07.02.1983
Neðri deild: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1765 í B-deild Alþingistíðinda. (1507)
Umræður utan dagskrár
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég ætla nú ekki að fara að svara þessari stóryrðaræðu hv. þm. Vilmundar Gylfasonar. Það er auðvitað sjálfsagður hlutur og hefur aldrei staðið annað til en hann eins og allir aðrir alþm. fái aðgang að þeim gögnum sem unnin eru í kjördæmamálinu. Hafi hann engin gögn enn fengið þá skal ég a. m. k. gera mitt til þess að svo verði. Hér eru menn ekki að skipta með sér ránsfeng. Hér eru menn að ræða um það með hvaða hætti er unnt að tryggja og styrkja lýðréttindi þjóðarinnar.