03.02.1983
Sameinað þing: 47. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (1502)
126. mál, skipulag fólks- og vöruflutninga
Flm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um skipulag fólks- og vöruflutninga. Flm. þessarar till. eru auk mín hv. þm. Páll Pétursson, Sigurgeir Bóasson og Alexander Stefánsson, en tillgr. hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera áætlun um skipulag fólks- og vöruflutninga innanlands í þeim tilgangi að auka hagkvæmni í rekstri og bæta þjónustu. Áætlun þessi nái til landsins alls, en fjalli um flutningakerfi hvers landshluta sérstaklega.“
Ég vil fyrst geta þess, að að sjálfsögðu hefur verið margvísleg vinna í þessa átt í gangi og sumu er reyndar lokið. Þessari till., sem hér er flutt, er ekki síst ætlað að ýta á eftir margvíslegri vinnu, sem er í gangi, og þegar lengra er litið að hefja vinnu og ljúka henni að því er varðar alla landshluta.
Eins og hv. alþm. eru sammála um hefur öryggi og hagkvæmni í flutningum ómetanlega þýðingu í efnahagslegum og félagslegum skilningi. Það eru gerðar auknar kröfur um þjónustu, en jafnframt hagkvæmni í rekstri, en hvort tveggja hlýtur að kalla á skipulag. Það er augljóst að mjög mikið fjármagn er bundið í samgöngumannvirkjum og samgöngutækjum. Aukin nýting þessara fjármuna hefur því mjög mikið fjárhagslegt gildi. Að sjálfsögðu hafa ýmsar hugmyndir komið fram um skipulagsbreytingar, sem stuðlað gætu að aukinni hagkvæmni flutningakerfisins og bættri þjónustu. Það hefur m. a. verið bent á uppbyggingu umferðarmiðstöðva fyrir farþega og vörur og endurskipulagningu sérleyfisleiða og vöruflutninga með tilliti til þeirra. Jafnframt hefur iðulega verið rætt um möguleika þess að sameina hina ýmsu flutninga innan héraðanna. Einnig hefur verið vikið að því, að nauðsynlegt væri að samræma flutninga á landi, sjó og lofti í ríkara mæli en gert hefur verið og freista þess að ná því að yfirburðir hverrar greinar nýtist sem best þar sem við á.
Við flm. teljum ekki nema eðlilegt að opinberir aðilar hafi frumkvæði að þeirri skipulagsvinnu sem þessi till. gerir ráð fyrir. Eins og ég hef vikið að áður hefur nokkuð verið að gert. T. d. var nýlega lokið, þ. e. á liðnu ári, skýrslu um skipulag samgangna á Norðurlandi og á síðastliðnu sumri var lögð fram áfangaskýrsla nefndar um samgöngur á Vestfjörðum.
Skv. þessari till., sem hér er flutt, er eðlilegt, og flm. gera ráð fyrir því, að tekið verði mið af þörfum einstakra byggðarlaga, en þó með tilliti til hagsmuna heildarinnar, þannig að samræming verði sem best tryggð í öllum atriðum.
Ég tel ekki ástæðu til þess, herra forseti, að hafa neinar málalengingar né málskrúð um þessa till. Hún skýrir sig, a. m. k. að mínum dómi, að mestu leyti sjálf. Ég tel ekki ástæðu til að fara hér og nú að leitast við að rekja í smáatriðum með hvaða hætti eða hvernig slík vinna skuli innt af hendi, sem till. gerir ráð fyrir, enda verður um það fjallað þegar kemur til þeirrar vinnu sem till. sjálf gerir ráð fyrir.
Ég geri mér grein fyrir að sú till. sem ég mælti fyrir fyrr í dag skarast að einhverju leyti við þessa, sem hér er flutt, en að mínum dómi gerir það ekkert til. Auðvitað er það þannig, að sú hin fyrri er a. m. k. þeim sem hér stendur eilítið hjartfólgnari. En hitt er rétt, að till. eru af sama toga.
Að endingu, herra forseti, vænti ég þess, að sú till. sem ég hef nú mælt fyrir fái eðlilega þinglega meðferð og verði tekin til umfjöllunar í atvmn. að loknum þessum hluta umr.