02.02.1983
Sameinað þing: 45. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1417)

91. mál, hvalveiðibann

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég vil fyrst vekja athygli á því, að í ræðum allra þeirra sem hafa talað gegn því að mótmælt verði kemur fram að þeirra hugmynd er ekki sú að hætta hvalveiðum. Þeir tala allir um hvernig eigi að halda hvalveiðunum áfram engu að síður. Þetta sama kemur fram í áliti minni hl. Þar er talað ótvírætt um það, að þó að mótmælin verði ekki send eigi að halda áfram að veiða. Það er talað um rannsóknir sem eigi að leggja til grundvallar við ákvarðanir um veiðar í framtíðinni. Hvað eru menn að gera? Þeir sem ætla að samþykkja álit meiri hluta utanrmn. eru að segja: Jú, við ætlum ekki að senda mótmæli, en við ætlum samt að halda áfram að veiða. — Haldið þið ekki að náttúruverndarsamtökin í Bandaríkjunum taki eftir þessu? Eru þau ekki að biðja um að veiðunum sé hætt? Eru menn ekki að falla í einhverja gryfju? Er ekki tvískinnungur í þessari afstöðu? Halda menn að menn geti gert þessi kaup á fölskum forsendum, eins og hér er verið að gera? Trúa menn því, að náttúruverndarsamtökin segi: Gott og vel. Við vorum bara að berjast fyrir því að þið senduð ekki þetta skeyti í kvöld. — Ég held ekki. Ég held að menn hafi dottið í þá gryfju að ætla að kaupa sér frið á fölskum forsendum og útkoman verði sú, að menn afsala sér rétti sínum, en sitji eftir sem áður uppi með óþægindin. Það hefur ekkert breyst í þeim efnum vegna þess að ályktun verður vitaskuld lesin.

Álit minni hlutans, sem ég stend með og stend að, er allt annars eðlis. Þar er gengið hreint til verks og sagt: Jú, við mótmælum þessu í rauninni vegna þess að við teljum það vera ranglátt og við viljum halda rétti okkar og við viljum koma hreint og beint fram. En við bætum við: Ef í ljós kemur á þessum árum að ekki séu vísindalegar forsendur fyrir áframhaldandi veiðum munum við vitaskuld hætta þeim og það er í samræmi við þá stefnu sem við Íslendingar höfum fylgt varðandi nýtingu auðlinda hafsins. Með þessu móti göngum við hreint til verks. Við gefum það til kynna, að ef fram komi að ekki séu forsendur fyrir því vísindalega að halda áfram veiðum munum við vitaskuld hætta, en meðan þær liggja ekki fyrir viljum við halda á rétti okkar. Þetta er munurinn á þeim tveimur ályktunum sem hér liggja fyrir.

Það kom ekki bara fram í ályktununum, heldur líka í framsögu með áliti meiri hlutans hjá hv. þm. Halldóri Ásgrímssyni, að auðvitað væri ekki loku fyrir það skotið að hvalveiðar gætu átt sér stað. Það kom fram hjá öðrum flm. þessa álits meiri hlutans, Eyjólfi Konráð Jónssyni, að líklegast væri aðstaða okkar til þess að halda áfram hvalveiðunum langtum betri ef við létum vera að mótmæla. Hans röksemdafærsla var sú: Ég er fyrst og fremst að vinna að því að við getum haldið áfram að veiða. — Í þessu felst hræðilegur tvískinnungur og þeir sem svona tala eru að blekkja sjálfa sig og þeir eru að leiða þetta mál til glötunar.

Það hefur margt komið fram í þessum umr. sem ástæða væri til að fjalla um. Ég hnaut t. d. um það, að hv. frsm. meiri hl. n. talaði um að það væri ekki skynsamlegt að bera fram sterk mótmæli. Hann vildi bera fram veik mótmæli hugsanlega. Mótmæli þau, sem hér um ræðir, eru hvorki sterk né veik. Það eru bara mótmæli. Það er bara réttur sem við eigum samkvæmt alþjóðasamþykktum alþjóðastofnana, sem við eigum aðild að.

Hv. frsm. meiri hl. n. talaði líka um að Íslendingar hefðu tamið sér að hlíta samþykktum alþjóðastofnana. Við erum ekki að tala um að brjóta neinar samþykktir alþjóðastofnana. Þeir sem hafa lesið sáttmála Alþjóðahvalveiðiráðsins sjá glöggt að þar er einmitt gert ráð fyrir að menn beri fram mótmæli við ákvörðunum í ráðinu, eins og hér er verið að gera, eins og hér er verið að leggja til af hálfu minni hlutans að verði gert.

