09.02.1983
Neðri deild: 36. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1822 í B-deild Alþingistíðinda. (1582)

Um þingsköp

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Það fellur naumast undir liðinn þingsköp, en þó tel ég ástæðu til að taka hér aðeins til máls vegna ummæla hv. 10. þm. Reykv. Hann var hér að býsnast yfir störfum þingsins og vitnaði í þingflokk framsóknarmanna í sambandi við kröfu um að gengið yrði að því sjálfsagða verkefni þingsins að afgreiða brbl., sem væru búin að vera, þinginu til vansæmdar, óafgreidd svo lengi. Ég vil mótmæla slíkum málflutningi, sem hjá honum kom fram, að þessa væri ekki þörf. Jafnframt vil ég minna á það sem kom fram hjá formanni þingflokks Sjálfstfl. í sjónvarpinu nú nýverið, að þetta væru ómerkileg lög sem ekkert lægi á að afgreiða og hefðu enga þýðingu. Þetta er stórkostleg yfirlýsing. Ég hefði gaman af því að það tækifæri skapaðist hér í þingsölum, að þessi hv. þm. gerði grein fyrir því hvaða þýðingu það hefði haft fyrir þjóðarbúið ef þessi brbl. hefðu ekki verið sett. Mér finnst það orðið nokkuð áberandi að vissir þm. geri ráð fyrir því að almenningur í landinu fylgist ekki með og geri sér ekki grein fyrir jafneinföldum málum eins og þessu.

Eitt að lokum vegna þess að hv. þm. var að belgja sig hér út um það, að hann hefði ekki komist að með sín þingmál í umr. hér í þessari hv. deild. Svo vildi til, að ég þurfti að gegna hér forsetastörfum í allt að hálfan mánuð, og mér er því kunnugt um að fund eftir fund óskaði þessi hv. þm. eftir því að þetta frv. um útvarpsrekstur, sem hér er 11. mál dagskrárinnar, yrði ekki tekið á dagskrá. Hvers vegna? Vegna þess að hann hafði sjálfur ekki tíma til að mæla fyrir því. Og ég get rakið það vegna þess að ég hélt dagbók yfir þessa daga, og dag eftir dag var meðhöndlunin þannig á því máli. Ég er ekkert að ásaka hann fyrir það að hafa ekki tíma til að mæla fyrir málinu, en að setja það fram hér sem sérstaka átyllu og árás á stjórn þingsins á þessum vettvangi, það er algerlega rangt og ég mótmæli því.