14.02.1983
Neðri deild: 38. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1923 í B-deild Alþingistíðinda. (1669)

85. mál, efnahagsaðgerðir

Frsm. 2. minni hl. (Sighvatur Björgvinsson):

Herra forseti. Ég ætlaði mér ekki að taka til máls hér aftur, en vegna ræðu hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar sé ég mig tilknúinn. Í grg. með nál. mínu fyrir hönd Alþfl. á þessu máli kemur það m. a. fram, að ein af þeim till., sem við höfðum lagt fyrir þetta Alþingi um breytingu á efnahagsstefnu og gerbreytta efnahagsstefnu, er frv. til l. sem Jóhanna Sigurðardóttir og fleiri Alþfl.-menn flytja hér í Nd. þess efnis, að þær breytingar verði gerðar á viðmiðun lánskjaravísitölu við laun að greiðslubyrði af verðtryggðum lánum geti aldrei hækkað umfram hækkanir verðbóta á kaup. Þetta er mjög mikilvægt mál, sem skiptir sköpum fyrir afkomu fjölmargra heimila. Ég vil því lýsa sérstakri ánægju minni og okkar Alþfl.-manna með að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson skuli taka undir þetta frv. og lýsa sig reiðubúinn að standa með okkur að samþykkt þess. Ég vona að hann tali þar fyrir hönd flokkssystkina sinna og þakka þessa liðveislu, sem við höfum fengið.

En að öðru leyti vildi ég aðeins leiðrétta eilítinn misskilning hjá hv. þm. Hann sagði að sú skerðing vísitölubóta á laun, sem ætti sér stað samkv. þessum brbl., tæki aðeins til eins vísitölutímabils, til tímabilsins frá 1. des. 1982 til 1. mars 1983. Þetta er rangt. Vísitöluskerðingin samkv. óbreyttum lögum mun halda áfram öll vísitölutímabil þangað til hún verður leiðrétt. Þann 1. des. s. l. héldu launagreiðendur í landinu eftir af launum starfsfólks síns, sem þeim bar að greiða samkv. gildandi kjarasamningum, 135 millj. kr. Þessum 135 millj. kr. á verðlagi í des. 1982 munu launagreiðendur í landinu halda eftir af launum starfsmanna sinna hverjum einasta mánuði nema þessi lög verði felld. Á árinu 1983 samsvarar þetta því, að launþegar eigi kröfu á vangreiddum launum, sem þeir ættu að fá samkv. gildandi kjarasamningum, upp á 1620 millj. kr. Það er því rangt hjá hv. þm. að þessi launaskerðing standi aðeins í þrjá mánuði. Hún stendur hvern einasta mánuð hvert einasta ár nema lögin verði felld. Ef hv. þm. vill takmarka skerðinguna við aðeins þriggja mánaða tímabil og sjá til þess að ríkisstj. svipti launafólk í landinu aðeins 405 millj. kr. í stað 1620 millj. kr. sem ella mundi verða á næsta ári, á hann aðeins einn kost og hann er sá að fella þessi lög áður en nýtt verðbótatímabil gengur í gildi. Ella munu atvinnurekendur á Íslandi halda eftir af umsömdum launum verkafólks 135 millj. kr. um aldur og ævi á hverjum einasta mánuði. Og þetta, herra forseti, er margföld kjaraskerðing á við það sem sú stjórn gerði sem við Guðmundur J. Guðmundsson stóðum saman um að fella vorið 1978. Þetta er hv. þm. augsýnilega ekki ljóst, en ég vil að þegar hann greiðir atkv. sitt að lokinni þessari umr. sé honum það ljóst.

Hann getur að sjálfsögðu sagt í viðtali við blað sitt að hann hafi ekki heyrt það sem ég er að segja núna, hann hafi ekki vitað það eða hann hafi ekki skilið það. En ég vil gera mitt til að koma þessari ábendingu á framfæri.

