01.11.1982
Neðri deild: 6. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
28. mál, málefni aldraðra
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það er skammur tími sem okkur er skammtaður hér. Við höfum reyndar haft langan tíma þegar til að ræða þetta mál. Það þarf nú að fara til nefndar. En tíminn er sérstaklega skammur miðað við þau orð og ummæli sem hér hafa fallið, því að greinilegt er að það væri full þörf á að ræða þetta mál hér mjög ítarlega og lengi, og gefst vonandi tækifæri til þess við 2. umr. málsins.
Ég vil í fyrsta lagi segja þetta út af aðdróttunum 6. landsk. þm., Karvels Pálmasonar: Allir sifja við sama borð við úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Þegar hv. þm. segir hins vegar að það sé vafamál að ráðh. hafi heimild til að raða niður framkvæmdum með þeim hætti sem gert hefur verið, þá er hann að segja að ráðh. hafi í raun og veru ekki lagalegan rétt og heimild til að raða verkefnum í forgangsröð. Ég vil segja: Það er skylda ráðh. að raða verkefnum í forgangsröð, eftir því sem hann telur heppilegt og skynsamlegt á hverjum tíma. Eins og ég sagði hér á síðasta fundi um þetta mál, þá tel ég að Vestfirðingar hefðu ekki verið neitt bættari með það þó að B-álman hefði staðið nokkrum mánuðum lengur hálfköruð hér suður í Fossvogi. Ég tel að sú uppsetning mála, sem hér hefur komið fram, sé byggð á miklum misskilningi. Ég vona að það sé ekkert annað á bak við það en misskilningur.
Hv. þm. Karvel Pálmason ræddi mjög um þessi mál og í rauninni er hann að segja með sinni röksemdafærslu að ráðh. eigi á hverjum tíma að láta alla fá fé úr sjóðnum, sem leggja inn umsóknir, sem teljast faglega nothæfar. Með úthlutunaraðferð af þessu tagi væri verið að eyðileggja Framkvæmdasjóð aldraðra. Hann mundi ekki skila einni einustu framkvæmd fullkláraðri fyrr en eftir 5–10 ár eða svo. Það er enginn bættari með það. Það er skynsamlegra að verja fénu í verkefni sem skila sér hið fyrsta fyrir hina öldruðu í landinu. Það er grundvallaratriði sem sjóðsstjórnin hefur sem betur fer haft í heiðri.
En ég endurtek það, sem ég sagði hér áður í umr. um þetta mál, að auðvitað er frv. um málefni aldraðra núna í höndum Alþingis. Auðvitað getur Alþingi tekið sínar ákvarðanir í þeim efnum, en ég teldi ekki skynsamlegt að haga þeim ákvörðunum þannig, að þessu fé yrði dreift til svo að segja allra sem óska eftir því og þar með yrði ekki tryggt að það skilaði nægilegum árangri eins fljótt og ella væri.
Varðandi fyrirspurnir, sem hér hafa verið bornar fram efnislega, vil ég fyrst víkja að fsp. hv. 8. landsk. þm., Guðrúnar Helgadóttur. Hún spurði: Hvernig er séð fyrir því að féð sé rétt notað? Það gerist ósköp einfaldlega á sama hátt og með aðrar fjárveitingar. Við veitum t.d. fé úr þessum sjóði til Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborg sér um framkvæmdirnar við B-álmuna. Það er veitt fé til Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, sjómannadagsráðs, og þeir aðilar sem þar fjalla um málið sjá um að nýta féð. Ég hef enga ástæðu til að ætla að fé sé verr nýtt úr þessum sjóði en öðrum sjóðum, nema síður sé. Ég held að menn hafi lagt sig fram um að nota þetta fé sem allra best vegna þess hversu knappt hefur verið skammtað þrátt fyrir allt. Hins vegar mætti vafalaust víða halda miklu betur á málum í þeim efnum. Ég kann ekki við að nefna einstök dæmi, en ég fullyrði að þar hefur sums staðar farið býsna mikið úrskeiðis.
Varðandi ummæli hv. þm. Alexanders Stefánssonar, að það hafi kannske verið óeðlilegt af ráðh. að undirrita starfsreglur fyrir sjóðinn áður en málið kom til meðferðar í fjvn. Ég mótmæli þessu alveg. Ráðh. ber pólitíska ábyrgð á því að gera úthlutunartillögur og hafa síðan um hana samráð við fjvn. Honum er þar af leiðandi skylt að segja við stjórn sjóðsins hvernig hann vill að tillögur verði gerðar. Þess vegna var það sem ég lagði fyrir stjórn sjóðsins að haga sinni úthlutun þannig, að um það bil 10% eða svo færu til íbúða fyrir aldraða. Síðan getur fjvn. auðvitað haft áhrif á þetta mál, ef henni sýnist svo. En ég vil geta þess, að þegar þetta mál var lagt fyrir fjvn. síðast kom ein — ég endurtek: ein — athugasemd frá fjvn. til ráðuneytisins: samtals ein athugasemd.
Nokkuð hefur verið rætt hér um B-álmu Borgarspítalans. Ég vil af því tilefni láta það koma fram, að ég tel að óhjákvæmilegt sé að gerður verði um það samningur, og að því er unnið milli ráðuneytisins og Reykjavíkurborgar, að B-álman verði notuð í þágu aldraðra. Ég vil beina því til hv. nefndar, sem með málið fer, að ég teldi mjög vel koma til greina að setja í lögin endurgreiðsluákvæði, þannig að greiðslan úr Framkvæmdasjóði aldraðra falli í raun og veru niður ef viðkomandi bygging verður tekin í þágu annars en aldraðra. Ég vil biðja hv. nefndarmenn í heilbr.- og trn. Nd. að hugleiða þetta, að greiðslan falli í raun og veru brott ef byggingin er tekin fyrir aðra en aldraða.
