10.02.1983
Sameinað þing: 50. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1851 í B-deild Alþingistíðinda. (1609)
168. mál, gjaldskrár þjónustustofnana
Flm. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja till. á þskj. 259, sem er örstutt og fjallar um breytingar á gjaldskrám þjónustustofnana og hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að sjá svo um, að þjónustustofnunum ríkisins verði skylt að senda allar tillögur um efnislegar breytingar á gjaldskrám til umsagnar Neytendasamtakanna og Verslunarráðs Íslands.“ — Og lýkur hér tilvitnun sem inniheldur þáltillgr. sjálfa.
Í grg. með þessari þáltill., sem áður hefur verið flutt á 102. löggjafarþinginu, er því lýst hvað hér er átt við. Þegar talað er um efnislegar breytingar á gjaldskrám þjónustustofnana er átt við það þegar hlutfallslegar breytingar verða á kostnaðarliðum sem eru í gjaldskrá. Ekki er átt við það þegar hækkun á sér stað einfaldlega vegna verðlagshækkunar, heldur eingöngu þegar innbyrðis hlutföll riðlast af ýmsum ástæðum. Slíkt gerist stundum og þá stundum til þess að snúa á vísitöluna, ef svo má að orði komast, og til eru dæmi þess. T. d. mátti ekki hækka heitt vatn á sínum tíma, þar sem heita vatnið var í vísitölunni. Þá var hitaveitum leyft að hækka heimæðagjald fimmfalt meira vegna þess að heimæðagjald, sem vissulega er í gjaldskrám, var ekki í vísitölunni.
Auðvitað gæti hæstv. ríkisstj. framkvæmt þetta án þess að þessi till. verði samþykkt, en þar sem yfirvöld og hæstv. ríkisstj. hafa ekki séð ástæðu til að gera það, þrátt fyrir ábendingu Neytendasamtakanna, kýs ég að leggja þessa till. hér fram til samþykktar á yfirstandandi þingi, enda hafa menn úr öllum stjórnmálaflokkum lagt áherslu á að þessi till. nái fram að ganga.
Ég ætla ekki að flytja um þetta ræðu. Ég get vísað til fyrri ræðu minnar, sem hér var flutt á 102. þingi, og kýs að hafa ekki lengra mál um þetta. En hinn 1. febr. s. l. skrifuðu Neytendasamtökin bréf til formanna þingflokkanna, þar sem Neytendasamtökin lýsa því yfir að þau telji mjög mikilvægt að framangreind till. nái fram að ganga á yfirstandandi þingi. Í bréfinu hvetja Neytendasamtökin til þess að hún verði samþykkt.
Herra forseti. Það er ástæðulaust að fylgja þessu máli eftir með fleiri orðum. Hér er á ferðinni mál sem ég hygg að flestir séu sammála um. Ég leyfi mér að fara þess á leit að málinu verði vísað til allshn.