Það er líka alveg rétt hjá hv. þm., að það hefur oft verið erfitt að koma kjarabótum til hinna lægst launuðu. Hvers vegna? M. a. vegna þess að verkalýðshreyfingin hefur því miður byggt upp sína kauptaxta þannig, að í þeim er falin sjálfvirk vörn fyrir hina launaháu. Með taxtaákvörðunum hefur því verkalýðshreyfingin sjálf komið í veg fyrir að hægt sé með almennum aðgerðum á sviði launamála að koma kjarabótum til hinna lægst launuðu öðruvísi en svo, að þær gangi upp altan launastigann. Mér er það í fersku minni að árið 1979 studdum við saman ríkisstjórn, ég og hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, og vorum að leita leiða til þess að koma kjarabótum til hinna lægst launuðu. Þá var miðað við 200 þús. kr. mánaðartekjur samkv. umsömdum töxtum, sem sennilega jafngildir því í dag að menn hafi eitthvað í kringum 600–700 þús. gkr. á mánuði og þykir engum mikið. En þegar farið var að skoða framkvæmdina á því kom í ljós að kauptaxtar Alþýðusambandsins voru þannig upp byggðir að 85 % allra félaga innan vébanda Alþýðusambands Íslands hefðu fengið sérstakar kjarabætur, láglaunabætur, með þessum hætti. Þarna, herra forseti, er ekki við löggjafann að sakast né ríkisvald. Þarna hafa þeir sem betur mega sín í röðum verkalýðsfélaganna sjálfra búið sér til kerfi. þar sem hið raunverulega kaup er fólgið í alls konar kaupaukum og viðbótargreiðslum ofan á lága taxta í því skyni einu að aldrei sé hægt að koma lægst launaða fólkinu til hjálpar með beinum afskiptum af launamálum.

Þess vegna hef ég stutt það sjónarmið, sem m. a. hefur komið fram hjá ríkisstj., að það sé rétt að reyna að leita lausnar á þessu í gegnum skattaleiðina, því að fólk á Íslandi, þó það segi oft ekki satt í sínum skattaframtölum, lýgur ekki á sig tekjum. Svo furðulega hefur viljað til að ég er sennilega einn af fáum mönnum í stjórnarandstöðu sem hef ekki viljað skjóta alfarið niður þá láglaunabótaleið sem ríkisstj. var að reyna að framkvæma. Hún hefur sætt gagnrýni. Það er rétt hjá hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni. En sá aumingjaskapur sætir miklu meiri gagnrýni hjá mér, sem orðið hefur uppskátt um, að forustumenn launafélaganna í landinu skuli hafa setið á samráðsfundum um hvernig láglaunabótunum skyldi fyrir komið í heilar tvær vikur og fyrir þeirra tilverknað skuli umtalsverðar breytingar hafa verið gerðar á aðferðunum, sem láglaunabótunum var úthlutað eftir, m. a. í þá veru að skera frá það fólk, sem minnst bar úr býtum á árinu 1981, til þess að launafólk, sem hærri tekjur hafði á því ári, fengi láglaunabætur greiddar. Það er slæmt að horfa svo upp á að þeir menn, sem sjálfir hafa átt aðild að þessum ákvörðunum og sjálfir hafa beitt sér fyrir því að einmitt svona skuli láglaunabæturnar vera greiddar, krossfesti ríkisstj. frammi fyrir þjóðinni í opinberum fjölmiðlum, afsali sér allri ábyrgð og skjóti sér á bak við það að fólk hafi ekki vitað af þessu. Það er kannske mannlegt að hlaupast svona undan ábyrgð á eigin verkum, en það er ekki stórmannlegt. Og eins og ég hef bent á í nál. mínu átti m. a. sá hv. alþm., sem var að ljúka máli sínu hér áðan og gagnrýna framkvæmd láglaunabótanna, sæti á fundum forustumanna verkalýðshreyfingarinnar með starfsmönnum fjmrn., þar sem þessar reglur voru ákveðnar. Það er slæmt að horfa svo á þessa menn hlaupa frá öllu saman eftir á, þegar gagnrýni kemur fram á framkvæmd sem vissulega hefði mátt vera betri, og þurfa svo að standa í því sem stjórnarandstæðingur að benda á ýmislegt jákvætt í sambandi við þetta láglaunabótakerfi, sem höfundarnir þora sjálfir ekki að kannast við. Ja, lágt er nú risið á Ásmundunum í verkalýðshreyfingunni!

