10.02.1983
Sameinað þing: 50. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1849 í B-deild Alþingistíðinda. (1607)
139. mál, öryggiskröfur til hjólbarða
Flm. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Ég hef á þskj. 145 leyft mér ásamt nokkrum öðrum hv. þm. að flytja till. til þál. um öryggiskröfur til hjólbarða og innflutningsgjöld af hjólbörðum. Till. er svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta setja gæða- og öryggisreglur um innflutning hjólbarða með hliðsjón af því, sem tíðkast í grannlöndum okkar, og gera jafnframt ráðstafanir til að lækka verulega innflutningsgjöld af hjólbörðum.“
Það er svo, að um langt skeið hafa verið í gildi í grannlöndum okkar ítarlegar reglur um þær kröfur sem gerðar eru til hjólbarða sem notaðir eru á bíla. Hér á landi munu engar reglur í gildi, er varða slíkar kröfur, aðrar en þær sem felast í reglugerð og reglugerðarbreytingum frá árinu 1973, en þar eru mjög fáorð ákvæði um hjólbarða og segir, með leyfi forseta:
„Á hjólum bifreiðar skulu vera hjólbarðar úr gúmmí, hæfilega loftfylltir. Slitflötur hjólbarða skal vera mynstraður og skulu raufar í mynstrinu vera a. m. k. 1 mm á dýpt.
Hjólbarðar skulu vera gallalausir, og þeim skal vera réttilega fyrir komið.“
Þetta er í rauninni það eina sem segir um kröfur til hjólbarða, að raufar í mynstrinu skuli vera a. m. k. 1 mm á dýpt, og er nú sjálfsagt allur gangur á því. Auðvitað eru hjólbarðar einhver mikilvægasti öryggisbúnaður hverrar bifreiðar. Í framleiðslu þeirra hafa orðið miklar framfarir á undanförnum árum og af þeim ástæðum hafa verið settar mjög nákvæmar og ítarlegar reglur um þær öryggiskröfur sem þeir verða að uppfylla, t. d. í Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum og í velflestum löndum Vestur-Evrópu. Hjólbarðar sem ekki standast þessar gæðakröfur fást ekki seldir, eru ekki til sölu í viðkomandi löndum. Kröfurnar, sem gerðar eru til hjólbarða, eru ekki hinar sömu austan hafs og vestan, og það stafar m. a. af því, að í Bandaríkjunum eru á öllum þjóðvegum strangar hraðatakmarkanir, en víða í Vestur-Evrópu, t. d. í Þýskalandi, eru ekki hraðatakmarkanir á þjóðvegum, a. m. k. ekki alls staðar, og því eru þar gerðar meiri kröfur um styrkleika hjólbarða.
Sú staðreynd, að hér á landi eru engar reglur í gildi um þessi efni, hefur leitt til þess, að hingað til lands hafa verið fluttir í verulegum mæli gallaðir hjólbarðar, einkum til notkunar undir fólksbíla. Þessir hjólbarðar geta verið bæði gallaðir í útliti og eins með leyndum göllum sem fyrst koma í ljós þegar byrjað er að aka á þeim. Þessir hjólbarðar eru yfirleitt þannig, að merki framleiðenda og aðrar upplýsingar, sem greyptar eða steyptar eru í barðann, hefur verið raspað burt. M. ö. o., viðkomandi framleiðandi vill ekki kannast við vöruna og því er hún seld nafnlaus og númerslaus. Það er rétt að geta þess, að á venjulegan hjólbarða eru nú yfirleitt skráð tíu mismunandi upplýsingaatriði varðandi stærð og gerð í bókstöfum og tölum, sem greyptar eru í hlið hjólbarðans.
Það þarf ekki að fara um það mörgum orðum að gallaðir hjólbarðar geta reynst hættulegir. Samkv. upplýsingum, sem ég hef aflað mér, mun ekki fjarri lagi að giska á, miðað við innflutning síðustu þriggja ára, að 15–20% fólksbíla hér á landi séu með hjólbarða af þessu tagi, þar sem nafn framleiðenda og aðrar upplýsingar hefur verið máð burt.
