03.02.1983
Sameinað þing: 47. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1752 í B-deild Alþingistíðinda. (1494)
49. mál, framkvæmd skrefatalningarinnar
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Um þetta mál mætti vitanlega hafa mörg orð, svo mikið sem hefur verið um skrefatalninguna rætt. Því miður verð ég að segja að mér finnst þar margt á verulegum misskilningi byggt.
Ég vil segja það strax í upphafi míns máls að ég tel að skrefatalningin hafi náð tilgangi sínum jafnvel betur en ráð var fyrir gert. Það er rétt hjá hv. frsm. að tekjuskipting á milli ýmissa tekjukosta símans varð ekki nákvæmlega eins og gert var ráð fyrir. En með skrefatalningunni hefur verið náð verulegum jöfnuði á milli höfuðborgarsvæðis og dreifbýlisins og jafnvel hefur komið í ljós að íbúar höfuðborgarsvæðisins eða íbúar þeirra svæða þar sem skrefatalningin var tekin upp hafa mjög lagað sig að þessum aðstæðum. Ég get jafnvel getið þess að um kvartanir og athugasemdir, sem nokkuð margar bárust samgrn. og ennfremur Pósti og síma þegar um skrefatalninguna var rætt, hafa nánast algerlega horfið. Mjög lítið hefur borið á slíku.
Ég bað Póst og síma að veita mér upplýsingar á grundvelli þessarar till. Í því sem ég segi hér mun ég styðjast við þær.
Í bréfi Pósts og síma er m. a. fjallað um það að samkv. úrtaksmætingum á 91 — svæðinu hefur skrefafjöldi innanbæjar aukist um 35.4% frá því sem áður var. Hins vegar er vakin athygli á því að þessi aukning á höfuðborgarsvæðinu vegur upp á móti lækkun langlínugjalda hjá símnotendum á þessu svæði. Menn mega ekki gleyma því að íbúar t. d. höfuðborgarsvæðisins nota langlínuna líka, og langlínugjöldin voru lækkuð, þannig að það vegur þar upp á móti. Það er athyglisvert að umframskrefafjöldi á 91 — svæðinu er 11 millj. skref á mánuði og hefur verið nánast óbreyttur í fjögur ár, þrátt fyrir að tekin er upp tímamæling, því áður var símtalið eitt skref. Hvað sýnir þetta? Það sýnir okkur að íbúar þessa svæðis hafa lagað sig vel að þessari breytingu og nýta þá skref vel en færa lengri símtölin á þann tíma sem tímalengd er ekki mæld.
Ég hef einnig hér í höndunum fróðleg línurit og athuganir á lengd símtala og hvað mikill fjöldi þeirra er innan við skrefið. Kemur í ljós að um 85% símtala eru innan við skrefið t. d. í Kópavogi og nálægt 90% í Hafnarfirði. Það sýnir það sama og ég hef áður sagt. Menn hafa aðlagað sig þessum breytingum. Kannske hafa símtölin verið óþarflega löng hér áður fyrr. Einnig hefur komið í ljós í þessu sambandi að álag á mesta annatímanum þegar t. d. skrifstofur, verslanir o. fl. verða að nota símann hefur minnkað. Það er tvímælalaust til bóta og sparar mjög fjárfestingu.
Ég sagði áðan að náðst hefði allmikill — og reyndar mjög mikill vil ég segja — jöfnuður á milli dreifbýlis og þéttbýlis, sé það mælt í skrefafjölda. Umframskrefafjöldi 1982 á höfuðborgarsvæðinu var 136 millj. skref en á dreifbýlissvæðinu 141 millj. skref, nákvæmlega 136 millj. 397 þús. á höfuðborgarsvæðinu, 141 millj. 673 á dreifbýlissvæðinu. Áður var alltaf um 30% munur, t. d. 1982 133 millj. 726 þús. skref á höfuðborgarsvæðinu en 170 millj. 95 þús. í dreifbýlinu. Þarna var mjög mikill munur, þ. e. 37 millj. skrefa, en hann er nánast enginn orðinn nú. Hefur því náðst mjög umtalsverður jöfnuður. Ég er alls ekki að halda því fram að þeir sem hafa andmælt skrefatalningunni séu út af fyrir sig á móti jöfnuði milli höfuðborgarsvæðis og dreifbýlis, enda undirstrikaði hv. frsm. að svo væri ekki, en þeir vefengja þessa leið. Ég tel hins vegar að árangur hafi orðið mjög góður.
