09.02.1983
Neðri deild: 36. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1822 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)

Um þingsköp

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil fyrst og fremst taka undir orð hv. þm. Friðriks Sophussonar og er hann þá orðinn sammála mér um það, að þingstörfin hér undanfarna daga — og er ég þá ekki að gagnrýna hæstv. forseta heldur þá menn sem eiga að stjórna hér þingstörfum að öðru leyti — þingstörfin hafa farið fyrir ákaflega litið. Ég vil bara minna á þá daga sem liðnir eru af þessari viku. Það sem tekist hefur að gera hér í þingi er nánast ekkert annað en það, að ráðherrar hafa svarað hér nokkrum fsp. og í dag hefur dagurinn farið í utandagskrárumræður.

Ég vil endurtaka það, að stjórnin á þessu þingi, eins og hún hefur verið á undangengnum vikum og verður að öllum líkindum það sem lifir vetrar, er öll með sama marki brennd. Það verður engin breyting þar á. Þetta þing er í pattstöðu. Hér er ekki hægt að ræða nein mál af neinu viti og neinni alvöru, einfaldlega vegna þess að menn komast ekki út úr þeim vítahring að brjóta niður það afl, sem kemur í veg fyrir að þingið geti starfað með eðlilegum hætti. Þetta er mjög alvarlegt mál. Ég hef tekið býsna djúpt í árinni í gagnrýni minni á þingstörfin hér og kannske stundum verið orðljótur um of. Engu að síður vil ég endurtaka það, herra forseti, að mér finnst orðið ákaflega brýnt, ef þetta þing ætlar að halda einhverju broti af reisn sinni og virðingu meðal þjóðarinnar, að þeir sem fara með forustu þess setjist nú niður og reyni að komast að einhverju samkomulagi.

Nú vitum við, herra forseti, að það er verið að reyna að ná samkomulagi um kjördæmamálin. Það gengur hvorki eða rekur í þeim efnum og nú eru fram undan miklar viðræður sem enginn veit hvaða enda taka. Ég vildi því mælast til þess við virðulegan forseta þessarar deildar að hann beitti sér fyrir því af alefli að þetta þing færi að færast í eðlilegt horf. Sá háttur, sem hér hefur verið hafður á störfum, er fullkomlega óeðlilegur og ég er sannfærður um að mikill meiri hluti þingheims líður önn fyrir það að þurfa að hanga hér dag eftir dag, því að tilgangsleysið er svo algert að engu tali tekur.

Ég vildi ítreka þessi ummæli, ítreka það sem ég hef áður sagt um þetta mál, taka undir með hv. þm. Friðriki Sophussyni og fleirum sem þetta hafa gagnrýnt.