14.02.1983
Neðri deild: 38. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1905 í B-deild Alþingistíðinda. (1637)

85. mál, efnahagsaðgerðir

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að tala langt mál um það frv. sem hér er til umr. þó að sjálfstæðismenn í þessari hv. deild hafi ekki haft uppi miklar eða langar orðræður um það. Það hefur glögglega komið fram í þeim ræðum sem hér hafa verið fluttar að það er allt annað sem að baki liggur en látið er í veðri vaka þegar hert hefur verið á því að þetta frv. fái afgreiðslu og hana fljóta. Það er ekki það sem liggur til grundvallar að yfir landið ríði ný dýrtíðarholskefla ef frv. verði fellt eða það fái ekki einhvers konar afgreiðslu. Það hefur verið sýnt fram á að þetta er hin mesta firra. Frv. er í gildi. Hinir ýmsu kaflar þess eru búnir að vera í gildi misjafnlega lengi og það er ekki langt í það að ákvæði þess séu búin að renna sitt skeið. Og þau verða ekki framlengd í frv. eins og það er.

Mig langar, fyrst ég er kominn hér í ræðustól, að fara örfáum orðum um vissa þætti frv. og einnig að víkja að því sem upphaflega kom fram í umr. frá okkur sjálfstæðismönnum þegar efni þess var sett fram sem brbl. Við vorum sammála um að þetta frv. væri óeðlilegt. Það hefði ekki þær verkanir sem því væri ætlað. Við höfum margt við það að athuga efnislega. Við töldum því einsætt að nauðsynlegt væri að kalla þing saman hið fyrsta svo við gætum tekið afstöðu til málsins. Ef ríkisstj. vildi ekki gera á því þær breytingar sem við töldum nauðsynlegastar, þá væri eðlilegt að hún færi frá, þegar það hafði líka komið á daginn að hún hafði misst starfhæfan meiri hluta í þinginu. Þegar frv. kom fram í sumar í ágústmánuði fylgdi það með að ríkisstj. hefði uppi áform um að leggja fram margs konar fleiri frv., en hæst hefur borið allan þennan tíma þau tvö atriði sem ríkisstj. hugðist taka fram yfir önnur. Í fyrsta lagi voru það lög um aukið orlof og í öðru lagi um nýjar viðmiðunarreglur í vísitölumálum.

Í 1. gr. þessa frv. er gert ráð fyrir því að vegna samdráttar þjóðartekna, eins og segir þar, verði skertar verðbætur á laun 1. des. til 28. febr., eins og segir nánar frá í þessari lagagr. Ef litið er til þess, að þær aðgerðir eiga að verða til þess að vega upp á móti þeim samdrætti sem varð í þjóðartekjum, þá verður torvelt að skilja með hverjum hætti var mögulegt að koma þó á því aukna orlofi sem gert er ráð fyrir í orlofslögunum, sem þegar hafa verið afgreidd frá Alþingi.

Ýmsir þeir sem ekki hafa krufið það mál neitt verulega til mergjar telja að þær orlofsbætur sem launafólki eru ætlaðar með þeim lögum séu svo litlar, vegi svo létt, að um þær muni ekki neitt fyrir atvinnureksturinn í landinu. Þegar það er athugað nánar er rétt að undirstrika það, að komið hefur fram m. a. frá fjmrn. að þessi lagagerð, orlofslögin, verði þess valdandi, að ef á að halda uppi sömu afkastagetu þess fólks sem vinnur hjá ríkinu eftir orlofslagabreytinguna og var fyrir hana, þá þurfi að fjölga fólki í ríkisgeiranum um á þriðja hundrað manns. Og ég býst við að þegar menn almennt gera sér grein fyrir þessu komi þeir auga á það að hér er síður en svo um lítilvægt efni að ræða. Þegar þetta verkar nú á þennan hátt hjá ríkinu sjálfu, þá gefur auga leið hvernig það kemur út hjá atvinnurekstrinum yfirleitt. Um það fékk sú nefnd sem um málið fjallaði mjög glöggar upplýsingar frá ýmsum aðilum. Ekki síst er þörf á að minna á að m. a. flugfélögin hafa af þessu verulegan kostnað, svo stórkostlegan að þeir sem ekki eru inni í þeim rekstri eiga erfitt með að átta sig á hversu mikill hann er. Ég ætla ekki að fara út í að skýra það neitt nánar, en þar er um miklar fjárhæðir að ræða.

Í öðru lagi langar mig að víkja aðeins að því að í 2. gr. gerir ríkisstj. ráð fyrir því að bæta launafólki nokkuð upp þá skerðingu á launum sem 1. gr. gerir ráð fyrir. 2. gr. er svohljóðandi með leyfi hæstv. forseta:

„Ríkisstj. er heimilt að ákveða að sérstakar bætur, allt að 50 millj. kr., verði greiddar úr ríkissjóði til láglaunafólks á árinu 1982. Tilhögun þessara bóta verður ákveðin í samráði við samtök launafólks.“

Nú þori ég ekki að fullyrða hversu nákvæmlega hefur verið farið eftir ákvæðum þessarar greinar, en mig grunar að samráð við samtök launafólks hafi ekki verið allt of mikið þegar ákveðið var með hverjum hætti þessar láglaunabætur yrðu greiddar. Lögin ákveða þetta ekki, þau setja þarna engar reglur, heldur fela ríkisstj. að ganga frá þessum málum. Er það eitt af því sem við sjálfstæðismenn töldum vera óeðlilegt, að gera það með þessum hætti.

