01.11.1982
Neðri deild: 6. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (163)

28. mál, málefni aldraðra

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég gat því miður ekki verið við umr. um þetta mál s.l. miðvikudag, en ég vil láta í ljós sérstaka ánægju mína með að þetta frv. skuli nú vera fram lagt og það snemma að auðvelt ætti að vera fyrir þingið að afgreiða það.

Ég vil ekki hér nú ræða efnisatriði frv. Bæði er að ég fylgdist ekki með umr. um það s.l. miðvikudag, en ég hef fylgst með málinu allt frá fyrstu tíð, frá aðdraganda þess vorið 1979, og svo hitt, að ég á sæti í heilbr.- og trn. þessarar hv. deildar og mun fjalla um málið þar.

Ég hef nokkrar athugasemdir að gera við frv., aðallega að því er varðar stjórnun þessara mála og þátt sveitarfélaganna í því öllu saman, en þær athugasemdir mun ég gera í heilbr.- og trn.

Ég vil bara endurtaka ánægju mína með að þetta mál skuli vera fram komið og mun gera mitt til þess að flýta afgreiðslu þess hér á hinu háa Alþingi.