ég er svo sannarlega ekki að mæla með slíkum vinnubrögðum, en ég vil leyfa mér að fullyrða að minn fulltrúi á þessum fundi hafi lagt það fyrir mig sem hann vissi réttast á þeirri stundu. Þetta var strax leiðrétt gagnvart mér. Hins vegar sýndist mér að í þessum útgáfum væri engin efnisbreyting og skal ég aðeins skýra það.

Í einni útgáfu, sem lá fyrir Alþjóðahvalveiðiráðinu, var talað um að bannið ætti eingöngu að gilda til 10 ára. Það er mjög mikilvægt atriði. Hins vegar var því strax breytt þannig, að það skyldi vera til endurskoðunar annaðhvort 1990 eða árlega. Það breytir þess vegna sáralitlu þegar svo er komið, að mínu mati, hvernig þetta er orðað. Ef samþykktin er til endurskoðunar verður henni aðeins hrundið samkv. reglum Alþjóðahvalveiðiráðsins með 3/4 atkv. Þetta kom m. a. fram á fundi utanrmn. í morgun. Ég var að vísu ekki þar staddur þá, en hjá nefndinni mætti Þórður Ásgeirsson, sem var lengi formaður Alþjóðahvalveiðiráðsins, og mun, eftir því sem ég best veit, hafa gert nefndinni grein fyrir þessu.

Ég skal ekki fara um málið mörgum orðum í viðbót, en ég vil þó nefna það, sem hér kemur fram, að Alþjóðahvalveiðiráðið hefur í þeim gögnum, sem hér er vísað til, flokkað þær hvalategundir, sem hér eru veiddar, sem tegundir í jafnvægi sem rétt sé að nýta. Að sjálfsögðu hlýtur þetta að breytast með samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um algert bann, en þetta er það sem lá fyrir í þeim niðurstöðum frá Alþjóðahvalveiðiráðinu sem eru frá mars 1982.

Hér er einnig nefnt að hafa beri í huga hvaða áhrif alger friðun kunni að hafa á lífríkið almennt. Um þetta geta menn eflaust deilt og eflaust er erfitt að meta slíkt, en upplýst var þó á fundi hjá utanrmn. af vísindamönnum að áætlað er að hvalir og selir þurfi um það bil 4% af þunga sínum á dag. Það þýðir u. þ. b. 14–15 faldan þungann á ári. Langreyður, sem er um 60 tonn, þarf því um 900 lestir af lífríki sjávar á ári og áreiðanlega neytir ekki önnur skepna þess á eftir. Menn skulu ekki algerlega gleyma þessu — eða t. d. því, hvaða áhrif það mun hafa ef friða á selastofninn, sem nánast stefnir í af markaðsástæðum sem við ráðum ekki við. Norðmenn hafa unnið að þessum málum og skoðað þau og hafa birst í fjölmiðlum tölur, sem ég held að menn ættu að íhuga nokkuð. Það fer áreiðanlega að þrengjast um okkar fiskistofna ef friða á bæði hvalinn og selinn.

Mér er ljóst, eins og ég sagði áðan, að þrýstingur mun eflaust verða á okkar fyrirtæki, sem starfa erlendis og selja okkur afurðir. Nákvæmlega sömu hótanir komu fram gagnvart Japönum — mjög ákveðnar og harðar — í Bandaríkjunum, en eftir því sem ég hef getað aflað mér upplýsinga um hafa þær engin áhrif haft. Ég ræddi við sjútvrh. Norðmanna um þessi mál. Þeir höfðu sent menn til Bandaríkjanna til að gera sér grein fyrir þessum þætti. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að ákveða afstöðu með tilliti til hótana Bandaríkjamanna og mótmæltu. Hitt er mér svo fyllilega ljóst, að útflutningsafurðir okkar kunna að vissu leyti að vera viðkvæmari fyrir þessu en Norðmanna. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna selur í Bandaríkjunum mjög mikið undir íslensku merki, sem er mikið auglýst, og því auðvelt að ná áróðurslega tökum á því. Norðmenn gera það langtum minna. Ég er því með þessu alls ekki að gera lítið úr áhrifum slíkra mótmæla enda hef ég ætíð lagt áherslu á að með áhrifum þeirra beri að fylgjast. Ég er hins vegar, af þeim ástæðum sem ég rakti áðan, eindregið þeirrar skoðunar, að það beri að mótmæla þessari samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins og áskilja okkur þannig rétt til að halda áfram hvalveiðum 1986. Það kann vel svo að fara, að menn komist að þeirri niðurstöðu að það verði ekki rétt. En ef við mótmælum ekki höfum við tapað af rétti okkar. Ég held að menn verði að hafa það ákveðið í huga.

Hér kemur stundum fram að menn geti endurskoðað þetta mál. Það er oft sagt: Er ekki hægt að segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu og hefja hvalveiðar? Hafréttarsáttmálinn vísar til þess, að þegar um flökkustofn er að ræða beri að fara eftir samþykktum alþjóðastofnana. Það er engin önnur alþjóðastofnun í hvalveiðimálum en Alþjóðahvalveiðiráð. Eitt land hefur sagt sig úr ráðinu nýlega. Það eru Kanadamenn. Fulltrúi þeirra sagði við mig, þegar ég spurði hann hvers vegna þeir gerðu þetta, að það væri vegna þess að starfsemi þessa ráðs væri ekki orðin marktæk, það væri ekki byggt þar lengur á vísindalegum niðurstöðum. Þeir hafa að vísu hætt hvalveiðum að mestu, en stunda veiðar á smáhveli í vissum stöðum því að Alþjóðahvalveiðiráðið hefur samþykkt að frumstæðar þjóðir eða frumbyggjar, aborigines eins og það er kallað á ensku, megi stunda hvalveiðar til eigin nota. Það eru nokkrar mjög fágætar hvalategundir veiddar þannig. Bandaríkjamenn hafa barist ötullega fyrir því að Eskimóar í Alaska megi stunda hvalveiðar. Að vísu er það mjög takmarkað. Þetta er kannske táknrænt fyrir það, hve þjóðirnar hugsa mjög um sína eigin hagsmuni þegar að svona málum kemur. Þeirra hagsmunir eru allt aðrir en okkar.

Á þetta vildi ég leggja áherslu: Ef við mótmælum ekki er enginn vafi í mínum huga, og tel ég mig hafa þaulskoðað það, að afturkoma til hvalveiða verður vægast sagt erfið og ekki nokkrar líkur til þess að það verði unnt innan Alþjóðahvalveiðiráðsins því að þar þarf að samþykkja breytingu með 3/4 atkv. Ég hygg að menn geti allir hér gert sér grein fyrir því, eins og þar er háttað þátttöku, að slíkur meiri hluti næst ekki. Þess vegna tel ég sem sagt, að það eigi að mótmæla. Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð, en endurtek að ég hef ekki litið á þetta sem flokksmál. Ég vil taka það hér fram, að í mínum flokki eru menn algerlega óbundnir af þessu máli. Og ég mun að sjálfsögðu hlíta þeirri niðurstöðu sem hér fæst.