Lengi vel voru þessar greiðslur kallaðar láglaunabætur og eftir orðanna hljóðan í 2. gr. eru þær það. En þegar þeir sem stóðu að þessum lögum höfðu áttað sig á þeirri kúrfu sem láglaunabæturnar birta, þegar þær eru settar niður á pappír, að þeir sem lægst hafa launin fá minnstar launabæturnar, þá drógu sumir í land og fóru að kalla þetta endurgreiðslu á skerðingu. Það er ein aumasta uppgjöf sem ég hef heyrt getið um hjá einni ríkisstj. að hafa hugsað sér að bæta lægst launaða fólkinu upp skerðingu sem gerð hefur verið, en gera það með þeim hætti að þeir sem lægstu launin hafa fái minnstar bæturnar upp að vissu marki. Þetta sýnir m. a. að það var ekki út í bláinn sagt hjá okkur sjálfstæðismönnum að við vildum gjarnan fá að hafa áhrif á það með hverjum hætti þessi lög yrðu gerð, og vildum fá til þess tækifæri á meðan þau voru ekki farin að hafa áhrif eða verka, því það var þeim ekki ætlað að gera fyrr en 1. des., eða góðum tíma eftir að Alþingi átti að koma saman. En þá lá ríkisstj. ekki á að koma áfram lögunum. Þau voru ekki lögð fram fyrr en löngu síðar. Þann drátt er býsna erfitt að skýra og ég ætla ekki að taka að mér að gera það.

Í þriðja lagi langar mig að drepa á þau ákvæði brbl. sem felast í 3. og 4. gr. þeirra, sem fjalla um þann gengismun sem ákveðið er að skila ekki eftir þá breytingu sem varð á gjaldeyrinum við gengisfellinguna, sem sagt þau 6.5% gengismunar sem ákveðið var að nota til ákveðinna hluta sem síðar er nánar tilgreint í 4. gr. Ég viðurkenni það og veit að þetta er aðferð sem tíðum hefur verið notuð af íslenskum stjórnvöldum og ég hygg að eigi nokkurn rétt á sér. Og að hluta til átti þessi ráðstöfun rétt á sér að þessu sinni. Þó verð ég að segja að þessi ráðstöfun var öll mjög umdeilanleg, ekki síst fyrir þá sök hversu atvinnuvegirnir og þá einkum útvegurinn, frystiiðnaðurinn stóð og stendur höllum fæti.

Það er vissulega ábyrgðarhluti að taka sér fyrir hendur að ráðstafa með öðrum hætti þeim gengiságóða, sem maður getur kallað svo, sem kemur við gengisbreytingu, til annarra aðila en þeirra sem til hans stofna. Þetta atriði er það sem ég tel að hefði verið full ástæða til að ræða nánar á meðan tími og tóm var til. Því var það ein af þeim ástæðum sem við sjálfstæðismenn töldum eðlilegt að þyrfti að fara ofan í á sínum tíma. Nú hafa þessar greiðslur á gengismun að miklu leyti farið fram og þeim verður ekki breytt úr því sem komið er. En ég vil taka undir þau orð sem hv. 1. þm. Vestf. viðhafði hér áðan um till. þá sem hæstv. sjútvrh. hefur lagt fram um breytingu á 4. gr., þar sem frekar er gert ráð fyrir ráðstöfun gengismunar sem ekki er til. Ég vil undirstrika það og lýsa því hér yfir að ég er með öllu andvígur því að slík ráðstöfun sé gerð sem í till. hæstv. sjútvrh. felst. Ég tel það alveg undravert að láta sér detta í hug slíka ráðstöfun sem þar er imprað á.

Í fjórða lagi vil ég nefna að í 7. og 8. gr. brbl., sem hér eru til umr., felst aukning á sköttum, sem telja verður mjög óeðlilegt á þeim tíma þegar samdráttur er í þjóðartekjunum, laun eru skert hjá launamönnum og atvinnuvegirnir standa höllum fæti. Það er með ólíkindum að láta sér detta í hug að hækka þá vörugjald með þeim hætti og til þess tíma sem hér er gert ráð fyrir. Öðrum ráðstöfunum, sem þurft hefðu að fylgja með, eru ekki gerð nein skil. Hefðum við sjálfstæðismenn á sínum tíma viljað breyta þar verulega um frá því sem hér er gert.

Herra forseti. Eins og ég sagði í upphafi máls míns hef ég ekki neinn áhuga á að halda hér langa ræðu um þetta efni. Það er nokkuð búið að ræða þetta, þó að um það hafi ekki mjög verið fjallað af hendi sjálfstæðismanna í þessari deild enn sem komið er, og ég ætla ekki að fara um það mörgum fleiri orðum.

Ég vil ítreka það að á þeim tíma sem brbl. voru sett var fullkomin ástæða til, eins og sjálfstæðismenn bentu á, að kveðja saman þing og reyna að gera þessi lög betur úr garði og eðlilegri en þau urðu í meðferð ríkisstj. Þau eru að mínum dómi mjög mikið úrhendisverk og hafa enda ekki verkað til þess að halda niðri dýrtíðinni að neinu leyti. Því að verðbólgan er ekki síður í hröðum vexti upp á við nú en hún var þegar lögin voru sett.