08.02.1983
Sameinað þing: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1783 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)

271. mál, rækjuveiðar við Húnaflóa

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Samkv. lánsfjárlögum fyrir árið 1982 er kveðið svo á að lífeyrissjóðum sé skylt að verja a. m. k. 40% af ráðstöfunarfé sínu til kaupa á skuldabréfum af ríkissjóði, Byggingarsjóði ríkisins, Byggingarsjóði verkamanna, Framkvæmdasjóði Íslands og fjárfestingarlánasjóðum sem viðurkenndir eru af fjmrn. og Seðlabanka Íslands. Fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1982 gerði ráð fyrir skuldabréfakaupum lífeyrissjóða af hinum opinberu fjárfestingarlánasjóðum að fjárhæð 471 millj. kr. sem skiptist þannig á milli aðila: Byggingarsjóður ríkisins 187 millj., Byggingarsjóður verkamanna 110 millj., Framkvæmdasjóður 110 millj., ríkissjóður 55 millj., Stofnlánadeild landbúnaðarins 9 millj. Heildarráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna í landinu á árinu 1982 var áætlað um 1 250 millj. kr. 40% kaupskylda lífeyrissjóðanna átti því að nema um 500 millj. kr. af fjárfestingarlánasjóðum.

Í 32. gr. lánsfjárlaga er kveðið svo á að umræður fari fram milli lífeyrissjóðanna og fjmrn. um tilhögun skuldabréfakaupa lífeyrissjóðanna innan ársins og að gerð sé áætlun um kaup þeirra af fjárfestingarlánasjóðum. Strax eftir afgreiðslu Alþingis á lánsfjárlögum þessa árs, í aprílmánuði s. l., hóf fjmrn. viðræður við stjórnir lífeyrissjóðanna um fyrirhuguð skuldabréfakaup þeirra af fjárfestingarlánasjóðum á þessu ári. Í framhaldi af þeim viðræðum var svo gerð áætlun um skuldabréfakaup einstakra lífeyrissjóða eftir mánuðum og hvaða fjárfestingarlánasjóður ætti að selja þeim bréfin. Í fyrrnefndum viðræðum kom fram að lífeyrissjóðirnir mundu kaupa skuldabréf af öðrum en sjóðfélögum sem næmi 40% af ráðstöfunarfé sjóðanna, en hins vegar áformuðu einstakir sjóðir að kaupa skuldar bréf af öðrum en hinum opinberu fjárfestingarlánasjóðum fyrir 80 millj. kr. á árinu. Kaup lífeyrissjóða af þeim fjárfestingarlánasjóðum sem lánsfjáráætlun gerði ráð fyrir næmi þá 395 millj., eða 85% af skuldabréfakaupum lífeyrissjóðanna samkv. lánsfjáráætlun fyrir árið 1982. Þeir lífeyrissjóðir sem fyrirhuguðu skuldabréfakaup af öðrum en þeim fjárfestingarlánasjóðum sem lánsfjáráætlun gerði ráð fyrir eru Lífeyrissjóður verslunarmanna 33 millj., lífeyrissjóðir tengdir Sambandi ísl. samvinnufélaga 21 millj. kr., Lífeyrissjóður atvinnuflugmanna 7 millj. kr. og lífeyrissjóðir tengdir iðnaðinum í landinu 18 millj. kr., eða samtals 79 millj.

Skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna á liðnu ári af þeim fjárfestingarlánasjóðum sem tilgreindir eru í lánsfjáráætlun námu svo í reynd 341 millj. kr., sem er um 54 millj. kr. lægri upphæð en gert var ráð fyrir í kaupáætluninni, eða um 86% af henni. Átta lífeyrissjóðir af þeim tæpu 80 sjóðum sem áætlunin nær til keyptu minna en gert var ráð fyrir í kaupáætlun. Nemur frávik þessara sjóða samtals 45.3 millj. kr. Sjóðir þessir eru: Lífeyrissjóður verslunarmanna, þar vantar 18.3 millj. upp á kaupáætlun, en kaupáætlunin gerði þó aðeins ráð fyrir að lífeyrissjóðurinn keypti fyrir 20% af ráðstöfunarfé sínu í stað 40%, þannig að þarna er um tvöföld afföll að ræða, Lífeyrissjóður Vestmanneyinga, þar vantar 3.1 millj. kr., Lífeyrissjóður Vestfirðinga 7.2 millj. kr., Lífeyrissjóður verkalýðsfélaga á Norðurlandi vestra 2 millj. kr., Lífeyrissjóður verkalýðsfélaga á Suðurnesjum 4 millj. kr., Lífeyrissjóður verksmiðjufólks 4 millj., Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna 2.5 millj. kr. og Lífeyrissjóður verkstjóra 4.2 millj. kr.

Samkv. upplýsingum frá Seðlabanka Íslands um skuldabréfakaup lífeyrissjóða af lánasjóðum á árinu 1983 kemur fram að lífeyrissjóðir hafa keypt af veðdeild Iðnaðarbankans fyrir 50 millj., af Verslunarlánasjóði fyrir 27 millj. og af Stofnlánadeild samvinnufélaga fyrir tæpar 26 millj., eða samtals 103 millj. kr. Skuldabréfakaup Stofnlánadeildar landbúnaðarins voru áætluð í lánsfjáráætlun fyrir árið 1982 9 millj. kr., en skuldabréfakaup urðu aftur á móti 18.3 millj. Á árinu 1982 hafa lífeyrissjóðir í landinu keypt skuldabréf af lánasjóðum fyrir 462 millj. kr., eða sömu fjárhæð og áætlað var að lífeyrissjóðir keyptu af hinum opinberu fjárfestingarlánasjóðum.

Eins og þetta yfirlit gefur ljóslega til kynna er fulljóst að þær áætlanir sem settar voru fram um skuldabréfakaup lífeyrissjóða fyrir árið 1982 hafa ekki staðist að öllu leyti. Eru þar nokkur afföll á. Lífeyrissjóðirnir keyptu fyrir áætlaða upphæð, en þeir ráðstöfuðu um 1/3 upphæðarinnar á annan veg en ætlast var til í lánsfjáráætlun fyrir árið 1982. Þetta hefur svo aftur valdið þeim sjóðum sem hlut eiga að máli verulegum vandræðum. Hefur það að sjálfsögðu sérstaklega þrengt útlánamöguleika Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna. Ég held að önnur ályktun verði ekki dregin af reynslu liðins árs en sú, að eigi að ná þeim markmiðum sem tiltekin eru í lánsfjárlögum hverju sinni verði að taka þessi mál fastari tökum með skýrari og einbeittari lagasetningu en gert hefur verið, til þess að tryggja það að lífeyrissjóðir standi við áform lánsfjáráætlunar hvað kaup á skuldabréfum fjárfestingarlánasjóða snertir. Ég held að þessari fyrirspurn sé fyllilega svarað og læt þetta duga.