Þá er einnig rétt að geta þess, að flutt er til landsins verulegt magn af notuðum, hálfslitnum og alslitnum, hjólbörðum erlendis frá. Hluti af þeim er sólaður hér, þ. e. fær nýjan slitflöt, en hluti af þessum gömlu hjólbörðum er seldur eins og hann kemur til landsins án þess að nokkuð sé fyrir hann gert. Til eru á markaði erlendis, segir í grg. þessarar till. og raunar hérlendis líka samkv. upplýsingum sem mér hafa borist frá því að þessi grg. var skrifuð, hjólbarðar sem þannig eru merktir að þá má einungis nota á landbúnaðartæki, þ. e. tæki sem mest eru notuð utan vega. Eins eru hér á markaði hjólbarðar sem eru eingöngu ætlaðir undir hestvagna og uxakerrur og eru merktir sem slíkir, væntanlega til sölu í Indlandi, í Afríkulöndum og víðar þar sem slík farartæki eru mikið notuð og menn byggja á þeim. Slíkir hjólbarðar eru til sölu hér og hafa verið. Það er vissulega ástæða til að banna að slíkir hjólbarðar séu notaðir undir bíla sem ekið er með 100 km hraða og þaðan af hraðar.
Í Finnlandi hafa sams konar mál verið á döfinni. Slíkir hjólbarðar hafa verið seldir þar og þótti ekki til fyrirmyndar. Ég hef aflað mér þeirra reglna, sem gilda um þessi mál, t. d. í Noregi. Sú reglugerð, sem þar gildir um hjólbarða, er hvorki meira né minna en 17 vélritaðar síður og þar eru mjög ítarleg ákvæði um hvaða kröfur hjólbarðar þurfi að uppfylla þannig að þeir megi vera þar til sölu. Segir hér m. a. að vetrarhjólbarðar verði að vera þannig að þeir þoli hraðakstur sem nemur 130 km hraða á klukkustund. Þarna er áreiðanlega nokkuð breiður öryggisrammi, ef svo má segja, þannig að gerðar eru strangar kröfur.
Auðvitað er ein af meginástæðum þess að hér er verið að flytja inn hestvagnahjólbarða og selja undir bíla og eins fyrir þessum innflutningi á notuðum hjólbörðum, hálfslitnum og alslitnum, sem síðan eru seldir hér og sumir sólaðir, sú að hjólbarðar eru mjög dýrir hér. Það lætur nærri að ríkið taki til sín um helming af útsöluverði hvers hjólbarða.
Tilgangurinn, herra forseti, með flutningi þessarar þáltill. er fyrst og fremst sá að vekja athygli á því ófremdarástandi sem hér hefur skapast, þ. e. að heimilt skuli að flytja til landsins ekki aðeins lélega heldur gallaða hjólbarða og selja neytendum sem góða og gilda vöru. Hér er engin neytendavernd í þessum efnum og þess vegna eigum við auðvitað eins og aðrar þjóðir, bæði Norðurlandaþjóðirnar og allar þjóðir Vestur-Evrópu, að setja reglur um þessi mál þannig að hjólbarðar séu ekki settir á markað hér öðruvísi en þeir standist lágmarks gæðakröfur. Það hefur sjálfsagt ekki verið rannsakað, en ég hygg að þau umferðarslys séu e. t. v. nokkuð mörg sem beint eða óbeint megi rekja til gallaðra eða lélegra hjólbarða.
Í öðru lagi er það tilgangurinn með þessum tillöguflutningi að leitast við að fá stjórnvöld til að láta af óhóflegri skattheimtu af hjólbörðum og gera þá þannig ódýrari og stuðla að auknu öryggi í umferðinni. Það væri ekki illa til fundið að það væri eitt af framlögum íslenska ríkisins á norrænu umferðaröryggisári að lækka verulega aðflutningsgjöld af hjólbörðum og setja reglur sem tryggðu að íslenskir neytendur væru ekki hlunnfarnir þegar þeir kaupa hjólbarða.
Herra forseti. Ég ítreka það, sem ég sagði áðan, að hér er um öryggismál að ræða. Það er auðvitað hneyksli að hér skuli vera seld undir bíla dekk eða hjólbarðar, sem merkt eru annars vegar For farm machinery only á ensku, aðeins til nota á landbúnaðartæki, eða með skammstöfuninni ADV, sem þýðir Animal driven vehictes, og það eru hestvagnar og uxakerrur svo að það sé enn ítrekað.
Ég ætla ekki, herra forseti, að hafa þessi orð fleiri. Ég legg til, er þessari umr. hefur verið frestað, að þessu máli verði vísað til allshn.