10.02.1983
Sameinað þing: 50. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (1602)

131. mál, heimilisfræði í grunnskólum

Flm. (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Ég þarf í raun og veru ekki margt að segja annað en að þakka hv. 2. þm. Austurl. fyrir hans góðu undirtektir undir þessa till. Ég get tekið undir það með honum að þetta er í sjálfu sér ekki till. sem er flokkspólitísk sem slík. Hins vegar hefur það alltaf verið á stefnuskrá sjálfstæðismanna að efla fjölskyldulíf og heimilislíf, og ég er þakklát hv. þm. fyrir að hafa minnt á okkar stóra og samstillta flokk í sínu máli. Ég skal sannarlega taka undir það hjá honum. Ég fagna því að hann hefur skilning á þessu máli. Ég vil taka undir það einnig, sem hann nefndi, að það væri nauðsynlegt að fá hæfa kennara og þar til menntaða til að taka að sér þessa kennslu. Þess vegna minntist ég einmitt á að það væri mikið atriði að leggja áherslu á að þetta nám sé valgrein í Kennaraháskóla Íslands, sem kennarar geti þá tekið sér sem aukagrein. Kæmi það betur að notum, sérstaklega úti í dreifbýlinu, þar sem trúlega er erfiðara að fá sérkennara í þessum efnum.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, en endurtek sérstakar þakkir mínar til hv. 2. þm. Austurl. fyrir undirtektir hans við málið.