Jafnframt kemur í ljós af þeim tölum sem ég las áðan að skrefafjöldi dreifbýlis hefur lækkað um 16.7% 1981–1982, enda skrefin þar lengd. Ég vil geta þess í sambandi við þær tölur sem ég las að það er villa í grg. Ætla má að skrefafjöldinn sem þar er getið um sé í þúsundum skrefa en þetta eru millj. skrefa, einingarinnar er ekki getið. T. d.: 1979 117 672, það munu eiga að vera 117 millj., því að í bréfi því sem hv. frsm. fékk frá Pósti og síma mun þetta hafa verið talið í þúsundum skrefa. En þetta er aðeins sagt til leiðréttingar.
Í 2. lið segir.: „Að kanna að hve miklu leyti hallinn kemur til með að minnka þá jöfnun símkostnaðar sem fyrirhuguð var.“ Þær tölur sem ég las áðan sýna að aukinn jöfnuður hefur náðst með því að allur hallinn fer til lækkunar á seldum umframskrefum dreifbýlisins. Öll viðleitni í þessa átt s. l. 12 ár hefur verið gerð á þennan hátt aðfinnslulaust, þ. e. með lengingu skrefa á langlínuleiðum, svo og breytingu skrefa í ársfjórðungsgjaldið. Jafnframt segir Póstur og sími um þennan halla: Margnefndur tekjumissir vegna skrefatalningarinnar er á misskilningi byggður, eins og sést af framansögðu. Staðfest er að skrefatalning bæjarsímtala að degi til virka daga hefur vissulega gefið auknar tekjur, er vegið hafa upp á móti lækkun langlínugjalda, sem ég gat um áðan. Ef litið er til ársins 1981 sést að dreifbýlið hefur 36 millj. 593 þús. skref, sem stafa frá innanlandssímaumferð, umfram höfuðborgarsvæðið. Jafngildir þetta samkv. núgildandi gjaldskrá rúmlega 36 millj. kr. á ári. Ef jafna ætti þennan mismun að fullu mundi það þýða 18 millj. kr. aukaálag á símnotendur höfuðborgarsvæðisins á ári hverju.
Á síðasta ári voru í viðbót við það sem hér að framan segir seld tæplega 60 millj. skref vegna símtala til útlanda og á þessu ári til septemberloka hefur hliðstæð skrefatalning þegar náð 65.4 millj. skrefum, sem framreiknuð til heils árs gera 87.2 millj. skref eða um 30% aukna sölu skrefa. Þarna hafa fengist verulega auknar tekjur sem vega upp á móti þeim tekjumissi sem orðið hefur af færri skrefum í dreifbýlinu. Og staðreyndin er sú, að afkoma Pósts og síma var í mjög viðunandi jafnvægi á síðasta ári. Ég held því að það sé alveg ástæðulaust að hafa miklar áhyggjur af tekjumissi Pósts og síma. Þetta hefur jafnað sig út eins og ég hef gert grein fyrir.
Þá segir í fjórða lagi hjá Pósti og síma: „Í sjálfvirkum símstöðvum er kostnaður þess búnaðar, sem notaður er við að koma á sambandi, tiltölulega lítill í hlutfalli við kostnað þess búnaðar sem notaður er meðan á samtali stendur. Kostnaður við símtöl er því nánast í beinu hlutfalli við tímalengd þeirra. Með hliðsjón af þessu er gjaldtaka eftir símtalafjölda óréttlátari en þegar gjaldtaka er byggð á notkunartíma. Skrefatalningin nær á hagkvæmari hátt til gagnasendingar innanbæjar, sem nú fer ört vaxandi og skapar auknar símaumferðartekjur, sem ætti að létta gjaldbyrði hins almenna símnotanda. Skrefatalningin veldur jafnari dreifingu símaumferðar, aðallega á þann hátt að létta á símaumferð að degi til, þegar atvinnu- og verslunarfyrirtæki þurfa mest á símum að halda, og stofnunin sparar fjárfestingu í vélabúnaði, sem notaður er stuttan tíma, þ. e. á mesta annatíma.“ Þetta er um það bil það sama og ég sagði áðan, að af skrefatalningunni hefur ýmislegt gott leitt, jafnara álag og því minni fjárfesting.
