08.02.1983
Sameinað þing: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1766 í B-deild Alþingistíðinda. (1510)

145. mál, votheysverkun

Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Ég ber fram fsp. á þskj. 163 til landbrh. um ráðstafanir til að stuðla að aukinni votheysverkun samkv. þál. frá 27. apríl 1982 um votheysverkun.

Það er nú ekki ótítt að rætt sé í sölum Alþingis um landbúnaðarmál og þó einkum vandamál landbúnaðarins. Ég ætla nú ekki að fara að ræða almennt um slíkt, enda ekki tími til þess. En það gefur auga leið, að eitt mikilvægasta atriðið varðandi landbúnaðarmálin í heild er það, hvernig háttað er um fóðuröflunina, því að það vill svo til að fóðrið er grundvöllur þess að landbúnaður sé rekinn hér á landi eins og annars staðar. Þessi fsp. fjallar um þáltill. sem snertir einmitt fóðuröflun landbúnaðarins og þann þátt sem veit að votheysverkun.

Það er ekki að ófyrirsynju að það var samþ. þáltill. 27. apríl 1982 um ráðstafanir til að stuðla að :aukinni votheysverkun. Ég þykist vita að öllum hv. þm. séu ljósir kostir votheysverkunar, þannig að ég ætla ekkert að minnast á það. En það er svo ástatt, að viðurkenningin á kostum votheysverkunar kemur ekki fram í þeim staðreyndum sem við stöndum frammi fyrir, vegna þess að það eru aðeins um 8% af fóðuröflun landbúnaðarins, heyfeng, sem fara í vothey, hitt fer í þurrhey. Á sama tíma er það svo, að aðrar þjóðir, sem eru sambærilegar við okkur í þessum efnum, gera sér grein fyrir því, hve miklir kostir fylgja votheysverkun fram yfir þurrheysverkun, og þar blasa staðreyndirnar við í þessu efni. Má t. d. benda á það, að í Noregi og Svíþjóð eru milli 70–80% af heyfeng verkuð í vothey.

Till. sú, sem samþykkt var 27. apríl 1982 til að stuðla að aukinni votheysverkun, er mjög þýðingarmikil. Þess vegna er spurt núna að því, hvað hafi verið gert til að framkvæma vilja Alþingis í þessu efni. Með tilliti til þessa er fsp. hér fram borin. Hún er í fyrsta lagi um það, hvað hafi verið gert til þess að kynna bændum reynslu þeirra sem um árabil hafa byggt heyöflun sína að mestu eða öllu leyti á votheysverkun. Í öðru lagi er spurt, hvort bændum hafi verið kynntar nýjungar og tækniframfarir í votheysverkun og votheysfóðrun. Í þriðja lagi er spurt, hvort reglur Stofnlánadeildar landbúnaðarins hafi verið endurskoðaðar í því skyni að auðvelda bændum að breyta yfir í votheysverkun. — En það eru einmitt þessi atriði sem þál. frá 27. apríl s. l. fjallar um. Það eru þessi atriði sem mér eru hugleikin og ég hygg öllum þingheimi að vita, hvað gert hefur verið í þessum efnum.