08.02.1983
Sameinað þing: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1793 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)
141. mál, byggðaþróun í Árneshreppi
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Þetta byggist auðvitað allt á ókunnugleika hjá hv. 5. þm. Vestf. Ég gat þess þó, að menn teldu að rétt væri að framkvæmd sem þessi hlyti formlegt samþykki Alþingis. Þess vegna var það að Bakkafjarðarframkvæmdin komst ekki fram á s. l. ári. Við afgreiðslu fjárl. fyrir árið 1982 var sú framkvæmd ekki tekin með, og það er fyrst á þessu ári, 1983, sem Bakkafjarðarhöfn er tekin með á fjárlögum með framkvæmdafé. Þetta er skýringin.
Nú ætla ég að taka það fram, að ég veit ekki hvernig stendur á um möguleika á að framkvæma hafnargerð í Árneshreppi í ár, en miðað við þessa afstöðu yfirstjórnar samgöngumála í fyrra ætlaði ég að svo mundi einnig gilda um Norðurfjörð, að menn teldu að hin formlega ákvörðun um framkvæmdina yrði því aðeins tekin að hér yrði samþykkt framkvæmdafjármagn til framkvæmdarinnar. Héðan í frá gefst ekki tími til þess fyrr en við næstu afgreiðslu fjárlaga. Áform um byggingu hafnar í Bakkafirði hafa verið uppi um hríð og byggðasjóðsstjórn tók frá fjármagn til framkvæmdarinnar fyrir framkvæmdaárið 1982, en það var ekkert framkvæmt af þessum ástæðum, sem ég hef nú skýrt og ég get út af fyrir sig ekki annað en metið gildar.
Þótt hér sé ekki um ógnarstóra framkvæmd að tefla get ég vel fallist á að framkvæmdavaldið og Alþingi, fjárveitingavaldið, taki hina formlegu ákvörðun. Að vísu má benda á að hér hefur verið tekin ákvörðun, afstaða, með samþykkt þáltill. til þessa máls, þannig að það er ærinn stuðningur við það. — Og við skulum í guðanna bænum ekki fara að metast á um einhvern mánaðarmismun á framkvæmd þessara tveggja nauðsynlegu framkvæmda, heldur styðja hver annan í því að þetta nái hið allra fyrsta fram.