Satt að segja sé ég litla ástæðu til að skipa nefnd til að skoða þetta mál, en vitanlega hafa hv. alþm. fullan aðgang að öllum svona atriðum.
Ég get getið þess, að ég hef nýlega skipað svonefnt póst- og símamálaráð. Í því eiga sæti tveir alþm., Eiður Guðnason og Guðmundur Bjarnason. Í því á sæti fulltrúi hagsýslunnar, Jón Böðvarsson. Í því er fulltrúi, sem ég get sagt að sé fulltrúi neytenda sem hefur mikið fjallað um þessi mál, Guðmundur Ólafsson og formaður er ráðuneytisstjóri Brynjólfur Ingólfsson. Þetta ráð hefur byrjað starfsemi sína. Því er falið með skipunarbréfi frá mér sem atriði nr. 1 að kanna, skulum við segja allar kvartanir um samskipti Pósts og síma við almenning og stuðla að sem bestum samskiptum stofnunarinnar við almenning. Ýmis mál liggja fyrir sem er ekki ástæða til að rekja hér. Það tæki of langan tíma. Póstur og sími er, má segja inni á gafli hjá hverjum manni og jafnvel breytingar í sjálfvirkar stöðvar hafa valdið kvörtunum, þótt á hinn bóginn sé lögð á það rík áhersla að fá sjálfvirkan síma. Uppsagnir hafa valdið kvörtunum. Menn hafa talið að þegar slíkar stöðvar eru ekki mannaðar, þá sé öryggisgæslu ekki fullnægt o. s. frv. o. s. frv. Sjálfsagt er að þetta póst- og símamálaráð taki svona mál til meðferðar og skoði þau vandlega.
Ég gæti rætt fjölmargt fleira, eins og ég sagði í upphafi míns máls, um Póst og síma. Ég vil aðeins geta þess til fróðleiks, að ég hef fengið samanburð á símkostnaði hér og erlendis, sem gerður er af óháðri stofnun sem Siemens heitir. Í ljós kemur þegar borið er saman við önnur lönd að símakostnaður hér á landi hefur lækkað verulega frá 1979–1982, hlutfallslega. Þessi samanburður er gerður á ársgrundvelli og inn í þetta er tekið stofngjald og það afskrifað á 10 árum. Þá er tekið fastagjald í hverju landi og gert ráð fyrir að það innihaldi 700 staðarsímtöl og er samræmt á þann máta. Síðan er tekinn kostnaður við 700 staðbundin símtöl og svo 200 langlínusímtöl upp í 3 mínútur. Árið 1979 var talið að kostnaður hér væri 497 þýsk mörk við staðlaða símanotkun, nákvæmlega sú sama og í Bandaríkjunum, en t. d. á Bretlandseyjum 415 þýsk mörk. Hins vegar 1. janúar 1982 er símkostnaður hér talinn vera 474 þýsk mörk, og hefur því lækkað aðeins í þýskum mörkum. Hins vegar er hann í Bandaríkjunum kominn upp í 928 þýsk mörk og í Bretlandi upp í 1091 þýskt mark. Það hefur því orðið gífurleg hækkun erlendis, en ég vek athygli á að í erlendum gjaldeyri hefur símakostnaður hér nokkurn veginn staðið í stað og reyndar heldur lækkað.
Það mætti, eins og ég segi, mjög margt fleira um starfsemi símans ræða, m. a. um skrefatalninguna. Ég ætla samt ekki að lengja þessar umr. þó að ég hafi satt að segja eins og hv. frsm. ætlað að fjalla ítarlegar um þetta á skikkanlegri tíma. Ég læt þetta nægja nema sérstaklega sé óskað eftir því að fleira verði dregið inn í umr.