Í máli hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar komu fram vangaveltur um að þróunin gæti orðið sú, að Alþjóðahvalveiðiráðið yrði lagt niður og það mundi koma upp nýr flötur á málinu á þessu tímabili. Ef það verður ofan á að senda ekki mótmæli er þetta auðvitað falleg sýn, en ekki vil ég treysta því að þessi draumsýn Eyjólfs Konráðs Jónssonar eigi að öllu leyti eftir að rætast. Og mér þykir heldur veik forsenda undir ákvörðunum Alþingis að byggja á draumsýn Eyjólfs Konráðs Jónssonar.

Eyjólfur Konráð gerði líka mikið mál úr því, að málið yrði líklega bara auðveldara fyrir okkur ef við létum vera að mótmæla. Ég held reyndar, og hef leitt að því rök, að það verði langtum erfiðara. En ef það er svo, að við eigum ekki að nýta rétt okkar, ef við eigum ekki að standa á rétti okkar, hvers vegna var það þá í landhelgisdeilunni að við héldum svona fast á því? Hefði verið betra fyrir okkur í landhelgisdeilunni að beygja okkur fyrir þeim samþykktum sem okkur bárust erlendis frá? Hefði sigurinn verið auðunnari í því máli ef við hefðum haldið þannig á? Ég held ekki. Ef við lítum á þau fordæmi sem við höfum um hvernig við höfum þurft að berjast fyrir skynsamlegri nýtingu á auðlindum held ég að ljóst sé að þau fordæmi vísi til þess að Íslendingum hefur gefist best að standa á rétti sínum.

Mér finnst málflutningur og tillöguflutningur meiri hluta utanrmn. bera keim af því, að menn séu fullir ótta og sektarkenndar. En nú er það svo varðandi hvalveiðar, að við höfum einmitt gætt þess allar götur frá stríðslokum, þegar þetta var sett á stofn, að flýta okkur ekki í auðtekinn gróða, heldur takmarka veiðarnar eftir því sem við höfum vit og vitneskju til á hverjum tíma. Við höfum sýnt það og sannað með meðferð okkar á málinu, að okkur hefur verið umhugað um þennan stofn, við höfum viljað friða hann þannig að við gætum nýtt hann. Það er sama stefna og við höfum fylgt varðandi nýtingu auðlindanna í hafinu að öðru leyti.

Það er sorglegt að sjá ýmislegt af því sem birtist í auglýsingu erlendis frá og jafnvel er haft eftir þm. í Bandaríkjunum, svo gífurlegar rangfærslur sem þar eiga sér stað. En hvað höfum við gert til að halda uppi málstað okkar? Ekki einu sinni í okkar eigin fjölmiðli, Ríkisútvarpinu/sjónvarpinu, hefur þessum verndunarsjónarmiðum og nýtingarsjónarmiðum, sem við höfum fylgt í þessu máli, verið haldið á loft, hvað þá á erlendri grund. Ég held að Íslendingar hafi áunnið sér virðingu fyrir þau sjónarmið og ég held að við munum mæta auknum skilningi ef við höldum þeim á loft og sýnum fram á hvernig við höfum haldið á hvalveiðimálunum með nákvæmlega sama hætti og við höfum verið að berjast fyrir verndun að því er fiskistofnana varðar, — ekki að friða þá til þess að þeir yrðu stærri og stærri, heldur friða þá til að hafa af því afrakstur, til að nýta til manneldis, til að seðja hungrið í heiminum.

Það hefur verið vitnað í hafréttarsáttmálann og sagt að menn megi ekki standa í vegi fyrir verndun stofna sem eru í hættu. Við erum ekki að tala um að standa í vegi fyrir verndun stofna sem eru í hættu. Þessir hvalastofnar hjá okkur teljast ekki vera í hættu, eftir því sem vitneskja liggur best fyrir um nú.

Menn geta að sjálfsögðu haft þau rök að það sé ljótt að veiða hval. Það sjónarmið skil ég mjög vel. Ef menn hafa þá skoðun að ekki sé rétt að veiða hval yfir höfuð tekið eru menn auðvitað á móti því að hvalur sé veiddur og haga sér að öllu leyti í samræmi við það. En það er ekki á þeim forsendum sem talsmenn þess að mótmæli séu ekki send hafa talað hér. Þeir hafa talað á þeim forsendum, að þetta væri sniðugra til þess að geta haldið áfram hvalveiðum.