Herra forseti. Það má vel vera að sú regla gildi í þessum málum að sá veldur sem á heldur. Í mínum augum skiptir ekki máli hver kaupránslög setur, hvort það er Alþfl., Sjálfstfl., Framsfl. eða Alþb. Gerðin er ein og söm. En menn geta haft tungur tvær og talað sitt með hvorri. Það er skelfilegt til þess að vita hvernig launþegahreyfingin hefur látið misnota sig í þágu þess að ýmsir helstu forustumenn hennar skuli jafnframt eiga sæti í miðstjórn eins stjórnarflokksins. Nú er ekki lengur talað um kjörseðilinn sem vopn í kjarabaráttunni. Nú er ekki lengur talað um að sigur í kosningum hjá ákveðnum stjórnmálaflokki tryggi samningana í gildi. Nú er ekki talað um að vinni ákveðinn stjórnmálaflokkur kosningasigur sé kaupránsmúrinn hruninn.

Herra forseti. Árið 1978 var til sambærilegra ráðstafana gripið og nú nema hvað kjaraskerðingin var ekki jafnmikil. Þá var m. a. sagt í ræðu á Austurvelli — það var sá sem lauk máli sínu rétt áðan, með leyfi forseta:

„Mig langar að lokum til þess að biðja alla launþega, hvar í flokki sem þeir standa, að leggja öll deilumál til hliðar um stund og sameinast sem einn maður og rísa upp gegn þessum ólögum, gera með því kröfuna um afnám þeirra og að kjarasamningar taki aftur gildi svo sterka að ríkisvaldið geti ekki staðið gegn henni.“

Hvað segir sá maður nú?

Þá var sagt í ræðu á Austurvelli, með leyfi forseta: „Í annan stað vil ég benda á að heiðarlegasta fólk þessa lands er hinn venjulegi alþýðumaður og það fólk hefur fram til þessa litið svo á að samningar sem það gerir séu löglegir og heiðarlegir samningar. En þegar svo er svikist aftan að því og það rænt umsömdum kjarabótum, sem aðilar hafa samþykkt í frjálsum samningum, þá stríðir slíkt gegn stéttarvitund þess. Svona fals og lygar stríða gegn stéttarvitund fólks og þess vegna mótmælir það nú vitandi að ef ekki verður mótmælt kröftuglega, þá fylgir frekari kjaraskerðing í kjölfarið.“

Sami hv. þm. sagði einnig við þetta tækifæri:

“Í hugum alþýðufólks eru samningar skuldbindandi. Almennt alþýðufólk lítur á samning þannig að honum megi ekki rifta eða hlaupast frá. Það kemst ekki upp með að greiða ekki skatta sína og skyldur né að neita að greiða af íbúðum sínum eða öðru sem það festir kaup á. En stjórnvöld hafa á þessu aðrar skoðanir, enda kemur spillingin ætíð ofan frá. (Gripið fram í.) Sú spilling að virða ekki gerða samninga eins og alþýðufólki er ætlað að gera.“

Hver virðir ekki gerða samninga nú, hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson? Hvaða ráðh. var það sem skrifaði undir kjarasamninga við opinbera starfsmenn, hvers undirskrift var varla þornuð undir samningnum þegar hann með einhliða aðgerð ákvað að virða þá samninga ekki?

Kaupránslögin 1978 voru um 5%. Núna stendur kaupránið um 7.7%. (GJG: Hvaða vitleysa er þetta?) Árið 1978 sagði hv. þm., sem segir „hvaða vitleysa er þetta“ þegar ég tek mér 5% heitið í munn, og hlustið þið nú. Hann sagði þá:

„Það er verið að berjast um meira en 5% . Það er verið að berjast um rétt verkalýðsfélaganna til samningsgerðar. Ætlið þið að flytja kóngsins mann yfir Skerjafjörð?“ Hver flytur nú kóngsins mann og hvert?