02.02.1983
Sameinað þing: 45. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1692 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)

91. mál, hvalveiðibann

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Því hefur oft verið haldið fram að út af fyrir sig sé kraftaverk að hægt sé í þessum hluta heims að halda uppi skipulögðu þjóðríki með sjálfstæðri stjórn og sjálfstæðum efnahag. Það voru margir sem trúðu því ekki að þetta væri hægt þegar Íslendingar fengu forræði eigin mála í hendur. Og það hafa margir, sem hingað hafa komið, talið það kraftaverk að Íslendingar skuli geta haldið uppi sjálfstæðu menningarríki í þessum heimshluta, ekki fjölmennari en við erum. Þetta kraftaverk byggist fyrst og fremst á því og því einu, að Íslendingar hafa getað hagnýtt sér auðlindir sjávarins. Verði það ekki gert brestur allur grundvöllur undir því sjálfstæða þjóðríki sem við höfum byggt.

Því miður er það svo á hinum síðari árum, að tengsl ýmissa stórra þjóðfélagshópa við þá undirstöðustarfsemi, sem tryggir tilveru okkar sem þjóðar, hafa rofnað. Það er ekki svo að skilja að þetta fólk sé ekki vel menntað og vel gert. Því miður er það samt staðreyndin, að framför í menntun og menningu meðal okkar þjóðar hefur valdið því að stórir hópar hafa fjarlægst þá undirstöðustarfsemi sem tryggir okkur tilveru sem sjálfstæð þjóð. Og þó að það skorti ekki á hinn bóklega lærdóm vantar oft mjög verulega á að þessir menn hafi nokkra grundvallarþekkingu sem byggist á því að hafa af eigin rammleik heyjað sér einhverja reynslu á þessum sviðum. Það er út af fyrir sig áhyggjuefni fyrir okkur Íslendinga, að sú unga kynslóð, sem er nú að ljúka langskólanámi og er væntanlega sú kynslóð sem tekur við forustu, ekki bara í stjórnmálum heldur í þjóðmálum öllum, skuli að mjög verulegu leyti vera skipuð fólki, sem vantar öll grundvallartengsl við ýmsa undirstöðuatvinnuvegi landsmanna, af því að þetta fólk hefur aldrei nálægt þeim komið og hefur enga eigin reynslu af þeirri starfsemi sem þar fer fram. Ég er ekki að segja þetta með neinum hætti til hnjóðs þessu fólki, heldur benda á, að þegar menn fara að mynda sér skoðanir og afstöðu til mála eins og þess sem hér er á ferðinni, án þess að hafa við nokkra eigin reynslu að styðjast af þeirri veiðimennsku sem okkar þjóðfélag byggist á, getur það oft gerst að ákvarðanirnar, sem menn taka, þó að þær virðist á margan hátt réttmætar við fyrstu sýn, geti skipt sköpum fyrir það þjóðfélag sem við þurfum að byggja upp í framtíðinni. Ég tel það vera mjög mikið tjón að framfarirnar skuli hafa leitt til þess að forustumenn okkar framtíðar skuli hafa misst tengsl við grundvallaratvinnuvegi okkar. Þar hafa framfarirnar því miður ekki, að mínu viti, orðið til heilla fyrir þjóðfélagið í heild.

Herra forseti. Flest rök, sem hér hafa verið flutt, hníga að því að Íslendingar haldi áfram að nýta hvalastofninn til matvælaframleiðslu með svipuðum hætti og gert hefur verið. Það er skylda ríkisstj., ekki síst þegar við efnahagsörðugleika er að etja, að sjá svo um að þjóðin fái að nýta öll þau náttúrugæði sem henni standa til boða sér til vaxtar og viðgangs. Það er einnig skylda okkar Íslendinga að sjá um að við framleiðum þau matvæli sem heimurinn þarf á að halda og markaðir eru fyrir. Samkvæmt þessu ber ríkisstjórn Íslands að mótmæla samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins eins og hún hefur fullan rétt til.

