03.02.1983
Efri deild: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (1445)
120. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna
Frsm. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til l. um breyt. á lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum. Það er flutt til staðfestingar á brbl. sem út voru gefin 24. ágúst í sumar, en þeim fylgdi þá greinargerð, sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Samgrh. hefur tjáð mér, að í sambandi við gerð nýrra kjarasamninga milli kaupskipaeigenda og stéttarfélags yfirmanna á kaupskipum hafi fyrirsvarsmenn þessara samtaka orðið sammála um, sem eitt samningsákvæðanna, að gerð yrði breyt. á lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, nr. 69 30. apríl 1973, varðandi mönnun þessara skipa, m. a. með tilliti til tilsvarandi ákvæðis laga nr. 72 13. maí 1966, um atvinnuréttindi vélstjóra á íslenskum skipum.“
Samgn. Ed. leggur til að þetta frv. verði samþ. með einni smávægilegri breytingu. Í frv. stendur: „að fengnum tillögum mönnunarnefndar“. Okkur var ekki alveg ljóst hvort þetta væri nefnd sem ætti að sjá um að menn mönnuðust eða að manna skip. Í þessari ágætu nefnd eru menn sem láta sig varða íslenska tungu, og varð því niðurstaða okkar sú, að í stað orðsins „mönnunarnefnd“ komi: áhafnarnefnd. Sú breyting er gerð í samráði við samgrn.
N. leggur sem sagt til að frv. verði samþykkt með þessari einu breytingu.