08.02.1983
Sameinað þing: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1772 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)
137. mál, Sjóefnavinnslan
Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):
Herra forseti. Í fyrra bar ég fram fsp. um Sjóefnavinnsluna á Reykjanesi. Á Reykjanesi eða nánar tiltekið í nágrenni Grindavíkur er að rísa sjóefnavinnsla sem menn hafa haft trú á að gæti skapað ný atvinnutækifæri. Við hana hafa verið miklar vonir bundnar. Hins vegar er því ekki að leyna, að upp hafa komið efasemdir hjá ýmsum sveitarstjórnarmönnum um fyrirtækið og möguleika þess á að selja sína framleiðslu. Því hef ég leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp. í 10 liðum:
„1. Hvenær má vænta þess, að Sjóefnavinnslan hf. á Reykjanesi verði farin að framleiða þau 8000 tonn af salti, sem heimilað var, miðað við ársframleiðslu?
2. Hvað safnaðist mikið hlutafé til fyrirtækisins í framhaldi af auglýsingaherferð um s. l. áramót (þetta miðast við árið þar á undan): a) frá sveitarfélögum, b) frá einstaklingum?
3. Hvað kostaði umrædd auglýsingaherferð?
4. Hvernig hefur sá búnaður, sem nota átti við framleiðsluna, reynst?
5. Hvað hafa framkvæmdirnar kostað til þessa: a) á þessu ári, b) frá upphafi?
6. Hvað er fyrirhugað að verja miklu fé til framkvæmda á þessu ári?
7. Hvað er áætlað að 8000 tonna verksmiðja muni kosta fullbúin?
8. Hverjar eru markaðshorfur fyrir framleiðslu verksmiðjunnar, þ. e. fyrir: a) grófsalt, b) fínsalt, c) kalí, d) kalsíumkóríð, e) ýmis sölt (í neytendapakkningum)? 9. Hvar eru fyrirhugaðir markaðir?
10. Byggjast arðsemisútreikningar fyrir verksmiðjuna á traustum upplýsingum um markaðsverð afurða?“ Ég vænti þess að fá skýr svör við þessari fsp.