Voldug og fjölmenn samtök náttúruverndarmanna í Bandaríkjunum, sem a. m. k. sumir hverjir hafa ákaflega lítil tengsl við þá atvinnustarfsemi sem er forsenda fyrir sjálfstæðu þjóðríki á Íslandi, hafa hótað okkur að beita viðskiptakúgunum ef íslenska ríkisstjórnin gætir íslenskra hagsmuna. Hvort þessi samtök hafa raunverulega getu og vilja til þess að fylgja þeim hótunum eftir með þeim þunga sem þau gefa sjálf í skyn verður út af fyrir sig ekkert fullyrt um á þessari stundu. Aðeins tíminn mun leiða það í ljós. Hitt er ekkert vafamál, að þessi samtök eru ákaflega sterk og hafa mikil áhrif á almenningsálit. Gleggsta dæmið um það held ég vera þau afskipti sem utanrrn. Bandaríkjanna og ýmsir bandarískir stjórnmálamenn hafa haft af þessu máli á síðustu dögum. Það þarf enginn mér að segja að þessir menn hafi nema takmarkaðan áhuga á hvalveiðimálum sjálfir, hvað þá heldur nokkra þekkingu til að bera í þeim málum. Afstaða þeirra og afskipti af málinu, segja mér aðeins eitt: Þau segja mér að þessir bandarísku stjórnmálamenn telji að náttúruverndarsamtökin í heimalandi þeirra séu það öflug að afstaða þeirra í þessu máli geti haft mjög veruleg áhrif á bandaríska kjósendur. M. ö. o.: þessi afstaða hinna bandarísku þingmanna segja mér það eitt, hvert er álit þeirra á áhrifum náttúruverndarsamtakanna í Bandaríkjunum á almenning og almenningsálit. Afstaða mín hlýtur hins vegar að byggjast á efnislegum rökum og þeim staðreyndum einum sem fyrir liggja og hægt er að staðreyna, en ekki á getsökum um áhrif þeirra samtaka sem hafa hótað okkur efnahagslegum þvingunaraðgerðum. Þess vegna mun ég greiða atkv. með því að íslenska ríkisstjórnin sendi mótmæti.

Hins vegar er mér það fyllilega ljóst, að leiði reynslan í ljós réttmæti staðreynda og efnislegra raka, sem sú afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar byggist á að þetta finni engan hljómgrunn sökum áróðursmoldviðris sem þyrlað er upp, og í ljós kemur að andstæðingar íslenskra hagsmuna vestur í Bandaríkjunum hafa bæði afl og vilja til að framfylgja hótun sinni, eru miklu meiri efnahagslegir hagsmunir í húfi fyrir þjóðina en felast í þeirri nýtingu hvalastofnsins, sem ég tel bæði rétta og eðlilega. Hvað sem liður sanngirni og réttmæti okkar málstaðar og hvað sem líður andúð okkar á því að láta undan hótunum og þvingunaraðgerðum verður ekki hjá því komist, ef svo fer að ríkisstjórn landsins láti hina minni hagsmuni víkja fyrir þeim meiri, og þá eigum við ekki annars úrkosta en hverfa frá lögmætri og réttmætri ákvörðun okkar og láta undan efnahagslegum kúgunaraðgerðum útlendra aðila, sem ekkert þekkja til okkar aðstæðna og engu láta sig varða hagsmuni íslensku þjóðarinnar.

Það má segja með réttu að þetta séu hvorki réttlát örlög né sanngjörn, en oftar en ekki er þetta samt sem áður hlutskipti smáþjóða í okkar heimi. Þar er ekkert jafnræði á milli hins sterka og hins veika. Þeir fá ekki að lúta sömu lögmálum. Þeir fá ekki jafnan rétt. Í þessu sambandi er spurningin aðeins um það fyrir okkur Íslendinga: Ætla voldug erlend öfl okkur yfirsterkari að nota tækifærið til að kúga okkur, smáþjóð, til að hverfa frá réttmætum og sanngjörnum málstað okkar. Í þeirri baráttu vil ég ekki gefast upp fyrir fram. Ég tel að við eigum að standa á okkar rétti á meðan stætt er. Annað tel ég að samrýmist ekki sjálfsvirðingu okkar.