Ég skil ákaflega vel og tel reyndar nauðsynlegt, eins og kemur fram í ályktun minni hlutans, að menn safni sem bestum vísindalegum niðurstöðum, að menn efli starf á þeim vettvangi til þess að vera öruggari um að hér sé um skynsamlega nýtingu að ræða og alls ekki sé verið að stofna þessum stofnum í hættu, þannig að menn geti rennt stoðum undir að halda þessari nýtingu áfram.

Ég hlýt að taka undir þau sjónarmið, sem hafa komið fram hjá ýmsum ræðumönnum hér fyrr, að það fordæmi sem verið er að skapa með því að senda ekki mótmæli sé mjög varasamt. Eins og málflutningurinn hefur verið hér skín í gegn að mótmælin skuli ekki senda vegna þess þrýstings sem menn finna erlendis frá, óttans við þær ógnanir sem uppi eru hafðar. Þá hljóta menn að spyrja: Hvar bera menn niður næst í þessum efnum? Verður það refurinn, sem Sigurlaug hafði áhyggjur af, eða gæti hugsanlega skeð að einhverjir breskir hagsmunir kæmu inn í myndina og segðu: Við hættum að kaupa af ykkur fisk ef þið gerið tilkall til Rockall-svæðisins. — Ætlar þá Alþingi Íslendinga, alveg eins og hér er lagt til að verði gert, að leggja niður rófuna og segja: Auðvitað eru svo miklir viðskiptahagsmunir í húfi að við hljótum að gefast upp í því máli líka?

Fáir þeirra ræðumanna sem hér hafa talað hafa í rauninni viðurkennt að það er markaðsóttinn, óttinn um markaðinn í Bandaríkjunum, óttinn við þær hótanir sem uppi eru hafðar, sem knýr þá til þeirrar afstöðu að vilja ekki senda mótmælin þó þeir vilji halda áfram hvalveiðum. Hv. þm. Guðmundur Karlsson gerði þetta hreint og beint. Mér finnst betra að menn tali þá hreint út um að það sé þannig. En ég verð að segja að mér finnst Íslendingar orðnir mjög ólíkir sjálfum sér ef þeir telja hagsmunum sínum best borgið með því að hopa. Hvernig hefði gengið hjá okkur í landhelgisstríðinu ef það hefði verið leiðarljósið að sigurinn ynnist ávallt með því að hopa?

Hv. þm. Halldór Blöndal talaði um óvininn í þessu máli. Ég held að óvinurinn í þessu máli sé trúleysi á eigin málstað hjá þeim sem ekki treysta sér til að vernda þann rétt sem við höfum og vilja kaupa sér frið á fölskum forsendum. Ég veit að það er auðvelt að segja að við mótmælum ekki, en menn ættu að horfa á fordæmið. Þeir menn, sem þannig tala, ættu ekki að kvarta seinna, ef það sýnir sig að draumsýnir, eins og t. d. þær sem Eyjólfur Konráð hafði hér, vilja ekki rætast — draumsýn sem gerir ráð fyrir að 3/4 af Alþjóðahvalveiðiráðinu skipti um skoðun. Það er kjarni málsins í þeim málflutningi sem Eyjólfur Konráð Jónsson hafði.

Herra forseti. Þm. standa frammi fyrir að velja milli álits meiri hluta og minni hluta nefndar. Í áliti minni hlutans er gengið hreint til verks og sagt — innihaldið er í rauninni á þá lund: Við teljum að þetta sé ósanngjarnt vegna þess að við höfum staðið að þessu á vísindalegum grunni. Í samræmi við það munum við senda okkar mótmæli til þess að tryggja okkar rétt. Við munum efla rannsóknir og ef það kemur í ljós á þessum tíma að hætta sé á ferðum munum við vitaskuld hætta hvalveiðum.

Í áliti meiri hlutans er lagt til að það verði ekki mótmælt, en beinlínis rætt um áframhald veiða með sama hætti og þeir hafa gert hér sem hafa talað fyrir því áliti. Í því felst tvískinnungur. Það skyldi enginn halda að það sé unnt að kaupa sér frið með þessum hætti. Menn eru ekki að tala um hvalavernd. Þeir eru að gera því skóna að náttúruverndarmenn muni ekki taka eftir því hvernig hér sé ályktað og hvernig hér sé talað. Uppskeran verður sú að öllum líkindum, að menn tapa þeim rétti sem við eigum, en uppskera nákvæmlega sömu óþægindi og ella — þau óþægindi sem þeir ætluðu að forðast. Menn uppskera að fá bæði óþægindin og tapa rétti. Þess vegna sýnist mér fráleitt að samþykkja álit meiri hlutans, heldur beri að fylgja þeirri stefnu sem kemur fram í áliti minni hlutans.