Í sambandi við fyrirspurnir að öðru leyti, sem hér voru bornar upp við mig, hef ég kannað mjög rækilega fjármögnun íbúða fyrir aldraða á Ísafirði. Framkvæmdir við íbúðir fyrir aldraða á Ísafirði hófust seint á árinu 1979 og þeim lauk s.l. sumar og það var flutt inn í fyrstu íbúðirnar í júlímánuði s.l. Byggingarkostnaður nemur nú samtals um 17.5 millj. kr. Í árslok 1980 var hann 4.5 millj., en síðan bættust við 4.2 millj. 1981 og 8.8 millj. 1982 Fjármögnunin hefur verið þannig af lánsfé, að vaxtaaukalán og lán frá bönkum á Ísafirði hafa numið um 4 millj. kr., en Húsnæðisstofnun ríkisins hefur lánað í þessa framkvæmd 1.7 millj. kr. Það hefur því fengist fé frá Húsnæðisstofnun og öðrum opinberum aðilum í þessar íbúðir fyrir aldraða. Þess vegna hafa íbúðirnar á Ísafirði ekki að neinu leyti verið settar til hliðar miðað við þær reglur sem til voru að undanskildum reglum um Framkvæmdasjóð aldraðra.
En ég tek fram, í tilefni af þeirri umr. sem hér hefur farið fram, að ég tel að það sé mjög eðlilegt að fjárhagur íbúða fyrir aldraða á Ísafirði verði athugaður í tengslum við úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árinu 1983. Ég mun beina því til sjóðsstjórnarinnar að taka það sérstaklega til athugunar. Ég bið menn ekki að taka þetta sem neitt fyrirheit, en ég mun biðja sjóðsstjórnina um að skoða þessi mál á Ísafirði með sérstöku tilliti til annarra umsókna, þegar sjóðsstjórnin gerir upp hug sinn varðandi úthlutun á árinu 1983, og eins getur að sjálfsögðu fjvn. eða þeir menn sem í henni sitja haft hönd í bagga með því hvernig með þau mál verður farið.
Varðandi úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 1982. Hún var lesin upp hér áðan af hv. skrifara deildarinnar og það var í öllum meginatriðum rétt lesið. En hann gat þess hins vegar ekki, sem skiptir mjög miklu máli, að Framkvæmdasjóður aldraðra hefur haft mun minna fjármagn á þessu ári en við gerðum ráð fyrir í upphafi ársins og allur samdrátturinn á fjármagni sjóðsins á þessu ári hefur komið niður á B-álmu Borgarspítalans. Úthlutunin til B-álmu Borgarspítalans á þessu ári verður þannig því miður ekki 18 millj., heldur verður hún talsvert minni, sennilega 15 millj. eða svo. Öll skerðingin kemur fram á B-álmu Borgarspítalans, því miður.
Hér hefur einnig verið rætt ýmislegt um það, að úthluta eigi úr Framkvæmdasjóði aldraðra með tilliti til þess að allir greiði í hann og það eigi að tryggja að hvert einasta kjördæmi fái peninga úr Framkvæmdasjóðnum. Ég lít ekki svona á málið. Ég tel raunar að aldraðir eigi að fá fé úr Framkvæmdasjóðnum, þannig að hægt sé að veita þeim þjónustu, en aðstaðan í hinum ýmsu kjördæmum er mjög mismunandi og það er mat manna, allra sérfræðinga sem um málin fjalla, að ástandið sé miklu alvarlegra í þessum efnum á þéttbýlissvæðinu en annars staðar. En við skulum ekki metast um þetta og við skulum ekki heldur setja dæmið þannig upp, að úr því að af Vestfjörðum kemur þessi upphæð 1982 eigi hún endilega að ganga til Vestfjarða aftur eða úr því að frá Reykjavík kemur þessi upphæð 1982 eigi hún endilega að ganga til Reykjavíkur aftur. Það er ekki hugmyndin með þessum sjóði að þannig sé að málunum staðið.
Hér var það gagnrýnt af þm. á miðvikudaginn eða fimmtudaginn í síðustu viku að ég skuli hafa lagt tillögur fyrir fjvn. um úthlutun til 5 ára. Ég endurtek það sem ég sagði þá: Það var lagaskylda ráðh. að leggja þá tillögu fyrir. Og vegna ummæla sem komu fram hér í síðustu umr. um málið í þá veru að það eigi núna að horfa á þessa úthlutun til 4 ára aðeins, eins og hv. þm. Alexander Stefánsson gat um. Það er rangt. Ráðuneytið mun á nýjan leik gera tillögur um úthlutun til 5 ára og lítur þannig á ákvæðin í lögunum að það sé alveg ótvírætt að svo skuli vera.
Ég vona, herra forseti, að ég hafi svarað þeim spurningum sem hér voru bornar fram um málið. Það væri þó vissulega ástæða til þess að fara miklu ítarlegar yfir það hér vegna þess að það kemur greinilega fram talsverður misskilningur í þessum efnum. Ég vona að greiðist úr honum í umr. og málið flækist ekki frekar en orðið er fyrir einstökum þm.